Fréttablaðið - 17.09.2014, Blaðsíða 2
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FREISTANDI
AUKAHLUTA-
PAKKAR
FYRIR AURIS
MEÐAN
TILBOÐIÐ
VARIR
Aukahluta-
pakkar á tilboði
LIVE
PAKKI
259.000 kr.
Filmur í rúður
Krómlisti á skott
Krómstútur á púst
Þokuljósasett
Krómlistar á hliðar
16” álfelgur (Orion)
Fullt verð 426.829 kr.
Tilboðsverð
SPORT
PAKKI
105.000 kr.
Filmur í rúður
Toppgrindarbogar
Skíðafestingar
fyrir 4 skíði
Gúmmímotta í skott
Hlíf á afturstuðara
(póleruð)
Fullt verð 173.568 kr.
Tilboðsverð
HLÍFÐAR
PAKKI
168.000 kr.
Toyota ProTect
5 ára lakkvörn
Filmur í rúður
Gluggavindhlífar 4 stk.
Hliðarlistar (svartir)
Hlíf á afturstuðara
(póleruð)
Stuðaravörn (svört)
Gúmmímotta í skott
Filmur á handföng
að framan
Fullt verð 246.581 kr.
Tilboðsverð
*Live pakkinn er ætlaður fyrir
grunnútgáfu Auris og Auris TS.
Óskir um Live pakka fyrir aðrar
útgáfur bílanna kalla á sérsniðna
aðlögun í samráði við söluráðgjafa.
SPURNING DAGSINS
LÖGREGLUMÁL „Mann grunar að
það séu fleiri tilfelli,“ segir Ísa-
bella Theodórsdóttir, sem kveð-
ur hundinn Myrkva, sem talinn
er hafa lagst á lömb í síðustu
viku, hafa ráðist á hund hennar
í fyrrasumar.
Ísabella var ásamt sínu fólki
í heimsókn á bæ nærri Flúðum
um verslunarmannahelgina í
fyrra. Með í för var Fox Ter-
rier-hundur fjölskyldunnar. Við
annað hús þar nærri var labra-
dorblendingurinn Myrkvi.
„Hann rýkur beint í okkar
hund án nokkurs aðdraganda
og læsir kjaftinum alveg yfir
bakið á honum, reisir hann upp
og skellir honum í jörðina. Hann
var bara að fara aflífa hund-
inn okkar,“ segir Ísabella, sem
kveður hundunum þá strax hafa
verið stíað í sundur.
Að sögn Ísabellu námu dýra-
læknisreikningar í kjölfarið
tugum þúsunda króna. Eigandi
Myrkva hafi ekki viljað taka
þátt í kostnaðinum. Því hafi
málið á endanum verið kært til
lögreglu.
Eigandi Myrkva, sem ekk-
ert vill láta hafa eftir sér undir
nafni, segir kæru Ísabellu hafa
verið ástæðulausa. Aðkomu-
hundur hafi komið askvaðandi
að húsinu og lent saman við hans
hund líkt og gangi og gerist.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær voru hundarnir
tveir hvor úr sínu húsinu á tví-
býli í nágrenninu og hafa þeir
iðulega verið í slagtogi saman.
Um er að ræða jörð austan
Stóru-Laxár en Ósabakki stend-
ur handan árinnar. Yngri hund-
urinn var handsamaður af hús-
freyjunni á Ósabakka og síðan
aflífaður en hinn hundurinn,
sem talinn er vera Myrkvi,
komst undan.
Eigandi Myrkva segist alls ekki
viss um að Myrkvi hafi átt þátt í
atlögunni að lömbunum enda sé
hann ekki árásargjarn. Þegar
lögreglu hafi borið að garði hafi
hundurinn legið þurr og hreinn
á hlaðinu sem bendi til þess að
hann hafi ekki lent í nokkru mis-
jöfnu. Hann hafi þó verið aflífað-
ur í gær því ekki væri hægt að
vera í óvissu með hundinn.
Lögreglan á Selfossi staðfestir
að Myrkvi sé dauður. Málið frá
í fyrra hafi ekki verið rannsak-
að vegna anna í öðrum málum.
Nú verði bæði málin rannsökuð
ofan í kjölinn.
Séu efasemdir eiga nda
Myrkva réttar gengur stórtæk-
ur dýrbítur enn laus við Stóru-
Laxá.
gar@frettabladid.is
Meintur lambabítur
áður í lögreglumáli
Eigandi labradorblendingsins Myrkva sem talið er að hafi, ásamt öðrum hundi,
drepið fimm lömb á bænum Ósabakka í síðustu viku var kærður vegna árásar á
minni hund í fyrra. Lögreglan komst ekki í að rannsaka málið.
SVÍÞJÓÐ, AP Tomas Löfven og félagar
hans í sænska Sósíaldemókrata-
flokknum hafa átt í stjórnarmynd-
unarviðræðum við Umhverfis-
flokkinn, en hafa ákveðið að hafa
Vinstriflokkinn ekki með í væntan-
legri minnihlutastjórn.
Þetta er gert til þess að eiga auð-
veldara með að starfa með stjórnar-
andstöðu hægri flokkanna.
Hvorug fylkingin hlaut hreinan
meirihluta í þingkosningum í Sví-
þjóð á sunnudaginn, þar sem hinir
umdeildu Svíþjóðardemókratar
fengu þrettán prósent atkvæða og
koma þannig í veg fyrir að hægt
verði að mynda meirihlutastjórn
hvort sem er á hægri eða vinstri
vængnum.
Jonas Sjöstedt, leiðtogi Vinstri-
flokksins, var heldur undrandi á
þessari stöðu mála, þar sem hann
hafði reiknað með að vinstri flokk-
arnir þrír myndu reyna að mynda
minnihlutastjórn saman.
Sjöstedt hét því að flokkurinn
yrði öflugur í stjórnarandstöðu.
- gb
Sósíaldeómkratar og Umhverfissinnar reyna myndun minnihlutastjórnar:
Vinstriflokkurinn skúffaður
DANMÖRK Tveir menn urðu fyrir
skotum byssumanns í réttarsal
í Kaupmannahöfn í gærmorgun,
skammt frá Ráðhústorginu. Annar
þeirra lést af völdum skotsára.
Árásarmaðurinn er 67 ára gam-
all, afi barns sem forræðisdeila
stendur um. Sá sem særðist er 31
árs gamall faðir barnsins, sem
um er deilt, og þar með barnsfaðir
dóttur árásarmannsins.
Skotvopnið var að sögn lög-
reglu riffill, og hafði verið sagað
framan af hlaupinu. Árásarmað-
urinn hleypti af nokkrum skot-
um. Hann var handtekinn stuttu
síðar. - gb
Morð í Kaupmannahöfn:
Afinn sekur
um skotárás
HEILSA Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in og ráðgjafar stjórnvalda á Eng-
landi hafa mælt með því að aukin
áhersla verði lögð á að draga úr
sykurneyslu almennings. Mælt
er með því að neyslan verði fimm
prósent af orkuinntöku á hverjum
degi en hún hefur hingað til verið
tíu prósent.
Í rannsókn sem var birt í tíma-
ritinu BMC Public Health Journal
er gengið skrefinu lengra og lagt
til að viðmiðið verði ekki meira
en þrjú prósent, samkvæmt frétt
BBC. Vísindamennirnir segja
þetta nauðsynlegt ef tekið er mið
af slæmum heilbrigðis- og fjár-
hagslegum áhrifum af auknum
tannskemmdum. - fb
Ráðleggingar vísindamanna:
Vilja enn minni
sykurneyslu
Björk, eru borgarstarfsmenn
eitthvað slappir?
„Stundum. Samt er mikill styrkur í
borgarstarfsmönnum.“
Björk Vilhelmsdóttir er formaður velferðarráðs
Reykjavíkur. Veikindi hjá starfsmönnum vel-
ferðarsviðs borgarinnar kostuðu borgina yfir
hundrað milljónir króna á fyrri hluta ársins.
MENNTUN Kristín Ingólfsdóttir
hyggst ekki sækjast eftir endur-
kjöri sem rektor Háskóla Íslands
þegar skipunartími hennar renn-
ur út á næsta ári.
Kristín segir tíma sinn hafa
verið bæði sérstakan og erfiðan
vegna efnahagshrunsins. „Þrátt
fyrir miklar skerðingar á fjár-
framlögum til skólans þá hafa
síðustu ár engu að síður verið
mikill sóknartími,“ segir Krist-
ín.
Árið 2006 setti skólinn sér það
markmið að komast í hóp hundr-
að bestu háskóla í heimi og gerði
um það samning við stjórnvöld.
„Svo kom efnahagshrunið og
samningurinn við stjórnvöld var
blásinn af. Við héldum hins vegar
okkar striki og héldum okkur við
stefnuna sem sett hafði verið,“
segir Kristín. Háskóli Íslands
fór hæst í 269. sæti á lista Times
Higher Education yfir 400 bestu
háskóla í heimi sem Kristín segir
hafa verið algjört kraftaverk í
ljósi efnahagshrunsins. - skh
Rektor Háskóla Íslands segir hrunið hafa tekið á:
Kristín hættir í vor
Í VIÐRÆÐUM Forystumenn Umhverfis-
flokksins hafa verið í viðræðum við
Sósíaldemókrata. NORDICPHOTOS/AFP
SKOTÁRÁS Lögregla fyrir utan dómhús fóg-
etaréttarins í Kaupmannahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hann var bara að fara
aflífa hundinn okkar.
Ísabella Theodórsdóttir.
MIKIÐ TJÓN Bændurnir á Ósabakka vita ekki enn hversu mikið tjón þeirra verður
vegna hundaárásarinnar í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REKTOR Kristín Ingólfsdóttir hyggst ekki
sækjast eftir endurkjöri til embættis
rektors Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN