Fréttablaðið - 04.03.2014, Side 12

Fréttablaðið - 04.03.2014, Side 12
4. mars 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12 NÁTTÚRA Landssamband veiði- félaga (LV) hefur farið þess á leit við Erfðanefnd landbúnaðarins að hún tjái sig um áhættu sem fylgir eldi á norskættuðum laxi í sjókví- um við Ísland, og hvort líta megi á kynbættan norskan eldislax sem erfðabreytta lífveru sem ógnað geti íslenskum laxastofnum. Þetta kemur fram í bréfi sem LV sendi formanni Erfðanefndar- innar í liðinni viku. Óðinn Sigþórsson, formað- ur Landssambands veiðifélaga, segir í bréfinu að tilefni erind- isins sé lagafrumvarp sem ligg- ur fyrir Alþingi þar sem „kapp virðist lagt á að einfalda reglu- verk vegna umsókna á leyfum til laxeldis í sjó. Í lögunum sé hins vegar ekki að finna ákvæði um umhverfisvöktun eða tilmæli um þróun á geldlaxi til eldis, eins og gert er í norskum lögum frá árinu 2012.“ Eins og komið hefur fram er það skoðun Landssambandsins að stórfellt eldi norskra laxa í sjókvíum geti haft veruleg nei- kvæð áhrif á villta íslenska laxa- stofna. Eldismenn hafna þessu og hafa á móti tínt til rök um að íslenskum laxastofnum stafi lítil hætta af eldinu. LV vísar í tvær greinar í reglu- gerð um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði; 4. grein um starfssvið nefndarinn- ar og hins vegar í 6. grein þar sem fjallað er um innflutning dýra, umsögn Erfðanefndar og vernd- unarmat. Samkvæmt reglugerð- inni er kallað eftir því af hálfu LV að Erfðanefndin tjái skoðun sína, og þá í viðleitni til að skýra málið í framhaldinu, enda er það mjög umdeilt. Hins vegar greina heimildir Fréttablaðsins að efast sé um að erindi LV falli undir starfs- svið Erfðanefndarinnar. Eins að nefndin hafi til þessa ekki fjallað um það hitamál hvort réttlætan- legt sé að ala norskt eldiskyn í sjó við Ísland. Vekur það nokkra furðu heimildarmanna þar sem norski laxinn hefur verið notaður í eldi við Ísland í áratugi. Erfðanefndin hefur ekki komið saman síðan henni barst erindi LS, en óskað hefur verið eftir frekari gögnum og rökstuðningi fyrir erindinu. Í viðtali við Fréttablaðið gat Jón Hallsteinn Hallsson, formað- ur nefndarinnar, því ekki gefið frekari upplýsingar um mála- reksturinn að svo komnu. svavar@frettabladid.is 10195 Happdrætti Húsnæðisfélags S.E.M. 4250 18347 42018 61939 86905 99159 116975 9816 24825 43595 62078 95312 99229 117879 11186 26497 49560 65805 96228 99379 118591 11345 29891 49778 69098 96681 100978 119070 13027 38943 50996 70138 98040 106220 14739 39260 54688 82497 98457 115730 4380 16639 45235 62416 72883 89352 121750 5854 20053 45864 62531 73034 91067 122398 6331 22901 46399 64612 76458 99927 122529 7011 29925 50713 65208 76649 103310 9849 33514 50857 65336 78209 108282 13414 39501 56337 68762 79366 112945 16501 40663 58027 71556 80144 117557 2286 18639 38461 56045 80418 92240 104081 3586 18736 41530 57074 80756 92335 106244 3951 24952 42933 57485 81234 92921 106904 6632 25394 44775 59725 81788 94616 108144 7348 25706 49163 61656 83424 94701 116138 8755 25842 50108 63341 84378 94922 118142 2014 8868 27861 50294 65013 84571 95570 119441 10452 28527 50628 65288 84690 95620 121471 11597 29298 51070 69421 85353 96140 122333 12113 31178 52386 69689 86500 96826 122775 13791 31471 52720 71132 86976 97646 15283 32142 53798 73844 87402 99908 17327 36461 54114 74420 89553 100240 17432 38124 55402 79641 91357 100712 17778 38394 55828 79649 91410 104041 648 20616 42937 56183 77617 93669 110029 2526 20995 43645 61394 78010 93937 110817 8768 21108 46530 63689 78429 94271 111030 9542 22510 47253 65552 78586 94864 115085 10672 22628 48768 65652 78736 97508 117967 11368 23592 50851 67181 81074 98531 121241 11379 24490 51103 68959 82274 104463 121373 13320 24523 51418 69709 83769 105380 121944 14490 29311 51530 71134 83861 107053 122084 14719 30027 52230 71279 85978 107398 122103 15852 30731 52615 71922 86694 107972 16723 31180 54148 73774 87642 108115 17525 38314 55015 74765 88870 108359 18785 39190 55793 75407 90133 108949 19924 39476 56022 77556 92360 109847 2121 16566 57580 96766 101636 3187 27283 83876 97029 112614 „Samkvæmt upplýsingum frá Noregi sleppa um 3 prósent seiðanna fljótlega eftir að seiðin koma í kvíarnar. Ætla má að hlutfall strokulaxa úr eldi verði hærra hérlendis vegna erfiðari veðurskilyrða og vankunn- áttu íslenskra eldismanna. Miðað við að það þurfi um 1 milljón seiða til að framleiða 3 þúsund tonn af laxi má gera ráð fyrir að í slíku eldi sleppi um 30 þúsund seiði. Ef miðað er við 30 þúsund tonna framleiðslu má gera ráð fyrir að 300 þúsund seiði sleppi hið minnsta. Ljóst er að einhver hluti þessara seiða mun sækja upp í íslenskar laxveiðiár og valda þar erfðamengun og jafnvel sjúkdómum. Í þessu sambandi skal þess getið að talið er að íslenskar laxveiðiár framleiði árlega 500 þúsund til 1 milljón sjógönguseiða.