Fréttablaðið - 06.03.2014, Page 4
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
GÓÐGERÐAMÁL Barnahjálp ABC
heldur á næstunni 20 tónleika til
styrktar byggingu skóla og heima-
vistar í Kariobangi-fátækrahverf-
inu í Naíróbí í Kenýa.
Fjöldi valinkunnra tónlistar-
manna mun koma fram á tónleik-
unum, sem verða alla fimmtudaga
næstu þrjá mánuði, en þeir fyrstu
í röðinni fara fram í listamiðstöð-
inni Líf fyrir líf á morgun klukkan
17. Miðaverðið er 5.000 krónur en
fyrir það má kaupa 75 múrsteina
sem verða notaðir við byggingu
skólans. - js
Byggja heimili með tónlist:
Tónlistarfólk
leggur ABC lið
STEINN FYRIR STEIN Valgeir, Ragnar og
Eyþór eru meðal þeirra sem munu spila
fyrir ABC. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
HEILBRIGÐISMÁL Ólga er nú meðal
hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar-
heimilum sem eru með lægri laun
en hjúkrunarfræðingar í starfi hjá
ríkinu. Við blasir að gripið verði til
einhvers konar aðgerða, að sögn
Ragnheiðar Gunnarsdóttur, vara-
formanns Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
Hú n seg i r
launaleiðrétt-
i n g u n a s em
hjúkrunarfræð-
ingar í starfi
hjá ríkinu fengu
í fyrra í gegnum
stofnanasamn-
inga ekki hafa
skilað sér til
hjúkrunarfræð-
inga sem starfa hjá samtökum
fyrirtækja í velferðarþjónustu.
„Eina leiðin til að leiðrétta það
misræmi sem er á kjörum hjúkr-
unarfræðinga er í gegnum kjara-
samninga sem nú eru lausir. En
hjúkrunarfræðingar á hjúkrunar-
heimilum eru ekki sáttir við að fá
bara 2,8 prósenta hækkun eins og
aðrir þar sem hún kemur ofan á
lægri grunn en hjá hinum.“
Að sögn Ragnheiðar eru hjúkr-
unarfræðingar á hjúkrunar-
heimilum farnir að segja upp og
hverfa til starfa annars staðar
þar sem þeir fá hærri laun. „Það
er víða undirmönnun. Fólk hætt-
ir og annað kemur ekki í stað-
inn. Þetta kemur niður á gæðum
hjúkrunarinnar. Færri verða til
að leiðbeina minna menntuðu
starfsfólki og tryggja örugga og
faglega hjúkrun. Lífsgæði þeirra
sem búa á hjúkrunarheimilunum
munu versna.“
Gísli Páll Pálsson, forstjóri í
Mörk, hjúkrunarheimili, og for-
maður Samtaka fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu, segir að í síðustu
viku hafi verið leitað eftir meiri
fjármunum frá ríkinu í tengslum
við nýja kjarasamninga.
„Við vorum svo grunlaus að við
héldum að hækkanirnar frá ríkinu
í fyrra kæmu sjálfkrafa á okkar
stofnanir. Það var óskynsamlegt
hjá báðum ríkisstjórnunum að gera
þetta svona. Svokallað jafnlauna-
átak endaði í ójafnlaunaátaki.“
Að sögn Gísla er staðan mis-
alvarleg á hjúkrunarheimilun-
um sem rekin eru á daggjöldum.
„Við höfum bent á það í mörg ár
að daggjöld þurfi að hækka um
10 prósent og heilbrigðisráðherra
viðurkenndi nú í desember að dag-
gjaldagrunnurinn væri veikur.“
ibs@frettabladid.is
Ólga vegna launa á
hjúkrunarheimilum
Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimilum eru með lægri laun en hjúkrunarfræð-
ingar hjá ríkinu. Segja upp en aðrir koma ekki í staðinn. Kemur niður á þjónust-
unni og lífsgæðum íbúa, segir varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
26 ökumenn voru teknir fyrir að tala í síma við
akstur í janúar.
Meðalaldur þessara ökumanna var
39 ár.
Um 42 prósent voru karlar en 58
prósent konur.
Heimild: Ríkislögreglustjóri
Á HJÚKRUNARHEIMILI Staðan á hjúkrunarheimilum, sem rekin eru á daggjöldum,
er misalvarleg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÍSLI PÁLL
PÁLSSON
Þetta
kemur niður á
gæðum hjúkr-
unarinnar.
Færri verða til
að leiðbeina
minna mennt-
uðu starfsfólki og tryggja
örugga og faglega hjúkrun.
Ragnheiður Gunnarsdóttir
varaform. Félags ísl. hjúkrunarfræðinga
UMHVERFISMÁL Gámaþjónustan
verður að hætta moltugerð á
Patter sonflugvelli. Úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála
hafnaði kröfu fyrirtækisins um að
ógilda ákvörðun Heilbrigðiseftir-
lits Suðurnesja um að afturkalla
starfsleyfi fyrirtækisins.
Gámaþjónustan var komin út
fyrir athafnasvæði sitt og inn á
vatnsverndarsvæði Suðurnesja
sem stóð ógn af óþrifnaðinum sem
auk þess að menga dró að sér rott-
ur. Fyrirtækinu hefur verið gefinn
„hæfilegur“ frestur til að binda
enda á moltugerðina. - gar
Rottur á vatnsverndarsvæði:
Missa leyfi til
moltugerðar
RUSL Óþrif fylgja moltugerð á Suður-
nesjum FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
a á mottaka@heilsuborg.isSkránin 0 1010 eðg í s íma 56
Þjálfarar Anna Borg og
Arna Steinarsdóttir sjúkraþjálfarar
Stoðkerfislausnir
henta þeim sem eru með einkenni
frá stoðkerfi, vilja læra á sjálfan sig
og finna sín mörk í hreyfingu.
