Fréttablaðið - 17.09.2014, Page 22
| 4 17. september 2014 | miðvikudagur
maður var fjármálaráðherra þegar
Bankasýslan var stofnuð. Hann
segir að á þeim tíma hafi verið
miklar og heitar umræður um
stofnunina í þinginu. Hann bendir
á að lögin hafi verið sett til fi mm
ára árið 2009. Á þeim tíma hafi
ekki legið fyrir hvort kröfuhafar
veldu þann kost að fjármagna
eitthvað af bönkunum. „Það gat
alveg stefnt í það að ríkið ætti
mest allt bankakerfi ð í landinu,“
segir Steingrímur. Á þessum tíma
hafi oft verið sett lög með fi mm ára
gildistíma, þegar menn vissu ekki
hvernig mál myndu þróast.
Steingrímur segir að þótt lög hafi
upphafl ega verið sett með vissan
gildistíma séu það ekki endilega
efnisleg rök fyrir því að þau falli
úr gildi. „Það má auðvitað færa rök
bæði með og á móti því að viðhafa
þetta fyrirkomulag. En ég hefði
verið sáttur við það að þetta yrði
framlengt um einhvern tíma,“ segir
Steingrímur. Ljóst sé að stærstur
hluti Landsbankans verði áfram í
eigu ríkissjóðs.
Mögulegt að ráðuneytið taki við
Steingrímur segir að það séu tveir
kostir í stöðunni. Annars vegar sá
að Bankasýslan haldi áfram utan
um þessa eignarhluta. Hins vegar
sá að stofnuð verði sjálfstæð eining
innan fjármálaráðuneytisins sem
sé tilbúin til þess að taka á móti
þessum hlutum. Þessi sama eining
innan ráðuneytisins gæti þá hald-
ið utan um aðrar eignir ríkisins, til
dæmis í Landsvirkjun.
Hann segist þó ekki vera viss
um að ráðuneytið sé skipulagt með
það í huga að slík eining sé stofnuð
og bendir á að það hafi byggst upp
fagþekking í Bankasýslunni sem sé
mikilvæg.
Fjármálaeftirlitið gæti tekið við
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar og fyrrver-
andi efnahags- og viðskiptaráð-
herra, segist vilja bíða og sjá hvað
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir um málið
og hvernig stefnumörkunin verð-
ur. „Við vildum tryggja faglega
umgjörð utan um þetta eignar-
hald og hafa það armslengd frá
hinu pólitíska valdi,“ segir Árni
Páll. Hann segir að á meðan ríkið
eigi eignarhluti í bönkunum sé alls
ekki farsælt að stjórnmálamenn
hafi beint boðvald yfi r þeim sem
fari með eignarhlutina. „Það þarf
þá að hafa eitthvað til að leysa
Bankasýsluna af,“ segir hann.
Hann bendir á að ein hugmynd
sem rædd hafi verið sé að tengja
hana með ákveðnum hætti Fjár-
málaeftirlitinu og hún yrði þá
starfandi til langframa ef ríkið
þyrfti að stíga inn til að bjarga
bönkum. „Það er leið sem Danir
hafa farið,“ segir hann. Með þess-
ari leið hafi Bankasýslan það hlut-
verk að taka yfi r banka í vanda til
að tryggja það að innstæður fáist
greiddar. „Ég held að við þurfum
að hafa umgjörð sem getur tekið
við þeim aðstæðum,“ segir Árni
Páll.
Aðalmálið sé að Íslendingar
séu brenndir af því fyrirkomulagi
þegar stjórnmálamenn gátu haft
beint boðvald yfi r bönkunum og
það beri að varast. „En við erum
ekkert bundin við að þetta þurfi að
heita Bankasýsla ríkisins,“ segir
Árni Páll.
Ekki náðist tal af Bjarna Bene-
diktssyni, fjármála- og efnahags-
ráðherra, við vinnslu þessarar
fréttar. Pétur Blöndal, varafor-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, segir málið ekki
hafa verið rætt í þingfl okknum.
„Við erum ekki komin það langt
að við séum að ræða mál sem ekki
er komið fram,“ segir Pétur. Hann
segir verulegar eignir í bönkun-
um. Pétur segist ekki hafa mynd-
að sér afstöðu til málsins. Hann
muni kynna sér frumvarpið þegar
það kemur fram. „Auðvitað er það
mín bjargfasta skoðun að ríkið
eigi sem minnst að vera að vasast
í svona viðskiptum,“ segir Pétur.
Því sé eðlilegast að selja eignirnar
rólegri sölu.
BANKAMÁL
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Til stendur að leggja niður Banka-
sýslu ríkisins um áramótin. Til þess
að slíkt sé hægt þarf að fella úr gildi
lög um Bankasýsluna og breyta
lögum númer 155 frá 2012 um sölu-
meðferð eignarhluta ríkisins í fjár-
málafyrirtækjum. Í þingmálaskrá
kemur fram að frumvarpið verður
unnið í samráði við Bankasýslu rík-
isins. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri
Bankasýslunnar, segir að fjármála-
ráðuneytið hafi ekki haft samband
vegna þess. „Við höfum ekki enn
fengið beiðni um gerð slíks frum-
varps,“ segir Jón Gunnar.
