Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 30
25. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Þetta virðist svo fjarlægt okkur, sem vinnum á gólf-inu. Það hefur aldrei verið meira að gera,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir, sókn-arprestur í Garðabæ, en
hún og eiginmaður hennar, Bjarni
Karlsson prestur og doktorsnemi í
siðfræði, hafa starfað saman innan
þjóðkirkjunnar í tæp þrjátíu ár.
Undanfarið hefur mikið mætt á
Þjóðkirkju Íslands þegar æ fleiri
segja sig úr röðum hennar. Fyrir
hvern Íslending sem fæðst hefur
inn í þjóðkirkjuna síðastliðin fjög-
ur ár hefur rúmlega einn sagt sig
úr henni, samkvæmt nýjustu tölum
Þjóðskrár. Háværar gagnrýnisradd-
ir hafa dunið á kirkjunni og sam-
band kirkju og ríkis verið gagnrýnt,
þó að drjúgur meirihluti þjóðarinn-
ar sé enn skráður í þjóðkirkjuna.
„Auðvitað kallar þetta á skoðun
og samtal innan kirkjunnar. Það er
jákvætt að fólk skuli taka afstöðu
og velta þessum málum fyrir sér.
En það er samt þannig að þegar
fólk leitar til kirkjunnar er aldrei
spurt um trúfélagsaðild eða hvort
fólk greiði sóknargjöld til viðkom-
andi kirkju,“ segir Jóna Hrönn og
bætir við: „Ég hef reynslu af því
að starfa með presti sem vissi það
ekki fyrr en eftir sína prestsvígslu
að hann tilheyrði fríkirkju af því
að barn hefur alltaf fylgt trúfélags-
skráningu móður og móðir hans var
ekki í þjóðkirkjunni,“ heldur hún
áfram. Jóna Hrönn segist muna
eftir manni í sókninni sem kom að
máli við hana og var mjög ósáttur
við aðkomu yfirstjórnar kirkjunn-
ar að kynferðisbrotamálum innan
hennar. „Hann hafði sótt kirkju og
einnig þegið sálgæsluþjónustu en
ákvað, í ljósi þess að hann var ósátt-
ur, að segja sig úr þjóðkirkjunni. Ég
nefndi við hann að ef hann segði sig
úr þjóðkirkjunni þá myndi það vera
sóknarkirkjan hans og starfið þar
sem myndi líða fyrir ákvörðunina.
Ég sagði honum að mér fyndist að
hann ætti að senda biskupi bréf og
láta hann vita af ákvörðun sinni svo
að skilaboðin kæmust alla leið. Ég
veit að síðar gekk hann aftur í þjóð-
kirkjuna þegar ákveðin mál voru
frágengin.“
Bjarni bætir við: „Það sem marg-
ir hugsa ekki út í er að ef fólk skráir
sig úr þjóðkirkjunni þá renna sókn-
argjöldin í ríkissjóð. Áður fóru þau
til Háskóla Íslands, þannig að ef
fólk er ósátt í Vestmannaeyjum við
eitthvað í ákvörðunum yfirstjórnar
þjóðkirkjunnar og segir sig úr þjóð-
kirkjunni renna félagsgjöldin þeirra
úr byggðarlaginu í ríkissjóð en það
heldur kannski áfram að nýta sér
þjónustu Landakirkju.“
Ekki hægt að senda alla heim
En hvernig á að skilja kirkjuna? Er
upplifun ykkar sú að kynferðisbrota-
mál sem komu upp í biskupstíð Ólafs
Skúlasonar, svo dæmi sé tekið, hafi
eyðilagt fyrir starfi kirkjunnar?
