Fréttablaðið - 18.01.2014, Qupperneq 72
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
hafa læst, engir gluggar svo við sjáum varla
til þar. Svo er til dæmis um þann afkima
sögukastalans þar sem Evrópustórveldi
Avara er til húsa.
Nú heyri ég flesta lesendur hvá – hvurjir
voru nú aftur Avarar og hvar var þetta stór-
veldi þeirra? Er þetta ekki bara tómt bull og
vitleysa, aldrei heyrt á það minnst, frómt frá
sagt, þetta hefur varla verið merkilegt ríki,
Avarar, ekki nema það þó!
En þó áttu Avarar ríki í hjarta Evrópu í
næstum 250 ár og það ríki var engin smá-
smíði. Það náði þegar best lét yfir þau svæði
sem nú heita Rúmenía, Ungverjaland, Tékk-
land, Slóvakía, Austurríki og yfir mörg af
hinum fyrrverandi Júgóslavíuríkjum og
jafnvel yfir Búlgaríu og langt inn í Þýska-
land. Í 250 ár lifði fólk og starfaði, stríddi,
fæddist og dó í þessu heilmikla veldi og samt
er það svo að það hefur nær alveg gleymst.
Það er eins og raftur hafi hrunið fyrir inn-
ganginn að því í kastalanum okkar, leiðsögu-
menn benda áhugasömum gestum sjaldnast
á hann, enda lítil birta þar inni, ryk yfir öllu,
svo sorglega fátt er vitað.
Allir þekkja náttúrlega Húna, þjóð austan
úr Mið-Asíu, sem birtist allt í einu í austan-
verðri Evrópu laust fyrir árið 400 og kom
sér að lokum þægilega fyrir á hinni frjó-
sömu og eftirsóttu sléttu í álfunni
miðri sem Rómverjar kölluðu
Pannoníu en við nefnum Ung-
verjaland. Þaðan herjuðu
Húnar á Rómaveldi í vestri
undir stjórn Atla kóngs,
sem frægur varð í sög-
unni undir nafninu „Reiði
guðs“ – slíkur refsivönd-
ur sem hann var Evrópu-
búum þess tíma. En Atli
dó árið 453 áður en hann
gat treyst undirstöður
ríkis síns og hinir dular-
fullu Húnar hans gufuðu
upp eins og næturfallin mjöll á
heitum morgni. Og Evrópumenn
vörpuðu öndinni léttar, töldu sig nú
lausa við innrásarhættu framandi þjóða
langt úr austri og héldu áfram að drepa hver
annan á sinn kunnuglega hátt. Ný þjóð kom
austan að, Búlgarar, en gerði sig í bili ekki
líklega til stórræða.
Í húsi sögunnar eru margar vistarverur. Við getum kallað hana kastala, mann-kynssöguna, það hæfir einhvern veginn betur en flestar húsagerðir aðrar, en sá kastali hefur ekki beinlínis verið reistur eftir teikningu, held-
ur einn bútur í einu, bætt við
nýjum sal þarna, en turn
í allt öðrum stíl reistur
á meðan á hinum end-
anum, hróflað upp bí-
slagi hér, viðbyggingu
þar, nýrri hæð bætt
ofan á, og mínaretta
farin að teygja sig til
lofts – og svo fram-
vegis. Og suma salina
heimsækjum við oft og
þekkjum eins og lófann
á okkur, þá sali þar sem
Rómaveldis er minnst, eða
þar sem Napóleon heldur til,
og salurinn þar sem Hitler fer
sínum sorglegu hamförum er náttúr-
lega alltaf troðfullur af gestum.
En svo eru aðrir salir næstum gleymdir.
Inngangurinn að þeim kannski hruninn að
mestu, svo illt er að sjá þar inn, eða dyrnar
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
rekur hausinn inn
í rykfallinn sal í
þeim kastala
sem mann-
kynssagan
er og reynir
að kynnast
hinni dular-
fullu þjóð
Avara.
