Fréttablaðið - 17.09.2014, Page 18
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, vinur og afi,
JÓHANNES ÞÓR HERMANNSSON
Ásgarði, Hjalteyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
15. september. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. september kl. 13.30.
Jarðsett verður í Möðruvallaklausturskirkjugarði.
Sverrir Jóhannesson Guðrún Birgisdóttir
Hermann Þór Jóhannesson
Anna Guðrún Jóhannesdóttir
Bertha Svala Bruvik
og afabörn.
Ástkær faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN STEFÁN SIGURBJÖRNSSON
Víðilundi 24, Akureyri,
lést á Kristnesi 12. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
23. september klukkan 13.30. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Stefán Már Stefánsson Lára Margrét Traustadóttir
Salbjörg J. Thorarensen
Jón Höskuldsson
Marín Hallfríður Ragnarsdóttir Kolbeinn Friðriksson
Bogi Rúnar Ragnarsson
Magnea Hrönn, Særún, Kári og Magnea.
Ástkær bróðir minn, stjúpfaðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORGILS STEFÁNSSON
til heimilis að Hlévangi í Keflavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
sunnudaginn 14. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Stefán Stefánsson
Birgir Kristjánsson
Sigríður Kristjana Kristjánsdóttir
Guðný Sigurðardóttir Einar Guðberg Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1630 Borgin Boston í Bandaríkjunum er stofnuð af breskum
landnemum.
1631 Gústaf Adolf 2. Svíakonungur vinnur sigur á hersveitum
Tillys í orrustunni við Breitenfeld.
1844 Fyrstu alþingiskosningar eru haldnar í Reykjavík. Svein-
björn Egilsson hlýtur flest atkvæði, 15, en neitar þingsetu og
því verður Árni Helgason þingmaður með 11 atkvæði.
1896 Eldur sést í hafi frá Landeyjum, suðvestur af Hellisey.
1966 Vegur fyrir Ólafsfjarðarmúla er formlega opnaður.
1988 Sumarólympíuleikar eru settir í Seoul í Suður-Kóreu.
1992 Landsbankinn tekur eignir Sambands íslenskra samvinnu-
félaga upp í skuldir og innlimar þar með Samvinnubankann.
„Þetta er krefjandi en samt líka mjög
gefandi og það er ástæða þess að ég
endist svona lengi.“ Þetta segir Jurgita
Milleriene um starf sitt sem skóla-
stjóri litháíska móðurmálsskólans Þrír
litir síðustu tíu ár.
Jurgita stofnaði skólann fyrir tíu
árum í Alþjóðahúsinu og hefur kennt
litháískum börnum móðurmál sitt í
sjálfboðavinnu síðan. Nú fer kennslan
fram í Landakotsskóla á sunnudögum,
frá tólf til hálf tvö, og Jurgita segir
samstarfið við kirkjuna og prestinn
mjög gott. En af hverju heitir skólinn
Þrír litir? Skýringin er sú að litháíski
fáninn er gulur, grænn og rauður og
nafn skólans tengist þessum þremur
litum.
Jurgita er leikskólakennari í
Reykjanesbæ að atvinnu og þarf því
að keyra til Reykjavíkur á hverjum
sunnudegi frá september fram á vor
að undanskildum jóla- og páskafrí-
um. „Já, ég þarf að vakna snemma
á sunnudögum,“ segir hún glaðlega.
Tekur líka fram að kennarar skólans
séu fimm og allir með BA-háskóla-
gráðu, auk þess að hafa sótt ýmiss
konar námskeið bæði hér á landi og
erlendis. „Starfsemi skólans blómstr-
ar og kennslan er vel skipulögð og fag-
leg.“
Nemendurnir í Þremur litum eru
frá höfuðborgarsvæðinu og sveitar-
félögum í kring, svo sem Akranesi,
Mosfellsbæ, Selfossi og Reykjanesbæ,
að sögn Jurgitu. „Þegar við byrjuðum
voru nemendurnir 35 en þeim hefur
fjölgað og eru nú hátt í fimmtíu. Þeim
er skipt í fimm aldurshópa frá tveggja
til tíu ára og eldri. En auðvitað eru
börnin misjafnlega á vegi stödd í sínu
móðurmáli, það fer ekki bara eftir
aldri. Sum skilja bara málið en önnur
geta talað, skrifað og lesið og því er
kennslan einstaklingsmiðuð í raun og
veru.“
Árið 2008 var stofnað Félag Litháa á
Íslandi http://www.ltis.org/ og þá varð
skólinn Þrír litir hluti af starfsemi félags-
ins. Þess má geta að sýning um Litháen
og litháíska móðurmálsskólann verður
opnuð í Kringlusafni Borgarbókasafns-
ins þann 20. september. gun@frettabladid.is
Skólinn heitir eft ir
litháísku fánalitunum
Litháíski móðurmálsskólinn Þrír litir er tíu ára um þessar mundir því honum var hleypt af
stokkunum í september 2004. Stofnandi hans og stjórnandi alla tíð er Jurgita Milleriene.
„Það eru fimmtíu og tveir einstaklingar sem deyja hér
á landi úr ristilkrabba á ári og ég er sannfærður um að
hægt er að lækka þá tölu með forvörnum eins og skimun
og ristilspeglun,“ segir Jóhannes V. Reynisson, forsprakki
átaksins Bláa naglans. Hann er að hrinda af stað lands-
söfnun til ágóða fyrir krabbameinsrannsóknir og for-
varnir. Að þessu sinni er ætlunin að safna fé fyrir skim-
unarprófi sem verður sent til allra sem verða fimmtugir á
árinu 2015 og árlega eftir það til 2017 í það minnsta.
Að auki verður haustráðstefna á vegum Bláa naglans
þann 20. september á Grand Hóteli í Reykjavík þar sem
færustu sérfræðingar halda erindi um ýmislegt varðandi
rannsóknir og meðferðir á krabbameini hérlendis – „á
mannamáli,“ lofar Jóhannes. Ráðstefnan er opin almenn-
ingi án endurgjalds, meðan húsrúm leyfir, en nauðsynlegt
er að skrá þátttöku á heimasíðu Bláa naglans www.blai-
naglinn.is . Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðunni.
En af hverju heitir átakið Blái naglinn? „Ég fór sjálfur
undir hnífinn árið 2012 og eftir aðgerðina fór ég til Dubai
af því sonur minn var þar fimleikaþjálfari. Ég var þarna í
hálfan mánuð í afslöppun og varð hugsað til bleiku slauf-
unnar. En sagði við sjálfan mig: „Þú ert ekki slaufutýpa.““
lýsir Jóhannes. „Þegar ég kom heim úr hitanum syðra fór
ég beint í Húsasmiðjuna að kaupa mér sex tommu nagla og
spreyjaði þá bláa. Svona byrjaði þetta.“ - gun
Safnar fé fyrir skimunarprófi
Samtökin Blái naglinn standa fyrir landssöfnun til fj áröfl unar fyrir skimunarprófi sem er
forvörn gegn ristilkrabba. Safnað verður 18. til 21. september.
NAGLI Jóhannes hvetur landsmenn til að taka vel á móti söfnunar-
fólki um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óperan Vald örlaganna eftir Guiseppe
Verdi var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu
þennan dag árið 1994. Kristján Jóhanns-
son og Elín Ósk Óskarsdóttir fóru með
aðalhlutverkin sem Alvaro og Leonora
og hlutu lof fyrir sína frammistöðu.
Kristján birtist stökkvandi yfir vegg inn
á sviðið og var fagnað með lófataki.
Þriðja meginhlutverkið, Carlo, sem var
bróðir Leonoru, var í höndum Norð-
mannsins Trond Halstein Moe og þóttu
raddir hans og Kristjáns fara einstaklega
vel saman.
Elsa Waage var flott sem spákonan
Preziosilla. Viðar Gunnarsson var í
hlutverki ábótans með sína virðulegu
bassarödd og Bergþór Pálsson í hlutverki
munksins Melitone sem söng lítið en lék
þeim mun meira. Það var um það bil eini
gamansemisljósgeislinn í því myrkri illra
örlaga sem óperan fjallar um, samkvæmt
dómi Sigurðar Steinþórssonar í Tímanum.
ÞETTA GERÐIST: 17. SEPTEMBER 1994
Óperan Vald örlaganna frumsýnd
VIÐ SKÓLA-
SETNINGU 2014
Jurgita bar fram
fína köku og
mikið var um
dýrðir þegar
skólinn var settur
1. september.
Sum skilja bara málið
en önnur geta talað,
skrifað og lesið og því er
kennslan einstaklings-
miðuð í raun og veru.
Jurgita Milleriene
skólastjóri