Fréttablaðið - 17.09.2014, Síða 41
| SMÁAUGLÝSINGAR |
Ræstingar - morgunvinna
Ræsting 5 morgna í viku mánud. - föstud.
Áhugasamir sendi svar á box@frett.is
merkt Ræsting fyrir 18. september
AUGLÝSING UM STYRKI -
Umsóknarfrestur rennur út
24. september kl. 15.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna,
auglýsir eftir umsóknum um þóknanir og ferða- og
menntunarstyrki, síðari úthlutun.
Þóknanir vegna ljósritunar, stafrænnar fjölföldunar o. fl.
Óskað er eftir umsóknum um þóknanir vegna ljósritunar úr
fræðiritum og kennslugögnum í skólum og öðrum stofnunum
hins opinbera og vegna stafrænnar fjölföldunar í háskólum
skólaárin 2012-2013. Til úthlutunar eru allt að 5.000.000.- kr.
Þóknanir til rétthafa á fræðslu- og heimildarmyndum
Óskað er eftir umsóknum handritshöfunda, sem eru rétt-
hafar á fræðslu- og heimildarmyndum og þáttum sem sýndir
voru í sjónvarpi árin 2011–2013, um þóknanir sem Hagþenkir
greiðir í framhaldi af gerðardómi um skiptingu tekna
Innheimtumiðstöðvar gjalda af geisladiskum, myndböndum
og myndbandstækjum. Til úthlutunar eru allt að 100.000.- kr.
Ferða- og menntunarstyrkir 2014 – fyrir félagsmenn
Hagþenkis, síðari úthlutun
Óskað er eftir umsóknum um ferða- og menntunarstyrki
Hagþenkis vegna síðari úthlutunar. Rétt til að sækja hafa
þeir sem hafa verið félagar í Hagþenki í eitt ár og eru skuld-
lausir við félagið. Heimilt er að sækja um vegna ferða sem
farnar voru á árinu. Umsækjendur skulu senda skrifstofu
Hagþenkis afrit af ferðakostnaði og skilagrein fyrir áramót.
Til úthlutunar eru allt að 2.000.000.- kr.
Allar nánari upplýsingar, úthlutunarreglur, rafræn eyðublöð
og eyðublöð fyrir skilagreinar eru á heimasíðu félagsins:
www.hagthenkir.is. Umsækjendur fá rafræna staðfestingu
um að umsókn hafi borist.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Hringbraut 121, 4.h. 107 Reykjavík. Sími 551 9599
www.hagthenkir.is Netfang: hagthenkir@hagthenkir.is
Lágholtsvegur 7 - Reykjavík.
Glæsilegt og vel staðsett einbýlishús, hæð og ris, samtals 128,6 fm.
að stærð auk kjallara sem er u.þ.b. 73 fm. að stærð en er ekki með
fullri lofthæð. Heildarstærð eignarinnar með kjallara er því um 201,6
fm. Hellulagt plan fyrir framan hús með tveimur sér bílastæðum.
Húsið var flutt á staðinn árið 1984 og byggt var við það sama ár.
Á þessum tíma var húsið allt endurnýjað, m.a. járn á húsi og þaki,
raflagnir, vatnslagnir, gler, gluggar o.fl. Skjólgóð verönd til suðurs
út af stofum og svalir til austurs út af hjónaherbergi. Verð 59,9 millj
Verið velkomin
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17.15-17.45
OPI
Ð H
ÚS
styrkir
fasteignir atvinna
Til hvers að auglýsa ?
Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma
í úrvinnslu innsendra umsókna.
Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að
þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni.
Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar
fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum.
STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031
stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is.
Með starf
fyrir þig
Starfsemi STRÁ ehf. býr að
aldarfjórðungs reynslu og
þekkingu á sviði starfs-
manna- og ráðningarmála
en stofan hefur unnið fyrir
mörg helstu og leiðandi
fyrirtæki landsins um
árabil.
Rík áhersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og
upplýsinga bæði gagnvart
umsækjendum, sem og
vinnuveitendum.
Ánægðir viðskiptavinir til
margra ára hafa notið
þjónustu STRÁ, en stofan
hefur jafnframt umsjón
með ráðningum í sérfræði-
og stjórnunarstöður.
www.stra.is
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreif-
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
n
d
en
b
u
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
MIÐVIKUDAGUR 17. september 2014 21