Fréttablaðið - 17.09.2014, Blaðsíða 54
17. september 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34
Ég fæ oft valkvíða á morgnana
en yfirleitt verður kornfleks eða
hollustuhafraklattar à la Ale fyrir
valinu, þar sem það tvennt er mjög
mikið uppáhalds. Flott bensín inn í
daginn!
Alexandra Sif Nikulásdóttir, fjarþjálfari hjá
Betri árangri og förðunarfræðingur.
MORGUNMATURINN
„Mér finnst þetta ekki vera heiður
og bara mjög pirrandi að sjá svona
eftirlíkingar,“ segir hönnuðurinn
Þórunn Árnadóttir, sem á heiður-
inn af Pyro Pet, kisukerti sem er
sérstakt að því leytinu til að þegar
það brennur niður birtist beina-
grind úr áli.
Kertið hefur vakið mikla lukku
út um allan heim en nýverið fékk
Þórunn ábendingu frá stórum
dreifingaraðila um að búið væri að
gera eftirlíkingu af kertinu henn-
ar. Eftirlíkingin er bangsakerti
sem nefnist Skeleton Candles og
breytist einmitt í beinagrind úr
áli. Líkindin eru sláandi en Þórunn
safnaði fyrir framleiðslu Pyro Pet
á Kickstarter og er það sama leið
og fólkið á bakvið eftirlíkinguna er
að fara. „Mér finnst mest skrítið
að Kickstarter hafi hleypt þessu í
gegn hjá sér, ég er í góðu sambandi
við fólkið þar sem öll keyptu sér
kisukertið á sínum tíma og hrós-
uðu hönnuninni. Það er leiðinlegt
þegar svona kemur upp.“ Kisukert-
in hennar Þórunnar hafa slegið í
gegn og eru meðal annars í búð-
inni Urban Outfitters. Upphaflega
ætlaði Þórunn að safna fyrir fram-
leiðslu á fjögur þúsund kertum en
hefur nú selt um 10 þúsund stykki.
„Sem betur fer hefur okkur tekist
að koma Pyro Pet það vel á fram-
færi síðasta árið að við höfum
verið að fá ábendingar um eftirlík-
inguna frá viðskiptavinum okkar.
Það er gott.“ - áp
Leiðinlegt að sjá eft irlíkinguna
Kertin Pyro Pet úr smiðju hönnuðarins Þórunnar Árnadóttur hafa vakið mikla
lukku en búið er að gera eft irlíkingu af því sem nefnist Skeleton Candles.
PIRRANDI Þórunn Árnadóttir hönn-
uður er ekki ánægð með að búið sé að
gera eftirlíkingu af kertinu hennar, Pyro
Pet, en erfitt er fyrir hönnuði að koma í
veg fyrir svoleiðis.
„Það eru nokkrir nógu bilaðir til að fá
sér svona, þetta er eins og að kaupa
jeppa á risastórum dekkjum,“ segir
Emil Þór Guðmundsson, einn eigandi
hjólabúðarinnar Kría Cycles, sem hjól-
ar nú um stræti borgarinnar á svoköll-
uðu Fatboy-hjóli.
Hjólið vekur athygli vegfarenda enda
um tryllitæki að ræða. Dekkin sjálf eru
extra breið og kjörin til þess að hjóla á
snjó og sandi en ekki síður á malbiki.
„Síðan getur maður beðið eftir snjó og
þá er hægt að fara upp á jökul,“ segir
hjólaunnandinn Emil, sem ætlar greini-
lega ekki að láta veður og vind hafa
áhrif á sig í vetur.
Þótt hjólin líti ansi hörkulega út þá
eru þau samt sem áður afar þægileg og
á hvers manns færi að stýra „Það kemur
manni samt á óvart hvað þetta pedalar
vel. Þau bara rúlla og rúlla, þessi hjól.“
Fatboy-hjólin eru nú fáanleg í Kríu
Cycles og kosta frá 319.000 krónum.
Mikið hjólaæði hefur gripið land-
ann undanfarin misseri enda bæði
umhverfisvænn ferðamáti og góð
hreyfing. Þó að hitastig fari lækkandi
og ekki hægt að treysta á veðrið hér á
landi er engin ástæða til að leggja hjól-
unum að sögn Emils.
En hvernig eiga hjólreiðamenn að
útbúa sig fyrir veturinn? „Það eru ljós,
númer eitt, tvö og þrjú. Þú vilt ekki fá
strætó í bakið. Það eru alltof margir
sem hjóla ljóslausir hér, það er bara
eins og að keyra um á ljóslausum bíl.
Þú vilt ekki vera „ghost rider“. Svo í
nóvember fer maður að skipta yfir í
nagladekk þegar hálkan fer að koma.
En vonum að haustið hangi aðeins leng-
ur.“ - þij
Eins og að vera á
jeppa á risadekkjum
Emil Þór Guðmundsson hjólar um stræti borgarinnar á tryllitæki sem nefnist
Fatboy-hjól og er nú fáanlegt hér landi en hjólinu er hægt að stýra upp á jökul.
VÍGA-
LEGUR Emil
Þór með
tryllitækið
sem kallast
Fatboy-hjól.
Hljómsveitin Plastic Gods hefur
verið starfandi í næstum áratug
og er þekkt fyrir að spila drunga-
og stónerarokk með eigin blæ.
Hljómsveitin hefur verið að vinna
í óhefðbundnu setti fyrir tónleika
á Húrra næstkomandi föstudag.
Þá mun sveitin spila drunu- og
hávaðatónlist með áhrifum frá raf-
tónlist. Ásamt þeim koma fram
tónlistarmennirnir AMFJ, Ultra-
orthodox og Döpur, betur þekktur
sem Krummi í Mínus.
En hvað er svona aðlaðandi
við hávaða? „Við erum vön því að
heyra umhverfishljóð þegar við
löbbum út um dyrnar heima hjá
okkur og það eru verksmiðjur í
gangi, strætóar keyrandi fram hjá,
fólk að tala. Hávaði er alls staðar
og ég held að það sé búið að síast
í undirmeðvitundina hjá fólki.
Þegar það kemst að því að þetta
er inni í manni þá dregur það fólk
að þessari tónlistarstefnu, ef við
ætlum að fara í þetta vísindalega,“
segir Krummi.
Tónleikarnir á föstudaginn hefj-
ast klukkan 22.00 og kostar litlar
1.000 krónur inn. - þij
Tónlist sem hreyfi r við iðrunum
Veisla með hávaða, drunum og drunga á Húrra á föstudaginn
PLASTIC
GODS spilar
sérútbúið
sett á föstu-
dag.
„Noise“ eða hávaðatónlist einkennist af notkun á hávaða
í músíkölsku samhengi. Stefnan á uppruna sinn í módern-
isma en ítalski fútúristinn Luigi Russolo skrifaði stefnuritið
The Art of Noises árið 1913 þar sem hann hélt því fram að
iðnbyltingin hefði hjálpað nútímamanninum að kunna að
meta flóknari hljóð. Taldi hann að hefðbundin tónlist væri
heftandi og að hávaðatónlist myndi koma í stað hennar í
framtíðinni.
Hávaðatónlist hélt áfram að þróast í gegnum tuttugustu
öldina og hefur alltaf haldist í hendur við þróun tilraunakenndrar tónlistar á
öldinni. Frægir einstaklingar sem spila hávaðatónlist eða hafa notast við hávaða
í verkum sínum eru til dæmis John Cage, Karlheinz Stockhausen, Lou Reed,
Sonic Youth, Ryoji Ikeda, Merzbow, Psychic TV og margir fleiri.
HVAÐ ER „NOISE“-TÓNLIST?
KRUMMI
„Þetta er eins konar Fésbók hjólreiðamannsins,“ segir Emil um
appið Strava, sem notað er af flestum hjólreiðamönnum sem vett-
lingi geta valdið. Með Strava er hægt að skipuleggja hjólreiðarnar
betur og keppa við vini sína. „Svo getur maður fylgst með því
hvar menn eru að hjóla og séð nýjar leiðir. Þetta er algjör snilld.“
Strava virkar þannig að notandinn býr til ákveðna „segmenta“
sem er tiltekin leið og vegalengd. Þá er hægt að keppa á móti
einhverjum öðrum um tímann sem tekur að hjóla þessa leið. Ef
maður nær síðan besta tímanum þá verður maður svokallaður
KOM, eða „king of the mountain“.
Fésbók hjólreiðamannsins
Fyrirbyggjandi
lúsasjampó
Nýtt
Gotitas de Oro - Anti-Lice Shampoo
Kemur í veg fyrir lúsasmit.
Fyrirbyggjandi lúsasjampó fyrir börn. Virk samsetning
innihaldsefna ver hárið og hársvörðinn og kemur í veg fyrir
lúsasmit án þess að valda óþægindum né ertingu.
Afar milt en öflugt sjampó.
Virku innihaldsefnin í sjampóinu eru náttúruleg.
Þau fyrirbyggja og gefa líka raka:
Andiroba olía: 100% náttúruleg olía.
Notuð víða í heiminum, m.a sem vörn gegn skordýrabiti.
Quassia edik: Edik blanda með Quassia Amara seyði sem
kemur í veg fyrir að egg lúsarinnar (nit) geti fest í hárinu.
U
m
b
o
ð
: w
w
w
.v
it
ex
.is
Útsölustaðir: Lyfjaver/Heilsuver, Lyfjaval Mjódd, Rima Apótek, Reykjavíkur Apótek,
Garðs Apótek, Árbæjar Apótek, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Lyfsalinn-
Glæsibæ, Austurbæjar Apótek, Lyfja Lágmúla, Lyfja Smáratorgi, og Fjarðarkaup
Notist reglulega eins og hvert annað sjampó fyrir hárþvott.
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU