Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 96
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 60
Umsóknarfrestur 3. febrúar
Æskulýðs-
sjóður
HANDBOLTI Þeir eru fæddir með
viku millibili árið 1972. Þeir
spiluðu saman með landsliðinu
á sínum tíma. Annar þjálfaði
lið Hauka og hinn tók við af
honum. Þeir mætast nú með
landslið Íslands og Austurríkis í
milliriðlakeppni EM í Danmörku.
„Auðvitað er það sérstakt að
spila á móti Íslandi. Ég spilaði
marga leiki fyrir Ísland og spilaði
með mörgum þessara stráka. Ég
þarf einhvern veginn að tækla
þetta. Mitt verkefni er Austurríki
þennan klukkutíma og svo mun ég
halda áfram að styðja Ísland. Aron
er vinur minn og frábær þjálfari.
Ég hef ekki trú á því að við lendum
í einhverri rimmu á hliðarlínunni,“
segir Patrekur en hann ætlar að
sjálfsögðu að syngja íslenska
þjóðsönginn og hann trúir því
ekki að nokkur maður verði fúll
út í hann ef Austurríki vinnur
leikinn.
„Ég vinn bara mína
vinnu en er Íslendingur.
Það væri skandall ef ég
myndi ekki leggja mig
fram. Svona er þetta
bara. Ég gleðst yfir
því að Ísland sé komið
áfram og ég gleðst enn meira
yfir því að Austurríki sé komið
áfram. Við höfum náð því að vera
á meðal tólf efstu í þessu móti með
átta eða níu menn úr austurrísku
deildinni. Ég er virkilega stoltur
og ánægður með okkar árangur,“
segir Patrekur en árangur hans
með þetta austurríska lið hefur
vakið athygli víða.
Liðið lagði Tékka með tíu
mörkum í mótinu, spilaði fínan
leik gegn Dönum og tapaði svo
naumlega í hörkuleik gegn
Makedóníu. „Við vorum svekktir
með Makedóníuleikinn og áttum
skilið að vinna þann leik. Það
hefur verið mikil vinna að búa til
hörkulið hérna og ég er ánægður
með þessa stráka.“
Eðlilega þekkir Patrekur
íslenska liðið út og inn og veit
hvað þarf að varast. „Styrkur
íslenska liðsins er þessi gríðarlega
samheldni og ég veit að þetta eru
sigurvegarar. Þetta verður gaman
og vonandi náum við að spila
flottan leik.“
Aron er einnig spenntur að
mæta sínum gamla félaga og
vini. „Þetta verður virkilega
skemmtilegt. Hann er að gera
flotta hluti með þetta lið og það
verður bara gaman að mæta
honum,“ segir Aron og brosir. „Við
viljum báðir vinna og verðum svo
aftur vinir eftir leik.“
Ísland og Austurríki hafa mæst
þrisvar sinnum síðustu misseri
og þekkjast því mjög vel. Síðast
helgina fyrir EM í Þýskalandi og
þá vann Ísland frekar sannfærandi
sigur. Mótspyrnan verður
örugglega meiri í dag enda er lið
Austurríkis þekkt fyrir að gefast
aldrei upp.
„Þetta er gott lið og með nokkra
klóka leikmenn sem hafa mikla
reynslu. Þeir eru með virkilega
sterkan markmann og það er oft
lykillinn hjá þeim. Þegar hann
dettur í stuð þá á Austurríki
möguleika gegn hverjum sem er,“
segir Aron en hver er lykillinn að
því að stöðva þá?
„Það þarf að spila góða
vörn svo við getum refsað í
hraðaupphlaupum. Það sem skiptir
máli er að það komi framlag frá
mörgum leikmönnum og vonandi
stíga einhverjir nýir upp,“ segir
Aron og ekki veitir af þar sem
mannskapurinn er orðinn ansi
laskaður.
„Arnór Atla er spurningamerki.
Aron Pálmars tók því rólega í dag.
Þórir er betri en hann var í gær.
Það er ekki útilokað að við gerum
breytingar á hópnum en fyrst
verðum við að sjá stöðuna á Arnóri
betur.“
Verðum aft ur vinir eft ir leik
Gömlu landsliðsfélagarnir og vinirnir Aron Kristjánsson og Patrekur Jóhannesson mætast í dag með sitt
landsliðið hvor. Báðir eru þeir mjög spenntir fyrir leik dagsins. Patrekur segir að þetta verði sérstök stund.
ÍSLENDINGASLAGUR Á EM Í HANDBOLTA Í DAG Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska handboltalandsliðsins, og Patrekur Jóhannsson, þjálfari Austurríska handboltalands-
liðsins, mætast í kvöld þegar Ísland og Austurríki leika í fyrstu umferð milliriðilsins á EM í Danmörku. Þeir brugðu aðeins á leik í gær í tilefni leiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Aron Pálmarsson
fékk frí frá æfingum í gær enda
er hann ekki í neinu standi til
þess að æfa. Hann varð fyrir enn
frekari meiðslum í leiknum gegn
Spáni.
„Ég sneri mig á hinum
ökklanum. Þá er ég með eitt tæpt
hné og tvo slæma ökkla. Það er
best að ég haldi mér rólegum á
milli leikja,“ sagði Aron en hann
hefur farið á kostum á EM og það
yrði gríðarlegt áfall fyrir liðið að
missa hann út.
„Við erum með frábært
sjúkraþjálfarateymi sem reynir
að tjasla mér saman fyrir
leikinn. Ég mun ekki vita fyrr
en rétt fyrir leik hversu mikið
ég spila. Ég á eftir að fara oft í
meðhöndlun fyrir leikinn og það
verður að skýrast í upphitun hver
staðan á mér er nákvæmlega.“
Aron veit sem er að leikurinn
gegn Austurríki verður erfiður
enda að mæta miklu seigluliði
sem gefst aldrei upp.
„Það eru ekki margar stjörnur
í þessu liði eða menn sem spila
í stórum liðum. Þeir spila góðan
handbolta og berjast mikið. Það
er erfitt að spila á móti þeim.“
- hbg
Óvissa með
Aron Pálmars
ÆFÐI EKKI Aron Pálmarsson fékk frí frá
æfingum íslenska liðsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Það mun mæða mikið
á varnarmönnum íslenska liðsins
í dag. Bæði Sverre Jakobsson og
Vignir Svavarsson hafa verið að
glíma við meiðsli en eiga að vera
klárir í slaginn.
„Við ætlum að reyna að klára
þetta. Menn eru aðeins tæpir
og Aron hefur reynt að dreifa
álaginu. Það hefur gengið upp og
niður en það væri fínt að spila
heilan leik þar sem við spilum
góða vörn,“ segir Vignir og bætir
við að hann sé ágætur í bakinu.
Austurríkismenn eru ólseigir
en hver er lykillinn að því að
stöðva þá?
„Lykillinn hjá okkur er að
stöðva Victor Szilagyi. Hann er
hrikalega góður og spilað vel í
Þýskalandi í vetur. Hann ber uppi
spilið þeirra og getur ansi margt.
Þetta er baráttulið og leggur
alltaf allt í þetta.“ - hbg
Menn tæpir
TÆPUR Vignir
Svavarsson er
að glíma við
bakmeiðsli.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
EM Í HANDBOLTA
C-RIÐILL
PÓLLAND - RÚSSLAND 24-22 (10-14)
SERBÍA - FRAKKLAND 28-31 (12-17)
Stigin: Frakkland 6, Pólland 2, Rússl. 2, Serbía 2.
D-RIÐILL
KRÓATÍA - SVÍÞJÓÐ 25-24 (10-9)
H-RÚSSL. - SVARTFJALLA. 29-23 (13-13)
Stigin: Króatía 6, Svíþjóð 4, H-Rússl. 2, Svartf. 0.
MILLIRIÐILL 2 (HEFST Á MORGUN)
Króatía 2 2 0 0 58-46 4
Frakkland 2 2 0 0 63-55 4
Svíþjóð 2 1 0 1 54-47 2
Pólland 2 1 0 1 51-20 2
Rússland 2 0 0 2 50-59 0
H-Rússland 2 0 0 2 44-63 0
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Daníel
Rúnarsson
danielr@365.is
Frá EM í Álaborg
Patrekur Jóhannesson verður ekki fyrsti Íslendingurinn til að stýra landsliði á móti Íslandi á stórmóti í
karlahandboltanum þegar Austurríki mætir Íslandi í dag í milliriðli á EM í Danmörku. Dagur Sigurðsson
stýrði austurríska landsliðinu á móti Íslandi á EM í Austurríki fyrir fjórum árum. Patrekur getur hins vegar
orðið fyrsti íslenski þjálfarinn til að vinna Íslands á stórmóti í handbolta karla.
Ísland og Austurríki gerðu 37-37 jafntefli á EM 2010 eftir
ótrúlegan endakafla í leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson
kom íslenska liðinu þremur mörkum yfir, 37-34, þegar rétt
innan við mínúta var eftir en Austurríkismönnum tókst að
skora þrjú mörk á síðustu 46 sekúndum leiksins og tryggja
sér jafntefli.
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins, hefur aftur
á móti unnið Ísland á stórmóti en Noregur vann 27-14 sigur á Íslandi
undir hans stjórn á HM í Brasilíu 2011.
Dagur var sá fyrsti en gerir Patrekur betur í kvöld?