10. og 11. mars
Þri. og fim. kl. 16:30
Mán., mið. og fös. kl. 15:00
Ert þú með verki?
TÆKNI Ómönnuð flutningaskip
gætu orðið að veruleika innan
áratugar, samkvæmt framleiðand-
anum Rolls-Royce. ESB ætlar að
setja 3,5 milljónir evra í verkefnið.
„Nú er runninn upp sá tími að
við íhugum gerð ómannaðra skipa
af ýmsum toga. Stundum verður
það sem var óhugsandi í gær
mögulegt á morgun,“ sagði Oskar
Levander hjá Rolls-Royce, í frétt
BBC. „Tæknin er til staðar og er
þá ekki þá kominn tími til að færa
sum verkefni yfir á land? Er betra
að hafa 20 manna áhöfn á siglingu
um Norðurhöf eða til dæmis fimm
í stjórnherbergi á landi?“ - fb
Spá nýrri tækni innan tíðar:
Flutningaskip
án áhafnar
INDLAND, AP Þingkosningar hefjast
á Indlandi 7. apríl og standa yfir til
12. maí. Margir sérfræðingar telja
að kosningarnar verði þær mikil-
vægustu í rúm þrjátíu ár í þessu
fjölmennasta lýðveldi heimsins.
Mikil óánægja hefur ríkt á
Indlandi að undanförnu vegna
spillingar og vonbrigða yfir
frammistöðu stjórnmálaveldis-
ins Nehru-Gandhi, sem hefur ríkt
yfir indverskum stjórnmálum
síðan landið öðlaðist sjálfstæði
frá Bretum árið 1947. Þess vegna
þykir stjórnarandstöðuflokkur-
inn Bharatiya Janata líklegur til
árangurs í kosningunum. -fb
Óánægja ríkir á Indlandi:
Þingkosningar
hefjast í apríl
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Vaxandi vindur, hvasst eða stormur
síðdegis fyrst S-lands.
SNJÓKOMA EÐA ÉL verða sunnan- og vestanlands í dag og á morgun en nokkuð
bjart norðaustan til. Síðdegis á laugardaginn og fram á sunnudagsnótt gengur svo
vonskuveður yfir landið með hvassviðri eða stormi, snjókomu og slyddu eða rigningu.
0°
8
m/s
0°
8
m/s
0°
6
m/s
3°
8
m/s
Á morgun
Strekkingur eða allhvasst SV-lands og
með S-ströndinni, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
1°
-2°
2°
0°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
19°
16°
1°
Berlín
Billund
Frankfurt
10°
10°
12°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
9°
8°
8°
Las Palmas
London
Mallorca
19°
14°
16°
New York
Orlando
Ósló
-1°
23°
5°
París
San Francisco
Stokkhólmur
13°
15°
7°
0°
4
m/s
2°
11
m/s
0°
8
m/s
1°
9
m/s
0°
7
m/s
0°
7
m/s
-5°
6
m/s
2°
0°
0°
0°
-1°
ALÞINGI „Við sjáum stöðugt nýjar
hundakúnstir og undanbrögð í
fjölmiðlum. Stjórnvöld hafa ekki
boðað til neinna viðræðna við
stjórnarandstöðuflokkana um
hvernig ESB-umræðum verði
framhaldið á Alþingi,“ segir Árni
Páll Árnason, formaður Samfylk-
ingarinnar, aðspurður um fram-
hald ESB-málsins.
Fyrir síðustu helgi sömdu
stjórnin og stjórnarandstaðan um
það á Alþingi að ljúka umræðum
um skýrslu Hagfræðistofnunar
um ESB og taka á dagskrá þings-
ályktunartillögu Gunnars Braga
Sveinssonar utanríkisráðherra
um að draga aðildarumsóknina
að ESB til baka.
„Ég veit ekki betur en því hafi
verið lofað að menn myndu setjast
niður og ræða framhaldið í nefnd-
arvikunni og reyna að ná saman
um hvernig hægt yrði að koma
ESB-málum í lýðræðislegt ferli,“
segir Guðmundur Steingrímsson,
formaður Bjartrar framtíðar.
Birgitta Jónsdóttir, kapteinn
Pírata, segir að málið sé hjá
stjórnvöldum, það sé þeirra að
hafa samband við stjórnarand-
stöðuna og ræða hvernig fram-
hald ESB-málsins verði.
Í sama streng tekur Svandís
Svavarsdóttir, þingflokksformað-
ur VG, sem bendir jafnframt á að
stjórnvöld hafi enn fjóra daga til
stefnu uns Alþingi haldi áfram
fyrstu umræðu um þingsálykt-
unartillögu utanríkisráðherra
um að draga aðildarumsóknina
til baka. - jme
Framhald Evrópusambandsmálsins á Alþingi hefur ekki ennþá verið rætt við stjórnarandstöðu:
Hundakúnstir og undanbrögð ríkisstjórnar
EKKI VERIÐ RÆTT Stjórnvöld hafa ekki
rætt við stórnarandstöðuna um hvert
verði framhald ESB-málsins.
FRÉTTABLAÐIÐ / DANIEL