Fréttablaðið - 17.09.2014, Side 6
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
UMHVERFISMÁL Risahvönnin bjarn-
arkló verður sett á lista yfir
ágengar plöntur í Mosfellsbæ.
Umhverfisstjóri og garðyrkjustjóri
bæjarins eiga enn fremur að láta
útbúa fræðsluefni um einkenni og
skaðsemi Bjarnarklóar.
Málið má rekja til erindis eins
íbúa bæjarins, Magnúsar Guð-
mundssonar, sem vakti athygli á
útbreiðslu Bjarnarklóar við Reykja-
veg. Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar
í bæjarstjórn lagði til að bærinn
léti „útbúa auglýsingu með mynd af
bjarnarkló til að vekja athygli íbúa
á skaðsemi og útliti plöntunnar og
birta í Mosfellingi og á vef Mosfells-
bæjar.“
„Þrátt fyrir þá jákvæðu viðleitni
áhaldahússins að bregðast strax við
ábendingum Magnúsar Guðmunds-
sonar hefur útbreiðsla hennar ekki
verið kortlögð á heildstæðan hátt,
heldur einungis stöku plöntu verið
eytt,“ bókaði fulltrúi Íbúahreyf-
ingarinnar sem vildi að útbreiðsla
bjarnarklóar yrði kortlögð og henni
eytt. - gar
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð
1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna.
Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er
að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða
munninn eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf,
sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
DÓMSMÁL Tvær konur krefja
Gísla Frey Valdórsson, fyrrver-
andi aðstoðarmann Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanríkisráð-
herra, um samtals sjö milljón-
ir króna vegna upplýsinga sem
komu fram í minnisblaði innan-
ríkisráðuneytisins um hælisleit-
andann Tony Omos. Þetta kemur
fram í framhaldsákæru sem rík-
issaksóknari lagði fram við þing-
festingu í Héraðsdóm Reykjavík-
ur í gær.
Gísli Freyr er ákærður fyrir
brot gegn þagnarskyldu í opin-
beru starfi. Í ákærunni er Gísli
Freyr sakaður um að hafa látið
„óviðkomandi í té“ minnis-
blað um Tony Omos nítjánda og
tuttugasta nóvember 2013. Að
morgni tuttugasta nóvember birt-
ust í fjölmiðlum, meðal annars í
Fréttablaðinu, upplýsingar úr
minnisblaðinu.
Gísli Freyr segist hins vegar
saklaus af öllum ákæruliðum
og vill að málinu verði vísað frá
sökum þess hve óskýr ákæran
sé. Gísli krefst þess einnig að fá
allan sakarkostnað greiddan úr
ríkissjóði.
Í greinargerð sem lögfræðing-
ur Gísla Freys hefur unnið segir
að málsvörn verði mjög erfið þar
sem ekki sé tekið fram hverj-
um Gísli Freyr á að hafa afhent
minnisblaðið eða með hvaða
hætti.
Minnisblaðið var síðast skoð-
að á opnu drifi klukkan 05.39 að
morgni tuttugasta nóvember þegar
Gísli Freyr hafði ekki aðgang að
drifinu samkvæmt greinargerð
verjanda Gísla Freys.
Gísli Freyr viðurkennir að hafa
rætt við starfsmenn Fréttablaðs-
ins og Morgunblaðsins innan
þess tímaramma sem tiltekinn
er í ákærunni. Þau samskipti
séu hins vegar eðlilegur hluti
af starfi aðstoðarmanns ráð-
herra. Einnig hafi aðrir starfs-
menn innanríkisráðuneytisins
getað komið minnisblaðinu í fjöl-
miðla þar sem minnisblaðið hafi
legið í opnu drifi í innanríkis-
ráðuneytinu. Minnisblaðið hafi
síðast verið skoðað á drifinu
klukkan 05.39 að morgni þegar
Gísli Freyr hafði ekki aðgang að
drifinu samkvæmt því sem fram
kemur í greinargerðinni. Frávís-
unarkrafan verður tekin fyrir 30.
september næstkomandi.
Við þingfestingu var einnig
birtur vitnalisti í málinu en alls
munu 14 manns bera vitni í mál-
inu. Meðal vitna verða Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanrík-
isráðherra, Ragnhildur Hjalta-
dóttir ráðuneytisstjóri, Þórey
Vilhjálmsdóttur, aðstoðarmaður
Hönnu Birnu, Einar Steingríms-
son, stærðfræðingur og blogg-
ari, Jón Bjarki Magnússon, blaða-
maður á DV, og Mörður Árnason,
varaþingmaður Samfylkingar-
innar.
ingvar@frettabladid.is
Krefjast sjö milljóna
í bætur af Gísla Frey
Tvær konur krefja fyrrverandi aðstoðarmann innanríkisráðherra um sjö millj-
ónir króna í miskabætur vegna upplýsinga um þær sem lekið var úr ráðuneytinu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir verður meðal vitna í málinu sem þingfest var í gær.
ÍRAK, AP Nokkur fjöldi Kúrda hefur
farið frá Evrópulöndum til Íraks
að berjast gegn vígasveitum Ísl-
amska ríkisins, sem meðal annars
hafa herjað á þarlenda Kúrda.
„Ég er reiðubúinn til að deyja
fyrir málstað Kúrda,“ segir Shaho
Pirani, þrítugur Kúrdi sem býr í
Danmörku en hyggur nú á ferða-
lag til Íraks. Hann flúði frá Íran
ásamt eldri bróður sínum árið
1991 og telur sér skylt að hjálpa
löndum sínum.
Talið er að um tvö þúsund Evr-
ópubúar hafi gengið til liðs við
vígasveitirnar, sem herjað hafa af
mikilli grimmd á íbúa í Sýrlandi
og Írak. Stjórnvöld í Evrópuríkj-
um hafa haft miklar áhyggjur af
þessu og óttast að þessir menn
muni snúa aftur síðar meir til að
berjast fyrir málstað herskárra
íslamista í Evrópu.
Engar tilraunir hafa hins vegar
verið gerðar til þess að koma í veg
fyrir að Kúrdar haldi til Íraks til
þess að taka þátt í átökunum þar.
„Leyniþjónusta okkar mun frek-
ar einbeita sér að hópum á borð við
Íslamska ríkið en ekki fólki sem
ætlar að verjast Íslamska ríkinu,“
sagði Trond Hugubakken, talsmað-
ur norsku leyniþjónustunnar.
- gb
Kúrdar í Evrópuríkjum halda til Íraks að hjálpa þarlendum Kúrdum:
Berjast gegn vígasveitunum
Á LEIÐ TIL ÍRAKS Shao Pirani tók þátt
í æfingabúðum Kúrda í Írak í sumar og
bíður nú eftir símtali til þess að halda
þangað aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Í HÉRAÐSDÓMI Gísli Freyr Valdórsson segist saklaus og vill að málinu verði vísað
frá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Í hvaða bæjarfélagi eru plastpokar
svo gott sem útlægir?
2. Hvað er fyrrverandi aðstoðarmaður
innanríkisráðherra með í laun?
3. Hvernig fór leikur Fram og Fjölnis í
úrvalsdeild karla í fótbolta?
SVÖR
1. Stykkishólmi. 2. Tæpar 900 þúsund
krónur. 3. 3-1 fyrir Fjölni.
Íbúahreyfingin vildi láta eyða bjarnarkló úr Mosfellsbæ en bæjarstjórnin gengur ekki svo langt:
Bjarnarkló lýst ágeng planta í Mosfellsbæ
BJARNARKLÓ Í
HAUSTBÚNINGI
Eitruð risa-
hvönn sem getur
valdið gríðarlegum
útbrotum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Meðal vitna verða Hanna
Birna Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra og Þórey Vil-
hjálmsdóttur, aðstoðarmaður
Hönnu Birnu
VEISTU SVARIÐ?