Fréttablaðið - 17.09.2014, Blaðsíða 36
| 10 17. september 2014 | miðvikudagur
Gróska er mikil í nýsköpun. Fram-
sæknir einstaklingar fara fram á
völlinn með hugmyndir, studdir
af hinum ýmsu samtökum, verk-
efnum og sjóðum sem styðja við
nýsköpun og smá fyrirtæki.
Fólk sem lætur hugmyndir
verða að fyrirtækjum. Þetta er
grunnur að blómstrandi efna-
hagslífi þar sem menntuðu fólki
er gefið tækifæri til að nýta þekk-
ingu sína á hagnýtan hátt. Sum
þessara fyrirtækja ná ekki að
vaxa úr grasi en önnur dafna eins
og gengur. Sprotastarfið og starf
stuðningsaðila, eins og Tækniþró-
unarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs,
hefur verið nægilega öflugt til
að koma mörgum fyrirtækjum á
laggirnar. En síðan er eins og það
myndist tómarúm þegar kemur að
því að fjármagna næstu skref, að
vaxa og verða fullorðin.
Þetta plagar mörg góð fyrir-
tæki sem eru mikils megnug, fyr-
irtæki sem veita í heildina mörg-
um atvinnu, eru í rannsóknum
og þróun og viðhalda þekkingu í
verki og tækni.
Eitt framfaraskref
Vonir standa til að Alþingi muni
taka fyrir frumvarp um breyting-
ar á lífeyrissjóðalögum á haust-
mánuðum. Stuðningur við frum-
varpið er víðtækur. Ef það yrði
að lögum gætu félög öðlast betra
aðgengi að fjármagni fagfjárfesta
í gegnum First North-markaðinn.
Það yrði mikið framfaraskref og
tækifæri fyrir smá og meðalstór
fyrirtæki til að hugsa lengra og
stærra. En stærra en hvað? Sjáum
við fleiri Marel og Össur?
Heimilisfang: erlendis
Staðan er snúin fyrir mörg
nýsköpunarfyrirtæki hér á landi.
Hér hafa þau slitið barnsskón-
um en þau leita æ meira út fyrir
landsteinana í vaxtarfasanum.
Það er jákvætt að byggð séu
tengsl við erlenda fjárfesta og
að þeir sýni þessum fyrirtækj-
um áhuga. En fjármögnunarum-
hverfið hérlendis má ekki verða
til þess að við missum af tæki-
færum til að taka þátt í vexti
þeirra.
Viljum við að þessi fyrirtæki
verði áfram hér, efnahagslífi og
þekkingu á meðal okkar til góða,
eða viljum við að fyrirtækin
skapi auð annars staðar?
Vítahringur
Hættan er tvenns konar. Annars
vegar að þessi fyrirtæki skjóti
ekki rótum hér þar sem íslenskur
fjármálamarkaður fær ekki tæki-
færi til að styðja við þau, þeim og
fjárfestum til hagsbóta.
Hins vegar að þau geti ekki
nýtt fjármagn sem þau myndu
afla hér á landi á markaði til
vaxtar utan landsteina vegna
gjaldeyrishafta. Þetta hefur leitt
til þess að fyrirtæki hafa hætt
við að skrá sig á verðbréfamark-
að og huga jafnvel að flutningi
til annarra landa. Þetta er víta-
hringur.
Með hækkandi fasteignaverði
getur orðið erfitt fyrir ungt fólk
og sú staðreynd virðist blasa
við ungu fólki í dag að það tekur
lengri tíma en áður að safna fyrir
útborgun í fyrsta íbúðarhúsnæð-
inu. Fyrir suma virðist það nær
óyfirstíganleg hindrun og þá ekki
síst fyrir leigjendur þar sem ekki
er óalgengt að stór hluti mánað-
arlegra ráðstöfunartekna fari í
leigugreiðslur. Við höfum fjölmörg
dæmi um þetta hjá Íslandsbanka.
Við því þarf að bregðast og því
höfum við kynnt til sögunnar nýtt
aukalán fyrir þá sem eru að kaupa
sína fyrstu íbúð.
Á fertugsaldri heima
hjá mömmu og pabba
Hjá Íslandsbanka hafa verið unnar
greiningar á fasteignamarkaðnum,
bæði innanhúss en einnig af utan-
aðkomandi sérfræðingum. Síðast-
liðið vor vann Magnús Árni Skúla-
son, hagfræðingur hjá Reykjavik
Economics, skýrslu fyrir Íslands-
banka undir heitinu „Íbúðamark-
aðurinn – Endurreisn eða bóla“.
Í skýrslunni verður Magnúsi tíð-
rætt um mikilvægi fyrstu kaup-
enda fyrir húsnæðismarkaðinn í
heild sinni. Í því samhengi bendir
Magnús Árni á aldurssamsetningu
íslensku þjóðarinnar og þá stað-
reynd að fólki á „fyrstu kaupa“-
aldri fer nú fjölgandi og að það
muni knýja áfram eftirspurn á
íbúðamarkaðnum næstu árin. Enn-
fremur bendir Magnús Árni á þá
alþjóðlegu þróun að fyrstu kaup-
endur eru að jafnaði eldri en áður.
Samkvæmt rannsóknum í Bret-
landi er meðalaldur fyrstu kaup-
enda árið 2012 kominn yfir 35 ár
en var 30 ár fimm árum áður og
28 fyrir áratug. Ekki hafa verið
gerðar opinberar kannanir á því
hvernig þessu er háttað á Íslandi
en ekki er ólíklegt að aldur fyrstu
kaupenda hafi hækkað töluvert.
Einhvers staðar verður ungt fólk
að búa og það er ekki óalgengt að
fólk búi lengur í foreldrahúsum en
áður eða leiti á leigumarkaðinn.
Sparnaður fyrir útborgun
Fyrir flesta krefst það bæði tíma
og þolinmæði að safna fyrir
útborgun á fyrsta íbúðarhús-
næðinu. Því er mikilvægt að for-
eldrar hvetji börnin sín til að
byrja snemma að huga að sparn-
aði. Síðastliðin ár hefur Íslands-
banki boðið upp á húsnæðissparn-
aðarreikninga þar sem hægt er
að leggja grunninn að útborgun í
íbúðarhúsnæði. Þegar að íbúðar-
kaupum kemur er veittur helm-
ingsafsláttur af lántökugjaldi hús-
næðislána hjá Íslandsbanka sem og
frítt greiðslumat.
Þá er stigið mikilvægt skref með
séreignarúrræði stjórnvalda til að
létta ungu fólki leiðina að kaupum
á sínu fyrsta íbúðarhúsnæði en þá
er ekki greiddur tekjuskattur af
sparnaðinum. Þeir sem eiga ekki
íbúðarhúsnæði fyrir þurfa ekki að
sækja sérstaklega um úrræðið fyrr
en að húsnæðiskaupum kemur sem
hægt er að fresta allt fram til árs-
ins 2019. Í þessu samhengi er því
lykillinn að vera með viðbótarlíf-
eyrissparnað til að ávinna sér rétt-
indi næstu þrjú árin.
Aukalán fyrir kaupum á fyrstu íbúð
Almennt býður Íslandsbanki upp
á fjármögnun á 80% af kaupverði
íbúðarhúsnæðis en hefur nú tekið
ákvörðun um að bjóða þeim sem
eru að kaupa sína fyrstu eign sér-
staka aukafjármögnun að hámarki
1.500.000 kr. þó ekki hærra en sem
nemur 90% af kaupverði íbúðar-
húsnæðis. Þetta er gert til að auð-
velda ungu fólki að fjármagna
kaup á sínu fyrsta íbúðarhúsnæði.
Þessi viðbótarfjármögnun getur
skipt sköpum fyrir fyrstu kaupend-
ur. Sé dæmi tekið um kaup á íbúð
sem kostar 22 milljónir króna þá er
almenn húsnæðisfjármögnun 17,6
milljónir kr. og útborgun 4,4 millj-
ónir kr. en fyrir þann sem er að
kaupa sína fyrstu eign og nýtir sér
aukafjármögnunina þá er útborg-
unin 2,9 milljónir króna. Um helm-
ingur þeirra sem kaupa sér íbúð í
fyrsta skipti kaupa eign á 25 millj-
ónir króna eða minna.
Fyrir utan að standast allar
almennar kröfur til lántakanda, s.s.
að standast greiðslumat, þá er skil-
yrði fyrir aukafjármögnun vegna
fyrstu íbúðarkaupa að lántaki sé
skráður í viðbótarlífeyrissparnað,
óháð vörsluaðila, og hafi þannig rétt
til að nýta sér skattfrjálsa niður-
greiðslu næstu þrjú árin.
Húsnæðislánaráðgjafar okkar
í útibúum Íslandsbanka aðstoða
ungt fólk og foreldra við að fara
yfir þá valkosti sem í boði eru
vegna fyrstu íbúðarkaupanna.
Ég var spurður að því um daginn hvernig mér litist á fjárlagafrumvarpið.
Fyrsta hugsunin sem skaut upp kollinum var sú hvort mögulega væri
hægt að sjá fjárlagafrumvarp sem manni líst vel á. Á síðustu árum fyrir
bankahrun, í ríkisstjórn sjálfstæðismanna og framsóknarmanna, jukust
þjóðarútgjöld sífellt sem hlutfall af landsframleiðslu. Strax eftir bankahrun
hófst svo niðurskurður á sama tíma og skattar voru hækkaðir. Ýmsir
skattar og gjöld hafa hækkað síðan þá, en samt hefur ríkissjóður verið
rekinn með halla þangað til núna á þessu ári. Verst þykir mörgum að á
árunum eftir hrun voru ýmsar breytingar gerðar á skattkerfinu sem gerðu
það flóknara og hvatana til undanskota meiri.
Á blaðamannafundi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra, hélt í Salnum í síðustu viku, þegar hann kynnti fjárlagafrum-
varpið vakti boðuð breyting á virðisaukaskattskerfinu mesta athygli.
Efra þrepið er hæsta skattprósentan sem þekkist
í vestrænum löndum. Hún verður lækkuð um 1,5
prósentustig. Neðra þrepið verður svo hækkað um
heil fimm prósentustig.
Í fjárlagafrumvarpinu eru breytingarnar á virðis-
aukaskattkerfinu réttlættar þannig að kerfisbreyting
í þá átt að fækka skattþrepum eða minnka bilið
á milli þeirra hafi í för með sér kosti á borð við
sparnað við skattframkvæmd og -eftirlit, minni
hvata til skattsvika og minni röskun á verðlagningu
og samkeppnisstöðu. „Þannig hefur á síðustu árum
fengist æ betur staðfest með rannsóknum á eðli
virðisaukaskattsins að ákjósanlegast sé að hann
sé lagður á með einungis einu skatthlutfalli og án
undanþágu,“ segir í frumvarpinu sjálfu.
Almenningur mun finna á mun áþreifanlegri hátt
fyrir hækkun neðra þrepsins en lækkun efra þreps-
ins vegna þess að þar eru matvörur. Alls óvíst er
hvaða áhrif fyrirsjáanleg hækkun á matvörum mun
svo hafa á neysluverðsvísitöluna. Þetta hefur valdið
því að Framsóknarflokkurinn getur ekki sætt sig við
þau prinsipp sem Bjarni Benediktsson byggir þessar
skattkerfisbreytingar á. Fjárlagafrumvarpið hafði
ekki verið kynnt almenningi þegar tveir þingmenn Framsóknarflokksins,
þau Karl Garðarsson og Vigdís Hauksdóttir, lýstu sig andsnúna breyting-
unum. Sú síðarnefnda er formaður fjárlaganefndar Alþingis. Það er ansi
sérkennileg staða að fjármálaráðherra og formann fjárlaganefndar greini
á um einn helsta þáttinn í fjárlagafrumvarpinu. Gagnrýnisraddir Karls og
Vigdísar hafa enda náð það vel til eyrna Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar forsætisráðherra, að strax sama dag og hann flutti stefnuræðu sína
fyrir veturinn var hann farinn að ýja að því að hugsanlega yrði endaleg
útfærsla á virðisaukaskattskerfinu ekki sú sama og lagt var af stað með.
Verst er að þessi ósamstaða stjórnarmeirihlutans, strax í upphafi
þingvetrar, gefur ekki fögur fyrirheit um það að hægt verði að byggja upp
trúverðuga ríkisfjármálastefnu til framtíðar. Og þá var kannski betur heima
setið en af stað farið í þessar skattkerfisbreytingar. Ég veit því hreint ekki
hvort mér líst eitthvað betur á þetta fjárlagafrumvarp en þau sem ég hef
áður séð.
Einhvers staðar
verður ungt fólk að
búa og það er ekki óal-
gengt að fólk búi lengur í
foreldrahúsum en áður
eða leiti á leigumarkað-
inn.
Alls óvíst hvort samstaða er hjá meirihlutanum um skattabreytingar:
Betur heima setið
Og þá var
kannski betur
heima setið en
af stað farið í
þessar skatt-
kerfisbreytingar
Markaðshornið
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Auðveldum fyrstu íbúðarkaupin
Fyrirtæki í vexti á Íslandi – eða annars staðar
SKOÐUN
Páll Harðarson,
forstjóri NASDAQ OMX Iceland
SKOÐUN
Finnur Bogi Hannesson, vörustjóri
á Viðskiptabankasviði Íslandsbanka
ER ÞITT FYRIRTÆKI
Á FLUGI?
Regluleg ferðalög á vegum fyrirtækisins eru oft nauðsynleg.
Það getur því borgað sig að gera fyrirtækjasamning
við Icelandair.
Njóttu hlunninda fyrirtækjasamningsins. Þar má nefna:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með
hverju fyrirtæki.
Neyðarnúmer er opið allan sólarhringinn
– alla daga ársins.
Afsláttur sem Icelandair býður er veittur af öllum fargjöldum
á því farrými sem fyrirtæki óska eftir hverju sinni.
Hægt er að nálgast nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar má finna á www.icelandair.is/fyrirtaeki
Eins má senda fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
01
63
0
8/
20
14