Fréttablaðið - 17.09.2014, Page 46
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
Þessi pestó-uppskrift er með þeim
einfaldari og hollari sem fyrirfinn-
ast. Ekki er verra að það er á sama
tíma ótrúlega bragðgott, bæði fyrir
bragðlaukana og sálina. Frækexið er
örlítið flóknara en frábært að eiga
til sem millimálabita með alls kyns
gómsætu áleggi.
Súpergrænt pestó
½ brokkolí
8 grænkálsslauf
2-3 hvítlauksrif
40 g steinselja
40 g basillauf
80 g valhnetur
80 ml ólífuolía
safi af einni sítrónu
salt
Frækex
40 g chia-fræ
40 g sólblómafræ
40 g graskersfræ
40 g sesamfræ
200 ml vatn
1 tsk. ítalskt hvítlaukskrydd
1 msk. ferskt saxað rósmarín
sjávarsalt, eftir smekk
Hitið ofninn í 150°C. Setjið allt saman
í skál og látið standa í 5 mínútur.
Deigið á að vera svolítið þykkt í sér.
Dreifið deiginu á smjörpappírsklædda
ofnplötu 5-6 mm þykkt. Bakið í 30 mín.
Takið kex úr ofni, leggið smjörpappír
ofan á og snúið við. Skerið kexið í bita,
setjið aftur í ofninn og bakið áfram í
30 mínútur.
Súpergrænt pestó og frækex
„Þetta byrjaði út frá því að það fauk
í okkur einhvern tímann þegar við
vorum að tala um að okkur þætti
viss bjór góður. Þá heyrðist í ein-
hverjum strák að við vissum ekkert
um það, þetta væri ekki stelpubjór,“
segir Unnur Tryggvadóttir Flóvenz
sem ásamt Elínu Oddnýju Sigurðar-
dóttur stendur fyrir stofnun Félags
íslenskra bjóráhugakvenna. Þær
Unnur og Elín eru báðar miklar
bjóráhugakonur og ákváðu að stofna
félagið til þess að geta deilt áhuga
sínum með sem flestum kynsystr-
um sínum. Skilyrðin fyrir inngöngu
í félagið er að vera kona og að hafa
áhuga á bjór.
„Það er svo oft tengt við bjór að
þetta sé bara áhugamál stráka. Við
höfum báðar mikinn áhuga á bjór og
finnst skemmtilegt að pæla í mis-
munandi tegundum. Við ákváðum að
þetta gæti verið skemmtilegt félags-
starf fyrir konur sem hafa áhuga á
bjór,“ segir Unnur, sannfærð um að
geta breytt því að bjóráhugi sé ein-
ungis tengdur við áhugasvið karla.
Sjálf segir hún sinn bjóráhuga
hafa kviknað þegar hún var í heim-
sókn hjá systur sinni í Þýskalandi
fyrir nokkrum árum. „Við vinur
minn fórum á bar þegar systir mín
var á kóræfingu. Þar fékk ég besta
hveitibjór í heimi sem var bruggað-
ur á staðnum og eftir það varð ekki
aftur snúið,“ segir hún.
Undirtektir við stofnun félagsins
hafa verið vonum framan og hafa
nú þegar um 60 konur boðað komu
sína á stofnfundinn. Unnur segir þær
ekki hafa mótað stefnu félagsins að
öðru leyti en því að félagskonur þurfi
að hafa áhuga á að bjór. „Planið er að
hittast allavega einu sinni til tvisvar
á önn. Við ætlum að byrja bara á að
hittast á þessum stofnfundi, spjalla
og ræða hvað við getum gert. Hið
eina sem skiptir máli er að konurnar
hafi áhuga á bjór.“
Stofnfundurinn verður haldinn á
Microbar 2. október næstkomandi
klukkan 17 en nánari upplýsingar er
hægt að finna á Facebook-síðu við-
burðarins. viktoriah@365.is
Stofna félag fyrir
konur sem elska bjór
Unnur og Elín Oddný standa fyrir stofnfundi Félags íslenskra bjóráhuga-
kvenna. „Eina sem skiptir máli að konurnar hafi áhuga á bjór.“
BJÓRÁHUGAKONUR Þær Unnur og Elín hafa mikinn áhuga á bjór. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GRÆNT OG FERSKT Pestóið og
frækexið er bæði einfalt og hollt.
Það er svo oft tengt
við bjór að þetta sé bara
áhugamál stráka. Við
höfum báðar mikinn
áhuga á bjór og finnst
skemmtilegt að pæla í
mismunandi tegundum.
Unnur Tryggvadóttir Flóvenz.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar
afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og
skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það
efni sem leitað er að.“
BESTI FRÉTTA- OG
AFÞREYINGARVEFURINN
Minna að fletta
meira að frétta
Frábært úrval afþreyingar, ferskar fréttir,
fjölbreytt efnisval, myndrænt viðmót og
færri flettingar.
Þess vegna var visir.is kosinn besti frétta-
og afþreyingarvefur ársins á Íslensku
vefverðlaununum 2012.
Við skutlum Júlíu heim
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Júlíu
LÍFIÐ
Plómulituð
augu í tísku
í vetur
Þessi fallegi en óvenjulegi
augnskuggalitur var vin-
sæll á tískuvikunni í New
York. Nú er um að gera að
prófa sig áfram með litinn
í vetur. DEREK LAM DEREK LAM VERA WANGVERA WANG