Fréttablaðið - 17.09.2014, Síða 33
7 | 17. september 2014 | miðvikudagur
ford.is
Ford Explorer 4WD 7 manna 3,5 TiVCT V6 290 hö bensín, 6 þrepa sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 12,4 l/100 km.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
KOMDU OG PRÓFAÐU
FORD EXPLORER
3,5 V6 290 HESTÖFL
9.350.000 KR.FRÁ
6 ÞREPA SJÁLFSKIPTUR
4WD 7 MANNA
Ford Explorer
7 manna lúxusjeppi
sjá um viðgerðir á bilunum um
borð eða fara með farþega til
tannlæknis ef þess þarf.“
Tækifærin sem í þessu felast
eru óendanleg. Björn segir fyr-
irtækið í samstarfi við nokkur
önnur um að koma íslenskum
vörum á framfæri í þessi skip.
„Við höfum búið til hugtak
sem kallast „Flavor of Iceland“
þar sem við viljum selja meira
af íslenskum afurðum, mat-
vælum eða öðru, meðal annars
íslenskt grænmeti og mjólkur-
afurðir, um borð í skipin. Stað-
an núna er sú að þau fylla sig
til dæmis í Kaupmannahöfn og
víðar í Evrópu en við viljum ná
að stíga inn í þessa þróun og ná
að koma íslensku afurðunum
um borð og kynna samkeppnis-
hæfni þeirra hvað gæði og verð
varðar. Það er ljóst að við höfum
margt að bjóða í þessu, eins og
til dæmis mjólkurafurðir, fi sk,
vatn og margt fl eira.“
Björn segir þetta ganga vel,
en það sé hins vegar langhlaup.
„Maður verður að skilja að
þetta er ekki spretthlaup til að
ná árangri í þessu. Það er svo-
lítið íslenska leiðin að halda að
maður vinni sigurinn á morgun
en það er ekki þannig í þessu.
Þessi iðnaður er íhaldssamur og
við gerum okkur grein fyrir að
það tekur tíma að byggja svona
upp.“
Miklar sveifl ur eru í ferða-
mannaiðnaðinum almennt eftir
árstíðum og Björn segir það
ekki síður eiga við um skemmti-
ferðaskipin.
„Skipin byrja að koma í maí
og klára sig af í lok september.
Kúfurinn og toppurinn er algjör-
lega þessir björtustu sumar-
mánuðir. Við höfum verið að sjá
meiri áhuga á vetrarmánuðun-
um en það eru þá frekar minni
skip sem eru að horfa til sér-
stakra ferða til norðurslóða og
annað slíkt. Það er aukinn áhugi
á slíku. En það verður aldrei
eins stórt og björtustu sumar-
mánuðirnir.“
Stjórnendur TVG-Zimsen sjá
einnig mikil tækifæri í auknum
áhuga á norðurslóðum.
„Við höfum verið að stilla
saman strengi með Grænlandi
og Færeyjum í samstarfi sem
kallast, NAA, North Atlantic
Agency, og viljum vinna með
þessum þjóðum að því að búa til
sameiginlega vöru sem hægt er
að bjóða þessum stóru útgerðum
sem sigla um öll heimsins höf.
Við viljum gera þetta að einu
markaðssvæði, Ísland, Færeyj-
ar og Grænland, og bjóða upp á
lausnir í því,“ segir Björn.
Aðspurður hvort Ísland geti
tekið endalaust við skipum á
stærð við íbúðarblokkir segir
Björn að hann telji að við eigum
að vera stórhuga.
„Þetta er kannski frekar
spurning um þolmörk ferða-
iðnaðarins í heild. Ég tel að við
eigum að vera stórhuga og halda
áfram að reyna að stækka okkur
meira. Við þurfum hins vegar að
setja okkur viðmið og skilgreina
vöruna sem við erum að bjóða
hér á landi.“
Björn segir TVG-Zimsen hafa
einbeitt sér vel að þessum iðn-
aði, það er að þjónusta skemmti-
ferðaskipin, sem er þó í raun
ekki beinn hluti af kjarnastarf-
semi félagsins.
„Við höfum gert það undan-
farin ár að styrkja og stækka
fyrirtækið í svokallaðri jaðar-
starfsemi, eins og skemmti-
ferðaskipunum. Annar fókus hjá
okkur er til dæmis að við erum
að sjá um mikið af kvikmynda-
verkefnum sem koma hingað,“
segir Björn og nefnir sem dæmi
þættina Game of Thrones og
Sense 8.
„Þetta er fl utningur á búnaði
til og frá landinu og öll umsýsla
hérlendis. Það er gríðarlegt
umfang í kringum þetta og þess-
ir kúnnar eru mjög kröfuharðir
og það skiptir máli að vera með
allar lausnir til taks sem hægt
er.“
Þrátt fyrir þessi jaðarverk-
efni sem TVG-Zimsen hefur
sinnt af krafti undanfarið eru
það alhliðaflutningslausnir í
innfl utningi sem er kjarnastarf-
semin.
„Við sinnum helst meðalstór-
um og smærri fyrirtækjum. Þar
erum við í svokölluðu safngáma-
kerfi í sjófrakt, bjóðum flug-
frakt, heilgámalausnir frá Asíu
og fl eira. Þetta eru svokallaðar
„door-to-door“ lausnir með toll-
afgreiðslu og akstri og er sniðið
að því sem innfl ytjandinn þarf.
Við komum inn í ráðgjöfi na og
klárum málið með öflugri og
persónulegri þjónustu fyrir við-
skiptavini okkar. Þetta er okkar
markaður.“
TVG-Zimsen varð til við samruna Tollvörugeymslunnar hf. og Skipaafgreiðslu
Jes Zimsens hf. Áður hafði Tollvörugeymslan hf. yfirtekið starfsemi Almennu
tollvörugeymslunnar hf. á Akureyri. Rætur fyrirtækisins liggja allt til ársins 1894
er Jes Zimsen stórkaupmaður hóf rekstur umfangsmikils verslunarfyrirtækis í
Reykjavík.
Skipaafgreiðsla var deild innan þess þar til hún varð sjálfstætt fyrirtæki árið
1932 og var þá kölluð Skipaafgreiðsla Jes Zimsens. Starfsemin hefur breyst
verulega í áranna rás og eigendaskipti hafa orðið nokkrum sinnum. Í upphafi
hafði skipaafgreiðsludeild Jes Zimsens umboð fyrir Sameinaða gufuskipafélagið
(DFDS), danskt fyrirtæki sem var í siglingum milli Íslands og Danmerkur.
Með breyttum samgöngum, breyttum viðskiptaháttum og auknum innflutningi
hóf Skipaafgreiðsla Jes Zimsens að taka að sér aðra þjónustu. Í fyllingu tímans
varð fyrirtækið síðan að alhliða flutningsmiðlun sem gat boðið heildarlausnir í
flutningum.
Tollvörugeymslan hf. var stofnuð árið 1962 af hópi manna sem Helgi K. Hjálms-
son leiddi. Fyrirtækið bauð geymsluaðstöðu fyrir ótollafgreiddar vörur og varð
fljótt umsvifamikið á sínu sviði.
Árið 1996 sameinuðust fyrirtækin undir nafninu TVG-Zimsen sem bauð alhliða
flutningsþjónustu, svo sem flugsendingar, hraðsendingar, sjósendingar, toll-
skjalagerð, verðútreikninga, endursendingar, umhleðslusendingar (transit),
tollvörugeymslu og frísvæðisþjónustu svo eitthvað sé nefnt.
Í febrúar 2004 flutti TVG-Zimsen alla vöruhúsastarfsemi sína frá Héðinsgötunni
í nýtt húsnæði Vöruhótelsins á Sundabakka 2. Vöruhótelið ehf. er sameignar-
félag TVG-Zimsen og Eimskips og sér um alla vöruhúsaþjónustu TVG-Zimsen.
Skrifstofuaðstaða TVG-Zimsen er í Korngörðum 2 og einbeitir fyrirtækið sér að
starfsemi flutningsmiðlunar, þ.e. sjófrakt, flugfrakt og skjalagerð.
SAGA TVG-ZIMSEN
Á STÆRÐ VIÐ HÓTEL
Skemmtiferðaskipið
Royal Princess kom
til Reykjavíkur um
síðustu helgi. Það
var þjónustað af
TVG-Zimsen. Skipið er
330 metrar að lengd
og getur tekið 3.600
farþega.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR