Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2014, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 04.03.2014, Qupperneq 21
Það verður mikið líf og fjör í Kórnum í Kópavogi 6.-8. mars en þá verða haldnir tveir stórir viðburðir á sama tíma. Þessa helgi fer fram Íslandsmót iðn- og verkgreina og verður þetta langstærsta iðn- og verkgreinakeppni sem haldin hefur verið hér á landi. Einnig verður í fyrsta sinn haldin stór sameiginleg framhaldsskólakynning á Íslandi þar sem tæplega 30 skólar og fræðsluaðilar kynna fjölbreyttar námsleiðir. Hér er því einstakt tækifæri til að kynna sér fjölbreytileika iðngreina, verkgreina og bóknáms og ætti enginn að láta það framhjá sér fara. „Keppninni er fyrst og fremst ætlað að vekja athygli ungs fólks á iðn- og verk- greinum og þeim tækifærum sem felast í námi og störfum í iðngreinum,“ segir Lilja Sæmundsdóttir verk- efnastjóri. Á Íslands- mótinu verður keppt í 24 greinum. „Það verður því margt að skoða, því auk keppni framhaldsskóla- nemenda verða sýningar á margvíslegum iðn- og verkgreinum og einnig verða sýnd fjölbreytt at- riði á sviði,“ segir Lilja og bendir á að grunnskólanemendum og öðrum gestum gefst kostur á að prófa ým- islegt spennandi undir handleiðslu fagfólks. „Hér er því um að ræða frábært tækifæri til að máta sig inn í hin ýmsu störf.“ Framhaldsskólar og fræðsluaðilar munu kynna gríðarlega fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi, bæði verklegt og bók- legt og mun starfsfólk og nemendur þeirra veita svör við spurningum um námsfram- boð og inntökuskilyrði. „Félag náms- og starfsráðgjafa verður einnig með kynn- ingarbása á svæðinu og munu ráðgjafar svara fyrirspurnum um val á námsleiðum, veita upplýsingar um áhugasviðskannanir og fleira,“ segir Lilja. Allt þetta fer fram á sama stað og á sama tíma á rúmum 5.500 fermetrum í Kórnum í Kópavogi. VON Á 7.000 GRUNNSKÓLANEMUM Grunnskólanemendur í 8., 9. og 10. bekk eru boðnir sérstaklega velkomnir á sýninguna. Þeim verður boðið upp á að taka þátt í rat- leik og svo er einnig efnt til ritgerða- og/ eða myndbandasamkeppni þar sem vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta efnið. „Við eigum von á um sjö þúsund grunnskólanem- endum hvaðanæva af landinu sem ætla að koma að skoða, sjá og spyrja um allt sem þá langar að vita um greinarnar sem verða þarna og kynna sér námsframboð á fram- haldsskólastigi,“ segir Lilja. Öllum sem áhuga hafa er velkomið að koma á sýn- inguna og kynna sér þar sem þar fer fram. „Ég bendi foreldrum á að á laugardeginum gefst upplagt tækifæri til að koma með börnum sínum og unglingum á sýninguna og skoða, upplifa, prufa og smakka.“ SKEMMTILEG OG KREFJANDI KEPPNI Íslandsmót iðn- og verkgreina er orðið fast- ur liður hjá félögum og samtökum sem standa að verknámsgreinum sem og fram- haldsskólum sem kenna verklegar greinar. „Íslandsmótið er fjölbreytt og skemmtilegt og veitir ungu fólki tækifæri til sýna fram á færni sína og kunnáttu í iðn- og verk- greinum. Þátttakendur á Íslandsmótinu eru nemendur í iðn- og verkgreinaskól- um landsins og þeir sem nýlega hafa lokið námi og munu um 200 keppendur taka þátt í hinum ýmsum greinum. Keppend- ur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku,“ lýsir Lilja. Dómarar fara yfir verkefnin að lok- inni keppni, meta gæðin og velja þá sem skara fram úr í hverri grein. Fróðleikur og fjör í Kórnum Einstakt tækifæri til að upplifa og fræðast um iðn- og verkgreinar og nám á framhaldsskólastigi Lilja Sæmundsdóttir, verkefnastjóri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.