Jóna Hrönn: „Ef kæmi upp alvar-
leg spilling innan KSÍ þá myndi eng-
inn vilja banna börnum að iðka fót-
bolta og láta þau þannig líða fyrir
einhver slæm mál hjá yfirstjórn-
inni – valta bara yfir fótboltavell-
ina, taka loftið úr boltunum og
senda alla heim. Það sama má segja
um kirkjuna. Þó að erfið mál hafi
komið upp í yfirstjórn kirkjunnar þá
má ekki láta safnaðarstarfið í hverf-
um og úti um landið líða fyrir það.“
Bjarni: „Kirkjan er ekki húsin
með háu turnunum, ekki fólkið sem
þar vinnur, hún er í innsta eðli sínu
vinátta við Jesú Krist. Enda þótt
kirkjan þurfi mikið skipulag og
stjórnun vegna mannahalds og rekst-
urs þá væri mikið vanmat að líta
bara á hana sem fyrirtæki. Fólkið er
kirkjan og þegar við komum saman
er þetta eins og þegar fullveðja fólk
mætir í mat til mömmu. Systkinin
eiga öll sama rétt við matarborðið
en það er enginn að fara að kenna
neinum neitt eða segja til syndanna.“
Hvernig hefur kirkjan breyst á
undanförnum árum?
Bjarni: „Snertifletirnir við mann-
lífið eru fleiri, hóparnir fjölbreyti-
legri og raunar eru áratugir síðan
sunnudagurinn hætti að vera hinn
eini stóri kirkjudagur.“
Jóna Hrönn bætir við að um þús-
und manns fari í gegnum Vídalíns-
kirkju í Garðabæ á viku hverri og
slíkt sé ekki einsdæmi. Barna- og
unglingastarfið tekur rými, líka
fjölbreytt tónlistarstarf, bænahóp-
ar, 12 spora starf kirkjunnar og svo
hýsir kirkjan ótal AA-fundi. „Einn-
ig eru safnaðarheimilin notuð fyrir
skírnarveislur, stórafmæli og brúð-
kaupsveislur, fyrir utan allar erfi-
drykkjurnar. Svo vorum við að
kynna aðferð Pílagrímafélagsins á
ráðstefnu á dögunum, þessi aðferð
felst í því að lesa Biblíuna, kynnast
boðskap Krists og lifa undir áhrif-
um þess í heiðarlegu samtali og fyr-
irbæn fyrir öðrum. Þetta er í raun
aðferð sem hefur verið iðkuð innan
kristninnar í gegnum aldirnar og er
hluti af fegurð trúarinnar,“ útskýrir
Bjarni.
Þurfum ekki að vera í vörn
Jóna Hrönn: „Þjóðkirkjan þarf ekki
að vera í neinni vörn. Umræðuhefð
þjóðarinnar byggist mikið á andúð
og reiði. Í þeirri umræðu er kirkjan
ekkert undanskilin. Margir þeirra
sem tjá sig á opinberum vettvangi
eru reiðir og beita andúðarrökum
og það er kannski bara ástæða til
að umvefja þá umræðu í stað þess
að fara í vörn. Kannski eru þetta
fæðingarhríðir að einhverju betra
og heilbrigðara. Það er þannig með
reiðina, hún getur orðið til þess að
hreinsa til. En það er auðvitað hið
versta mál ef fólk festist í henni, þá
byrja hlutirnir að skemmast og þá
skapast oft á tíðum einelti eins og
við höfum stundum séð í þjóðfélags-
umræðunni.“
Bjarni: „Ég held að við ættum
bara öll að anda inn í aðstæðurnar
og leyfa trúnni að vera það sem hún
er. Trúmál þurfa ekki að vera þrætu-
epli stjórnmála, enda er það nýlunda
sem kannski endurspeglar bara
það að við erum að fóta okkur sem
fjölmenningarsamfélag. Við erum
mörg og fjölbreytt með alls kyns
hugmyndir um lífið og tilveruna og
lausnin verður aldrei sú að taka eitt
hugmyndakerfi, hvort sem það væri
kristni, veraldlegur húmanismi eða
hvað annað, og gera það að viðmiði
fyrir restina. Um leið og við búum
til norm sköpum við jaðarhópa. Með
jaðarhópum nærist svo andúðin og
skammirnar og allir tapa. Sannleik-
urinn er sá að trúarbrögð heims-
ins eiga umfram allt langa reynslu
af friðsælli sambúð um veröldina.
