Fréttablaðið - 17.09.2014, Síða 50
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30
Ég er einn af þeim
sem láta tilfinningarnar
ráða för í þessum mál-
um.
Aðalsteinn Ingi Pálsson,
formaður knattspyrnudeildar Þórs.
SPÁIN 2014
OLÍS-DEILD KARLA:
1. Valur (304 stig), 2. Haukar (288), 3. FH
(266), 4. Akureyri (234), 5. ÍBV (214), 6. ÍR
(170), 7. Afturelding (163), 8. Fram (141) 9.
Stjarnan (98) 10. HK (72).
OLÍS-DEILD KVENNA:
1. Grótta (399 stig) 2. Fram (398) 3. ÍBV (363),
4. Stjarnan (337), 5. Haukar (264), 6. Valur
(244), 7. Fylkir (226), 8. HK (148), 9. FH (140),
10. Selfoss (131), 11. KA/Þór (99), 12. ÍR (59)
1. DEILD KARLA:
1. Víkingur (265 stig), 2. Selfoss (263) 3.
Grótta (256), 4. Fjölnir (214), 5. KR (182), 6. ÍH
(169), 7. Hamrarnir (147), 8. ÍF Milan (117), 9.
Þróttur (88).
FÓTBOLTI Ísland mætir Serbíu í
undankeppni HM 2015 á Laug-
ardalsvelli. Ísland á ekki lengur
möguleika á sæti í úrslitakeppn-
inni og því hefur Freyr Alex-
andersson lagt áherslu á að gefa
ungum og efnilegum leikmönnum
tækifæri. Í þeim hópi er Sigrún
Ella Einarsdóttir sem stóð sig
vel þegar hún kom inn á í sínum
fyrsta landsleik um helgina, er
Ísland lagði Ísrael, 3-0.
„Mér leið vel og það var gott að
koma inn á í stöðunni 2-0. Þá var
maður aðeins rólegri fyrir vikið,“
sagði Sigrún Ella, sem uppskar
mikið hrós frá þjálfaranum fyrir
frammistöðu sína.
„Það er alltaf gott að fá hrós
en ég reyni að halda mér á jörð-
inni og sinna minni vinnu áfram,“
segir hún en Sigrún Ella veit ekki
hvort frammistaðan dugir til að
fá sæti í byrjunarliðinu í kvöld.
„Fanndís stóð sig vel í leiknum,
skoraði til dæmis frábært mark,
og það verður erfitt að slá hana
út úr liðinu. Ég æfi bara og spila
eins vel og ég get,“ segir Sig-
rún Ella sem kom til Stjörnunn-
ar frá uppeldisfélagi sínu, FH,
fyrir síðasta tímabil. Þar hefur
hún blómstrað og verið í lykil-
hlutverki í liði Stjörnunnar sem
er aðeins einu stigi frá Íslands-
meistaratitlinum.
„Ég skipti um lið til að fá stærri
áskorun og mér hefur gengið
ágætlega. Ég hef mín markmið
en framtíðin verður að leiða í ljós
hvort ég næ þeim.“
Freyr sagði fyrir leikinn gegn
Ísrael að Sigrún Ella væri kant-
maður af „gamla skólanum“ og að
það væru leikmenn að hans skapi.
„Ég vissi reyndar ekki alveg hvað
hann átti við en ég tók því bara
sem hrósi,“ sagði hún og hló.
Leikurinn í kvöld verður sá síð-
asti hjá markverðinum Þóru B.
Helgadóttur en hann hefst klukk-
an 17.00 og verður í beinni texta-
lýsinu á íþróttavef Vísis. - esá
Vissi ekki alveg hvað Freyr var að tala um
Þátttöku Íslands í undankeppni HM 2015 lýkur í kvöld er stelpurnar taka á móti Serbum í Laugardalnum.
EFNILEG Sigrún Ella Einarsdóttir hefur
átt frábært tímabil með Stjörnunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÚRSLIT
MEISTARADEILD EVRÓPU
A-RIÐILL
OLYMPIACOS - ATLETICO MADRID 3-2
1-0 Arthur Masuaku (13.), 2-0 Alejandro
Domínguez (36.), 2-1 Mario Mandzukic (38.), 3-1
Konstantinos Mitroglou (78.), 3-2 Antoine Griez-
mann (87.).
JUVENTUS - MALMÖ 2-0
1-0 Carlos Tévez (53.), 2-0 Carlos Tévez (90.).
B-RIÐILL
LIVERPOOL - LUDOGORETS 2-1
1-0 Mario Balotelli (82.), 1-1 Dani Abalo (90.), 2-1
Steven Gerrard (90.+3).
REAL MADRID - BASEL 5-1
1-0 Marek Suchy (14. sjálfm.), 2-0 Gareth Bale
(30.), 3-0 Cristiano Ronaldo (31.), 4-0 James
Rodríguez (37.), 4-1 Derlis Gonzalez (38.), 5-1
Karim Benzema (80.)