Í ársskýrslu Bankasýslunnar
sem gefi n var út í júní kemur fram
að hún fer með eignarhluti tveggja
opinberra aðila. Hún fer með hlut
Ríkissjóðs Íslands í viðskiptabönk-
um og sparisjóðum og hlut Eign-
arhluta ehf. í Landsbankanum,
sem stofnunin fékk til umsýslu við
útgáfu skilyrts skuldabréfs Lands-
bankans.
Sextán prósent af eignunum
Bankasýslan heldur núna utan um
eignarhluti ríkissjóðs í bönkum
og sparisjóðum. Miðað við ríkis-
reikning 2012 fór Bankasýslan með
12,6% af eignum ríkisins en í árs-
lok 2013 um 15,5 prósent. Eign-
irnar nema 164,5 milljörðum, en
helstu eignir eru 97 prósenta hlut-
ur í Landsbankanum, 13 prósenta
hlutur í Arion banka og fi mm pró-
senta hlutur í Íslandsbanka. Aðrar
eignir eru um það bil helmingshlut-
ur í Sparisjóði Norðfjarðar, 79,2
prósenta hlutur í Sparisjóði Norð-
urlands og 55,3 prósenta hlutur af
stofnfé Sparisjóðs Vestmannaeyja.
Bankasýslan er ekki á fjárlög-
um næsta árs, eins og kynnt var
í síðustu viku. Hún fékk 97 millj-
ónir króna á fjárlögum þessa árs
en fær ekkert á næsta ári. Fram
kom í markmiðalýsingu við stofn-
un Bankasýslunnar árið 2009 að
hún eigi að starfa í fi mm ár. Áætl-
anir gerðu ráð fyrir að þá yrði
búið að selja þær
eignir sem hún
heldur utan um
eða meirihluta
þeirra.
Jón Gunnar
sagði í samtali
við VB.is á dög-
unum að hann
hefði ekki búist
við því að Bankasýslan yrði á fjár-
lögum. Stofnunin eigi nóg af ónýtt-
um fjárlögum fyrir rekstri til ára-
móta. Verði hún lögð niður hverfi
ekki verkefnin heldur færist þau
annað.
Deilur um stofnunina
Steingrímur J. Sigfússon alþingis-
Óvíst hvað tekur við Bankasýslunni
Bankasýsla ríkisins er ekki á fjárlögum. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir mögulegt að
FME taki við verkefnunum. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir mögulegt að séreining
innan fjármála- og efnahagsráðuneytis taki við. Aðalmálið sé að bankarnir verði lausir við pólitísk afskipti.
FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ Ekki er gert ráð fyrir því að Bankasýslan verði á fjárlögum næsta árs miðað við fjárlagafrumvarpið eins og það lítur út við fyrstu umræðu. Skiptar skoðanir eru á því
hvað geti tekið við stofnuninni ef ákveðið verður að leggja hana niður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
PÉTUR H.
BLÖNDAL
Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjár-
málaráðherra. Hún var stofnuð með lögum nr. 88/2009 sem tóku gildi í ágúst
2009. Stjórn Bankasýslunnar var skipuð í september 2009, en stofnunin tók
til starfa í janúar 2010.
Í eigendastefnu sem samþykkt var 2009 segir að eftir þær breytingar
sem hafi orðið á íslenskum fjármálamarkaði síðan haustið 2008 eigi ríkið
nú eignarhluti í sumum stærstu fjármálafyrirtækjum landsins. Fyrir dyrum
standi að byggja upp heilbrigt og öflugt fjármálakerfi sem þjóni hagsmunum
Íslendinga. Endurskipulagning fjármálakerfisins verði krefjandi verkefni. Til
að hún geti gengið farsællega fyrir sig sé mikilvægt að ríkið komi fram sem
upplýstur og stefnumarkandi eigandi í þessum fyrirtækjum og ræki eiganda-
hlutverkið af kostgæfni. „Ríkið þarf að vera trúverðugur eigandi fjármála-
fyrirtækja og hlutverk þess hafið yfir vafa um pólitísk afskipti af daglegum
ákvörðunum fyrirtækjanna. Þau markmið sem nú eru sett varðandi eignar-
hald, skipulag, stjórnhætti og áform um hvernig farið verður með eignarhluta
geta haft afgerandi áhrif á hvernig íslenskur fjármálamarkaður þróast á næstu
árum, segir í stefnunni.
Meginmarkmið með eign ríkisins á fjármálamörkuðum eru þrjú:
Að stuðla að uppbygginu heilbrigðs og öflugs fjármálakerfis sem þjónar
hagsmunum íslensks samfélags
Að byggja upp traust og trúverðugleika á íslenskum fjármálamarkaði.
Að ríkið fái arð af því fé sem það leggur til íslenskra fjármálafyrirtækja.
Eignarhaldið sé hafið yfir allan vafa um
afskipti stjórnmálamanna
Iðnaðarhúsnæði til leigu
Óskum eftir leigjanda að um 200 fermetra iðnaðarhúsnæði
að Malarhöfða 2. Tvær rennihurðir eru að húsnæðinu, sem
eru 4.22 á hæð og 4.20 á breidd.
Verð er um 290 þúsund. Húsnæðið er laust strax.
Leigutími samkomulag en að lágmarki til 31. maí 2016.
Áhugasamir hafi samband við Viktor í síma 696-9420 eða
sendist til Fréttablaðsins á netfangið: box@frett.is merkt
„Malarhöfði“