Í stað þess að þagga niður ólíkar
raddir eigum við að halda hvert öðru
ábyrgu í mannréttindamálum og
umhverfismálum og reyna að skilja
hvert annað. Það er góð trúmálapóli-
tík. Ef kristin trú fær að fara að eðli
sínu í samfélaginu þá er hún hvorki
hugmyndakerfi né hagsmunahóp-
ur heldur fjöldahreyfing sem hefur
enga hagsmuni aðra en almannahag.
Ef kristin kirkja rís upp til varna þá
getur það með réttu einungis verið í
því skyni að verja mannréttindi eða
náttúru. Þess vegna þykir mér svo
vænt um Pílagrímafélagið sem við
vorum að kynna þvert á allar kirkju-
deildir því þar er trúin bara iðkuð en
ekki notuð sem tæki á annað fólk.“
Engin plastblóm í kirkjunni
Jóna Hrönn: „Í þessu sambandi
er gott að horfa til Agnesar bisk-
ups. Þar fer jarðbundinn og hóg-
vær leiðtogi sem er ekki í varnar-
baráttu. Kirkjan vill að foreldrar
sjái sóknar kirkjuna sína sem sam-
herja að uppeldi barna, að hún sé
vettvangur umræðu um mikilvæg
gildi starfandi í virkum tengslum
við listalífið. Þegar áföll verða í
byggðarlögum kemur fólkið saman
í sóknarkirkjunni til að finna sam-
stöðu og styrk. Eins þegar gleðin
ríkir. Messan er ekki klöppuð í stein
en er á hverjum stað og tíma tjáning
fólksins á sinni trú og menningu.“
Bjarni: „Þess vegna verður allt
sem gerist í kirkju að vera ekta,
til dæmis mega bara vera lifandi
ljós og blóm á altarinu af því trúin
snýst um heilindi. Þannig var það
á Kristsdeginum í Hörpu, þar var
allt ekta. Þó að athygli annarra hafi
beinst að ferlega klaufalegu orð-
færi á heimasíðu þá ljómaði húsið af
þakklæti og kærleika. Öðrum megin
í salnum sat ungur rappari í hettu-
peysu, hinum megin nokkrar nunn-
ur, öll með sams konar hvítar hettur
á höfði. Mjög skemmtileg sýn sem
lýsir því hvernig trúin getur sam-
einað ef hún fær að vera það sem
hún er.“
Kirkjan þarf ekki að vera normið
Prestshjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson segja trúmál ekki þurfa að vera þrætuepli stjórnmála. Þau ræða
stöðu þjóðkirkjunnar, segjast aldrei spyrja um trúfélagsaðild í starfi sínu en vilja leyfa trúnni að vera það sem hún er.
SAMHELDIN HJÓN Bjarni og Jóna Hrönn eru bæði prestar og hafa starfað saman innan þjóðkirkjunnar í tæp þrjátíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ef kæmi upp alvarleg
spilling innan KSÍ þá myndi
enginn vilja banna börnum
að iðka fótbolta og láta þau
þannig líða fyrir einhver
slæm mál hjá yfirstjórninni,
– valta bara yfir fótboltavell-
ina, taka loftið úr boltunum
og senda alla heim. Það
sama má segja um kirkjuna.
636
manns sögðu sig úr
þjóð kirkjunni á
tímabilinu 1. júlí til
30. september í ár en
aðeins 94 nýir með limir
voru skráðir.
➜ Sex hundruð sögðu
sig úr þjóðkirkjunni
á þremur mánuðum
Flestir skrá sig utan trúfélags
Vöxtur var hjá öðrum trúfélögum,
hjá fríkirkjunum þremur og hjá
lífsskoðunarfélaginu Siðmennt.
Langflestir þeirra sem skipt hafa
um trúfélög undanfarin ár hafa þó
skráð sig utan trúfélags.
17.607
manns skiptu um
trúfélag frá apríl 2010
og út september 2014.
Þar af voru langfl estir
að segja sig úr þjóðkirkj-
unni, eða 13.145 ein-
staklingar. Þjóðkirkjan
er enn lang stærsta
trúfélagið á landinu.
244.440
manns eru meðlimir
íslensku þjóðkirkjunnar.