“ Úr bréfi LV til Erfðanefndar landbúnaðarins, dagsettu 24. febrúar. Hætta á erfðamengun og sjúkdómum Erfðanefnd krafin um álit á laxeldi í sjó Landssamband veiðifélaga hefur krafið Erfðanefnd landbúnaðarins um álit á sjóeldi á norsku eldiskyni við Ísland. Vill vita hvort norski laxinn getur talist erfðabreytt lífvera sem ógn stafi af. Engar upplýsingar að fá frá Erfðanefndinni. RENNT Fiskeldi er illa séð af þeim sem vilja veg íslenska laxastofnsins sem mestan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUMÁL Landsnet hefur ýtt úr vör rannsóknarverkefni til að greina hagkvæmustu kosti við val á jarðstrengjum og lagningu þeirra og frágang. Horft er til flutnings- getu, áreiðanleika, umhverfis og kostnaðar. Lykilráðgjafar eru frá danska flutningsfyrirtækinu Energ- inet.dk, StellaCable í Danmörku og Háskólanum í Reykjavík. Jarðstrengslagnir í flutningskerfi Landsnets ná nú yfir 200 kílómetra og hefur tæplega helmingur þeirra verið lagður á síðustu tíu árum. Í frétt frá fyrirtækinu segir að frekari jarðstrengslagnir séu áætl- aðar á næstu árum. Þar sem slíkar framkvæmdir eru kostnaðarsamar vill Landsnet leita leiða til að reyna að draga úr kostnaði við þær og er rannsóknarverkefnið liður í þeirri viðleitni, segir þar. Auk fyrrnefndra lykilráðgjafa taka þátt í verkefninu sérfræðing- ar frá verkfræðistofunum Eflu, Mannviti og Verkís, sem allir hafa reynslu af jarðstrengsverkefnum, ásamt starfsfólki Landsnets. - shá Landsnet leitar bestu kosta við val á jarðstrengjum og lagningu þeirra: Meta kosti við jarðstrengjalögn LOFTLÍNUR Rannsókn á bestu kostum varðandi jarðstrengi mun taka um hálft ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ERLENT Þrír þeirra sem voru grunaðir um hnífa- árásina í kínversku borginni Kunming voru hand- samaðir í gær. Áður hafði einn verið handtekinn en hinir fjórir sem gerðu árásina voru skotnir til bana af lögreglunni. Alls fórust 29 manneskjur og 143 særðust þegar árásarmennirnir, sex karlar og tvær konur, stungu fólk sem á vegi þeirra varð á lestarstöð í Kunming, sem er í suðvesturhluta Kína. Ráðamenn telja að aðskilnaðarsinnar frá héraðinu Xinjiang hafi staðið fyrir árásinni. Sjónarvottar segja að árásarmennirnir hafi, á aðeins tólf mínútum, ráðist á fólkið með bjúgsverð- um og kjötöxum. „Ég sá fimm eða sex þeirra. Þeir voru allir með hnífa og voru að stinga fólk eins og brjálæðingar hjá fyrsta og öðrum miðasölubási,“ sagði einn þeirra við Reuters. Chen Yogui hótelstarfsmaður sá tíu lík liggja á jörðinni. „Það var blóðlykt í loftinu og margir voru hágrátandi,“ sagði hann. - fb Rannsókn heldur áfram á hnífaárásinni í kínversku borginni Kunming: Þrír hnífamenn handsamaðir ÁFALL Grátandi ættingi eins fórnarlambanna leiddur í burtu á lestarstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FJÁRMÁL Bill Gates, stofnandi tölvurisans Microsoft, er efstur á árleg- um lista tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn í heimi. Gates endur- heimtir efsta sætið af Carlos Slim, framkvæmdastjóra samskipta- fyrirtækjanna Telmex og América Móvil, sem trónað hafði á toppinum fjögur ár í röð. Eigur Gates eru metnar á 76 milljarða Bandaríkjadala, sem gerir um það bil átta og hálfa billjón íslenskra króna. Um 450 milljörðum króna munar á honum og Slim. Í þriðja sæti á eftir þeim kumpánum kemur Spánverjinn Amancio Ortega sem helst er þekktur fyrir fata- risann Zara. - bá Bill Gates er aftur orðinn ríkasti maður í heiminum: Eignir metnar á 76 milljarða dala BILL GATES Aftur orðinn ríkasti maður heims, samkvæmt Forbes. AFP/NORDICPHOTOS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.