Fréttablaðið - 17.09.2014, Qupperneq 30
KYNNING − AUGLÝSINGRaki&mygla MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 20144
RÁÐ TIL VARNAR MYGLU
■ Þegar verið er að elda verður
gufan að komast út, opnið
glugga eða komið fyrir
gufugleypi.
■ Hafið gluggann opinn eða
gufugleypinn í gangi í allt að
tuttugu mínútur eftir að elda-
mennskunni lýkur.
■ Hafið lokið á pottum og
pönnum meðan eldað er og
látið ekki vatn sjóða að óþörfu.
■ Lokið eldhús- og baðherbergis-
dyrum meðan eldað er eða
farið er í bað eða steypibað svo
gufan dreifi sér ekki inn í önnur
kaldari herbergi.
■ Að lokinni matseld og baði skal
opna milli herbergja svo loft
streymi á milli.
■ Hafið glugga í hverju herbergi
opna í einhvern tíma á hverjum
degi til að loftskipti verði í íbúð-
inni.
■ Þurrkið strax upp alla bleytu og
raka sem myndast innanhúss.
■ Tryggið að loft geti leikið um
húsgögn og skápa. Hafið til
dæmis örlítið bil milli veggjar
og skápa og athugið að út-
veggir eru kaldari en innveggir.
■ Þurrkið þvott utandyra þegar
hægt er.
■ Lokið opnum fiskabúrum og
hafið í huga að gæludýr og
pottablóm gefa frá sér raka.
www.homesforharingey.org
www.ust.is
MYGLAN FJARLÆGÐ
Mygla vex aðeins þar sem raki
er nægur. Þegar mygla kemur
í ljós þarf fyrst að finna hvaðan
rakinn kemur en aðalorsakir hans
eru lekar vatnslagnir, niðurföll
eða flóð upp úr niðurföllum, lek
þök, stíflaðar rennur, leki með
gluggum, brotnar lagnir og biluð
loftræstikerfi. Þetta kemur fram á
vef Umhverfisstofnunar, ust.is.
Þegar tekist hefur að finna upp-
tök raka og draga úr honum eða
eyða, er næsta skref að ákveða
hvort hægt sé að fjarlægja mygl-
una án aðstoðar fagmanna. Þegar
myglu má rekja til byggingargalla
og/eða mygla er í byggingarefni,
er ráðlegt að leita til fagmanna. Ef
mygluvöxt má rekja til rakaþétt-
ingar, mygluflöturinn er minni en
einn fermetri og stafar ekki frá
frárennslislögnum eða niður-
föllum geta íbúar líklega sjálfir
leyst vandann með því að fara
eftir leiðbeiningum sem finna
má á vef Umhverfisstofnunar
eða leiðbeiningum annarra sem
þekkingu hafa á þessum málum.
SVEPPAMYNDUN Í ÞVOTTAVÉLUM
Á síðu Leiðbeiningarstöðvarinnar, www.
leidbeiningastod.is, er fjallað um sveppa-
myndun í heimilistækjum, til dæmis í
þvottavélum. Þar segir að sveppamyndun
í þvottavélum leyni sér ekki, það komi
vond lykt af þvottinum og sveppurinn
sé sýnilegur með berum augum t.d. í
sápuhólfinu. Sveppurinn þrífst í raka og
er talið að aukin notkun mýkingarefna og
þvottaefna með ensímum eigi þar hlut
að máli.
Gefin eru ráð á síðunni um hvernig eigi
að takast á við mygluna:
■ Byrja að skoða hvort dökkgrátt slím
(gulleitt í byrjun) er í sápuhólfi vélarinnar.
Ef svo er þá er best að byrja á að þrífa
hólfið, taka það í sundur ef hægt er. Nota
óblandað Rodalon (fæst í lyfjaverslunum)
sem sett er í skál/fat og og nota bursta við
verkið (flöskubursta) og fara vel í öll horn
hólfsins. Einnig er hægt að setja efnið
í úðabrúsa, úða vel í hólfið og skrúbba
síðan. Gæta skal þess að nota gúmmí-
hanska við verkið. Taka síu eða sigti á
sama hátt. Nauðsynlegt er að þrífa einnig
gúmmíhring og gler í hurð vel. Helst með
óblönduðu efninu. Áhrifaríkast er að setja
Rodalon í sápuhólf og tóma tromluna,
stilla á 40°hita og láta vélina taka
inn á sig vatn smástund, slökkva
síðan á henni og láta standa í
henni yfir nótt. Kveikja á henni aftur
og láta ganga út.
■ Til að koma í veg fyrir sveppa-
myndun er mælt með því að þvo af
og til á suðu þar sem sveppamyndun
lifir ekki af slíkan hita. Þó þarf ávallt
að fylgjast með sápuhólfinu sem ekki
hitnar jafn mikið.
■ Góð regla er að að þurrka sápu-
hólf, gúmmíhring og gler eftir notkun
og skilja vélina eftir opna á milli þvotta.
20:05
MÁNUDAG
Gulli byggir eru þættir þar sem breytingar og lagfæringar á húsnæði eru mál málanna. Hér
fylgjumst við með lagfæringu á húsi í Stykkishólmi, færum eldhús í Langagerði, byggjum
garðhús í Grafarvogi, breytum baðherbergi á Dalvík, fylgjumst með heilu húsi rísa frá grunni
í Skerjafirði, svo eitthvað sé nefnt. Eitt verkefni verður tekið fyrir í hverjum þætti.
Gulli byggir á mánudögum!
Internet og heimasími fylgir SkemmtipakkanumFullt verð: 3.490 kr.
Sex sjónvarpsstöðvar, internet og heimasími í þrjú ár, Tónlist.is í þrjá mánuði
og aðild að Vild á aðeins 8.490 kr. Enginn binditími fyrir internet og heimasíma!
Ljóshraði og heimasími fylgir sjónvarpsáskrift í þrjú ár!
8.490 kr. + 0 kr. Innifalið er 10GB erlent niðurhal og 100 mínútur í heimasíma. Þriggja mánaða uppsagnarfrestur er á Skemmtipakkanum. Greiða þarf 2.610 kr. aðgangsgjald.