Slavar
Slavar
RÍKI FRANKA
RÍKI AVARA
Ríki Samos
Langbarðar
Búlgarar
Þrakía
Saxar
Khazarar
Miðjarðarhafið
Mikligarður
Ravenna
Svartahafið
Róm
Sikiley
Sardinía
Krít KýpurB Ý S A N
S R
Í
K
I
Ð
STÓRVELDIÐ SEM HVARF OG
ÓVÆNTASTI KÓNGUR Í HEIMI
Með þungvopnað riddaralið
En árið 557, hundrað árum eftir að Húnar
hurfu, þá dró til tíðinda. Jústiníanus keisari
í Býsans, arftaka Rómaveldis í austri, fékk
þá boð frá nýrri þjóð sem enginn hafði áður
heyrt minnst á – þar voru Avarar komnir
langleiðina að landamærum Býsans á Balk-
anskaga. Þeir höfðu þungvopnað riddara-
lið og buðust í fyrstu til að leggja Býsans-
keisara lið við að halda Búlgörum og öðrum
óþjóðalýð í skefjum, en brátt gerðust þeir
metnaðarfyllri og vildu sjálfir lönd á Balk-
anskaga.
Jústiníanus tók það ráð að gefa þeim gull
svo þeir væru til friðs, þeir þáðu gullið en
hirtu svo löndin líka. Norðantil á Balkan-
skaga gengu þeir í bandalag við germanska
þjóðflokkinn Langbarða sem þá bjó á Pann-
oníusléttunni og saman réðust þeir að Gepíd-
um – en það var stolt germönsk þjóð sem
bjó á þessum slóðum og hafði gert út
af við Húna fyrir 100 árum. Nú
útrýmdu Avarar og Langbarð-
ar Gepídum svo gjörsamlega
að sú þjóð er nálega alveg
gleymd. Það er beinlínis
boltað aftur, kastalaher-
bergið þar sem Gepídar
ættu að vera til sýnis.
Nema hvað, svo
hvöttu Avarar Lang-
barða til að hafa sig
á brott, áður en í odda
skærist millum þessara
bandalagsþjóða. Lang-
barðar skildu fyrr en skall
í tönnum og hypjuðu sig
suður á Ítalíuskaga þar sem
þeir hrifsuðu flest svæði brátt
undan Býsansmönnum.
Ríki Avara var risið og í áratugi réðu
avarskir herrar flestum málum í Mið-Evr-
ópu. Þeir stóðust Býsansríkinu fyllilega
snúning og sendu sigursæla riddara sína
reyndar oft gegn keisurunum í Miklagarði.
Þess voru dæmi að þeir settust um borgina
en gerðu þó líklega aldrei alvarlega tilraun
til að taka hana. Og í vestri héldu þeir sjó og
rúmlega það gegn uppgangi Franka.
Sorglega lítið vitað um Avara
En hverjir voru þeir, og hvaðan komu þeir?
Það er nú það, svo sorglega lítið er reyndar
um Avara vitað. Sjálfsagt hafa þeir, líkt og
Húnar, haft gaman af að rekja sögu sína í
miklum kvæðabálkum, en því miður höfðu
þeir ekki rænu á að læra að skrifa og festa
sagnir sínar og sögur á bækur. Öll þeirra
Eddukvæði, allar þeirra Ódysseifskviður og
riddarasögur og ástarsögur og Bósasögur,
allt týndist þetta út í loftið um leið og þeir
slepptu orðunum, og afleiðingin er sú að þótt
við getum teiknað ríki Avara á kort eins og
fylgir þessari grein, þá vitum við nálega
ekkert hvað gerðist þar. Við vitum eigin-
lega það eitt að Avarar voru líklega alltaf
fámenn yfirstétt í landinu og þeir bönnuðu
samneyti við slavneska íbúa í ríki sínu, af
því þeir óttuðust (og vissulega með réttu) að
þjóðarvitund þeirra kynni að hverfa fljótt ef
Slövum væri hleypt of langt upp á dekk. Þó
var smátt og smátt farið að nota slavnesk-
ar tungur í ríkinu í stað tungumáls þeirra
sjálfra, sem sennilega var af tyrkneskri rót.
Slavar já, þar opnast reyndar alls óvæntur
ranghali á Avarasalnum í sögukastalanum.
Eftir að germanskir þjóðflokkar voru flestir
á burt úr Mið- og Austur-Evrópu, komn-
ir vestur á bóginn inn á slóðir hins fallna
Rómaveldis og jafnvel alla leið til Afríku,
þá fór nýtt fólk að láta á sér kræla á hinum
fyrri skógarlendum Germana, það er að
segja Slavar. Þeir bjuggu í skógunum sem
alls staðar voru, komu sér upp litlum þorp-
um og ræktuðu jörðina í smáum stíl. Það
liðu mörg hundruð ár áður en Slavar fóru að
mynda sérstakar þjóðir og ríki. Það eru hin
viðteknu sannindi.
En svei mér þá, þau sannindi reynast þá
ekki meira virði en mörg sannindi önnur. Í
fáorðum heimildum grillir reyndar í fyrsta
ríki slavneskra ættbálka, sem myndað var
sem mótvægi við ríki Avara, nokk-
urn veginn þar sem Bæjaraland
er núna, og Tékkland og inn
í Slóvakíu. Það hefði getað
breytt ansi mörgu ef slav-
neskt ríki hefði orðið
langlíft þar um slóðir,
þar sem Germanir
náðu sér seinna aftur á
strik, að minnsta kosti
vestan til í þessu lítt
þekkta slavneska ríki,
og sitja þar enn í leður-
stuttbuxunum sínum og
sötra bjórinn.
Óvæntasti kóngur í heimi
Svo ótrúlega vildi víst til að
kaupmaður af ætt Franka var allt
í einu kosinn til kóngs yfir slavneskum
ættbálkum þar um slóðir. Þetta var um árið
625 og hann hét Samo, hafði víst unnið sér
frægð í bardögum en mín kenning (og fleiri)
er samt sú að hann hafi fyrst og fremst verið
vopnasali frá Frankalandi og í krafti vopn-
anna fengið hina helstil frumstæðu Slava
til að kjósa sig kóng og mynda sitt fyrsta
slavneska ríki. Og Samo náði að hrinda sókn
Avara inn á lendur síns nýja ríkis. Avarar
voru óvanir mótspyrnu úr þessari átt og
kunnu ekki að bregðast við. Hann var ein-
hver óvæntasti kóngur í heimi, kaupmanns-
blók sem allt í einu var orðinn kóngur yfir
óskyldu fólki.
Ósköp sem væri gaman að vita öllu meira
um Samo, hann var greinilega karl í krap-
inu, átti tólf eiginkonur, 22 syni og 15 dætur,
og ríkti allt til 658 þegar hann dó. Eng-
inn af öllum þessum sonum hans var þá
talinn burðugur til að taka við ríkinu, og
veldi Samos hvarf eins og dögg fyrir sólu.
Ríki Avara náði sér aftur á strik, og hélt
velli fram til um 800, þegar Karlamagnús
Frankakóngur sigraði Avara svo gjörsam-
lega í orrustu að ríki þeirra sundraðist í þús-
und mola og enginn Avari hefur sést síðan.
Enda voru þeir þá víst meira og minna runn-
ir saman við slavneska þegna sína.
Og hvílík synd að ekki sé hægt að varpa
öllu meiri birtu á þennan gleymda sal kastal-
ans okkar, sem geymir þrátt fyrir allt svo
langa sögu.
Svo
ótrúlega
vildi víst til
að kaup-
maður af
ætt Franka
var allt í
einu kosinn
til kóngs yfir
slavneskum
ættbálkum
þar um
slóðir, þetta
var um árið
625 og hann
hét Samo …
Hann var
einhver
óvæntasti
kóngur í
heimi,
kaupmanns-
blók sem allt
í einu var
orðinn
kóngur yfir
óskyldu
fólki.
MIÐ-EVRÓPA UM ÁRIÐ 650
SAMO
AVARSKIR
RIDDARAR