C-RIÐILL
MONACO - BAYER LEVERKUSEN 1-0
1-0 Joao Moutinho (61.).
BENFICA - ZENIT ST. PÉTURSBORG 0-2
0-1 Hulk (5.), 0-2 Axel Witsel (22.)
D-RIÐILL
DORTMUND - ARSENAL 2-0
1-0 Ciro Immobile (45.), 2-0 Pierre-Emerick
Aubameyang (48.).
GALATASARAY - ANDERLECHT 1-1
0-1 Dennis Praet (52.), 1-1 Burak Yilmaz (90.).
FRJÁLSÍÞRÓTTAÆFINGAR
Fyrir fötluð börn og ungmenni.
Alla fimmtudaga í frjálsíþróttahöllinni
í Laugardal frá kl. 16:50-17:50.
Þjálfarar eru Theodór Karlsson (663 0876)
og Linda Kristinsdóttir (862 7555).
Öllum 13 ára börnum og yngri er
velkomið að koma á æfingarnar. www.ifsport.is
HANDBOLTI Handknattleikssamband Austurríkis tilkynnti í
gær að það hefði samið við Patrek Jóhannes-
son um að stýra landsliði þess áfram til ársins
2020 en gamli samningurinn átti að renna
út á næsta ári. Mikil ánægja hefur ríkt með
störf Patreks sem tók við liðinu árið 2011
en undir hans stjórn varð liðið í ellefta sæti
á EM í Danmörku í upphafi ársins og vann
sér svo sæti á HM í Katar með því að slá
Noreg úr leik í undankeppninni.
„Ég var ekki lengi að velta tilboðinu fyrir mér því
mér hefur liðið afar vel í þessu starfsumhverfi,“ sagði
Patrekur í viðtali á vef sambandsins. „Þetta er fimm ára
samningur og sýnir vel hversu mikið traust ríkir á milli
aðila. Ég er mjög ánægður og stoltur yfir að halda áfram
sem landsliðsþjálfari Austurríkis.“ - esá
Patrekur fékk fi mm ára samning
FÓTBOLTI Fyrstu leikviku Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu lýkur í kvöld
með átta leikjum. Eini Íslendingurinn í Meistaradeildinni að þessu sinni, fram-
herjinn Kolbeinn Sigþórsson, verður á ferðinni með sínum mönnum í Ajax
þegar hollenska liðið tekur á móti hinum moldríku Frakklandsmeisturum í PSG.
Kolbeini, sem er annars mikill markaskorari, virðist fyrirmunað að skora í
Meistaradeildinni, en hann hefur spilað sjö leiki með Ajax í keppninni án þess
að koma boltanum í netið. Hann lét meðal annars verja frá sér vítaspyrnu á
Nývangi gegn Barcelona í fyrra. Börsungar eru aftur í riðli með Ajax, en þeir
mæta AOPEL frá Kýpur í kvöld.
Englandsmeistarar Manchester City heimsækja Bayern München, en þessi
sömu lið voru saman í riðli í fyrra og þá með CSKA Moskvu sem einnig er með
þeim í riðli að þessu sinni. Rússneska liðið mætir Roma í þessum annars sterka
riðli.
Man. City tapaði heimaleiknum gegn Bayern í fyrra en sótti sigur á Allianz-
völlinn þannig að Englandsmeistararnir þurfa ekki að vera hræddir við erfiðan
heimavöll Þýskalandsmeistaranna. - tom
Áttunda tilraun hjá Kolbeini
KOMIÐ AÐ ÞVÍ? Kolbeinn vonast til að
skora í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SPORT
HANDBOLTI Val og Gróttu var í
dag spáð Íslandsmeistaratitli í
árlegri spá þjálfara, fyrirliða og
forráðamanna í Olís-deildunum í
handbolta.
Valur fékk yfirburðaspá í
karladeildinni en aðeins mun-
aði einu stigi á Gróttu og Fram í
kvennadeildinni.
Víkingi er síðan spáð öruggum
sigri í 1. deild karla.
Það er búið að fjölga í Olís-
deild karla en þar spila nú tíu lið
og verður átta liða úrslitakeppni.
Einnig verður átta liða úrslita-
keppni í kvennadeildinni. - hbg
Val og Gróttu
spáð titlinum
FÓTBOLTI „Þetta eru mikil von-
brigði enda ekki það sem stefnt
var að,“ segir Aðalsteinn Ingi Páls-
son, formaður knattspyrnudeildar
Þórs, en Þórsarar eru fallnir úr
efstu deild þó svo enn séu þrjár
umferðir eftir af Íslandsmótinu.
Margir spáðu Þór góðu gengi
fyrir mótið en liðið stóð aldrei
undir þeim væntingum. Þór varð í
áttunda sæti á síðasta ári og stefn-
an var tekin enn hærra í ár. Við-
dvölin í efstu deild var því ekki
nema tvö ár hjá Þór að þessu sinni.
„Við vorum kannski með ódýr-
asta liðið í deildinni en erum með
fullt af flottum einstaklingum sem
lofuðu góðu fyrir mót. Ótrúlega
mörg af þessum fáu stigum okkar í
sumar hafa komið gegn KR og FH.
Ég held því að þetta lið geti gert
ýmislegt þegar allt gengur upp
en það getur líka greinilega tapað
fyrir hvaða liði sem er,“ segir for-
maðurinn, en fjögur af níu stigum
Þórs komu gegn FH og KR. Sigur-
leikurinn var gegn KR.
Kallar á naflaskoðun
Að falla niður um deild kallar á
endurskoðun á rekstri félagsins
sem og naflaskoðun.
„Þetta kallar á fjárhagslega end-
urskoðun sem og á öllum hópnum.
Þjálfurum og öðru slíku. Við þurf-
um að fara í naflaskoðun og líta í
eigin barm og sjá hvað við eigum
að gera í stöðunni enda er þetta
ekki sú staða sem félagið ætl-
aði sér að vera í. Stefnan var að
festa félagið í sessi í efstu deild.
Við höfum verið í Pepsi í þrjú af
síðustu fimm árum. Hin árin tvö
unnum við 1. deildina. Árangurinn
miðað við fjármagn og aðstæður
er kannski alveg viðunandi þó svo
maður hefði viljað festa eitt lið af
landsbyggðinni uppi í efstu deild.
Það er að sýna sig enn og aftur að
það er erfitt og þá sérstaklega fjár-
hagslega.“
Aðalsteinn telur að lið Þórs sé
líklega ódýrasta lið Pepsi-deildar-
innar og segir að það sé erfiðara
fyrir Þór en mörg önnur félög að
ná í fjármagn.
„Við stöndum verr að því leyti
að öll stórfyrirtæki og fjársterk-
ir aðilar eru á suðvesturhorninu.
Auðvitað eru samt góðir aðilar hér
sem standa vel við bakið á okkur
og fyrir það ber að þakka.“
Það hefur mikil áhrif á rekstur-
inn að falla niður um deild og því
þarf að stokka spilin upp á nýtt.
„Þetta er klárt tekjutap upp á
að minnsta kosti 15 milljónir. Það
er örugglega varlega áætlað en
maður veit aldrei hver snjóbolta-
áhrifin verða. Fyrir lítinn klúbb
með lítinn fjárhag þá munar gríð-
arlega um þessar tekjur.“
Það má nú ekki búast við því að
framherjinn Chukwudi Chijindu
verði áfram hjá Þór en samningur
hans er að renna út. Hann hefur
ekki skorað mark í átta leikjum
með liðinu í sumar.
„Öll leikmannamál verða skoð-
uð og þar með hans mál. Það eru
gríðarleg vonbrigði að hann er
meiddur hálft tímabilið. Hann
átti að vera maðurinn sem skoraði
mörkin fyrir okkur. Hann skilaði
því síðustu ár en ekki núna, því
miður,“ segir Aðalsteinn og hann
segir ekkert vera ákveðið hvort
Páll Viðar Gíslason verði áfram
þjálfari liðsins. Það séu skiptar
skoðanir á því innan stjórnarinnar.
Útilokar ekki sameiningu
Næsta sumar verða bæði Akur-
eyrarliðin í 1. deild og sú umræða
að best sé að sameina félögin er
komin upp enn og aftur.
„Ég er einn af þeim sem láta
tilfinningarnar ráða för í þess-
um málum og kannski er skyn-
semin ekki alltaf efst á blaði. Ég
er Þórsari og verð það alla tíð. Ég
er samt að reka lið, ásamt öðrum,
sem heitir Þór/KA í kvennaboltan-
um og það er að fullu rekið af Þór.
Það er mjög góð reynsla af því og
auðvitað ættu menn að skoða alla
hluti af skynsemi. Ég útiloka ekk-
ert í þessum efnum en það er mín
skoðun að það eigi að vera hægt að
halda úti tveimur liðum hérna. Það
er kannski ekki hægt að halda úti
tveimur úrvalsdeildarfélögum og
kannski ekki einu sem er stöðugt
lið í efstu deild,“ segir Aðalsteinn
Ingi og bætir við það sé ekkert
búið að ræða þessi mál og enginn
hafi hafið máls á því að funda um
sameiningu meistaraflokka Þórs
og KA. henry@frettabladid.is
Verða af fi mmtán milljónum
Það er mikill skellur fyrir Þór að falla úr Pepsi-deildinni og segir formaður knattspyrnudeildar að tekjutapið
sé að minnsta kosti 15 milljónir króna. Hann segir að félagið þurfi að fara í nafl askoðun og líta í eigin barm.
FLOTTIR Þórsarar hafa fengið flottan stuðning úr stúkunni en það skilar sér ekki á vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL