Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 35
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014
DEYFÐI SÁRSAUKANN
MEÐ NEYSLU
Geðhjálp heldur upp á 35
ára afmæli sitt á Blómatorgi
Kringlunnar í dag, 9. október,
þar sem meðal annars verður
boðið upp á geðmaraþon og
afmælisköku.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá stofnun félags-ins en fyrir þann tíma
var ekkert félag til fyrir notendur
geðheilbrigðisþjónustunnar og að-
standendur þeirra að sögn Hrann-
ars Jónssonar, formanns stjórnar
Geðhjálpar.
„Þörfin var mikil fyrir 35 árum
síðan og hefur í raun farið sívax-
andi. Á ýmsu hefur gengið á þessu
tímabili og félagið hefur tekið á sig
ýmsar myndir. Nú einbeitum við
okkur að ráðgjöf, hagsmunabar-
áttu, fræðslu, forvörnum og barátt-
unni gegn fordómum í garð fólks
með geðræna erfiðleika. Geðhjálp
er í rauninni mannréttindafélag,“
segir hann.
Geðhjálp gekk nýlega í gegnum
stefnumótun að sögn Önnu Gunn-
hildar Ólafsdóttur, framkvæmda-
stjóra Geðhjálpar. „Sú vinna ól af
sér þrjú gildi félagsins; hugrekki,
mannvirðingu og samhygð,“ segir
hún. „Við þurfum á hugrekki að
halda til að vera talsmenn hóps-
ins og standa vörð um réttindi
Höldum baráttunni ótrauð áfram
„Fólk með geðræna
sjúkdóma hefur setið
eftir að svo mörgu
leyti. Þessi hópur er
enn í skugganum
og verður fyrir hvað
mestri mismunun og
fordómum af öllum
hópum í samfélaginu,“
segja Anna Gunn-
hildur Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri
Geðhjálpar, og
Hrannar Jónsson, for-
maður Geðhjálpar.
MYND/VALLI
Fjórar ungar konur með tvíþættan vanda segja frá reynslu sinni af geðröskunum,
vímuefnaneyslu og kerfinu. SÍÐA 4
ÞVÆLDIST Í GEGNUM KERFIÐ ÁN
ÞESS AÐ FÁ LAUSN