Fréttablaðið - 25.10.2014, Side 100
25. október 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 72
© GRAPHIC NEWS
Luis Suarez: Snýr aftur úr fjögurra
mánaða leikbanni eftir HM-bitið
Neymar: Hefur staðið sig vel í ár
og tengir betur við Messi
Lionel Messi: Tveimur mörkum frá
því að bæta markametið í deildinni
Toni Kroos: Lykilmaður á miðjunni
sem kom frá Bayern
James Rodriguez: Tvö mörk og þrjár
stoðsendingar á fyrsta tímabili
Cristiano Ronaldo: Getur ekki hætt
að skora
Real Madrid – Barcelona
Santiago Bernabéu,
Madríd
Tölfræðin á þessu tímabili
Lykilleikmenn
30
9
147
5147
12
22
0
137
5904
12
Skoruð mörk
Mörk fengin á sig
Skot
Sendingar
Gul spjöld
Leikir liðanna
(allar keppnir)
Síðustu leikir í spænsku deildinni
Real 91 Barcelona 89
J48
Þjálfari
Carlo Ancelotti
Fyrirliði
Iker Casillas
Markhæstur
í deildinni
Cristiano
Ronaldo, 15
La Liga 2014/15
Þjálfari
Luis Enrique
Fyrirliði
Xavi
Hernandez
Markahæstur
í deildinni
Neymar, 8
La Liga 2014/15
2013
2014
Barcelona
Real
Real
Barcelona
2-1
3-4
S6 J0 T2 S7 J1 T0
Myndir: Getty Images
SPÆNSKU RISARNIR KLÁRIR Í EL CLÁSICO
FÓTBOLTI Knattspyrnuleikir í Evr-
ópu gerast ekki stærri en El Clás-
ico. Þar mætast tvö af stærstu og
bestu liðum heims; Real Madrid
og Barcelona. Fyrsta viðureign
þessara fornu erkifjenda fer fram
á laugardaginn klukkan 16.00 og
verður í beinni útsendingu á Stöð
2 Sport. „Þetta er bara knatt-
spyrnuveisla. Þetta er það geggj-
aðasta sem sést í fótboltanum á
hverju tímabili,“ segir Guðmund-
ur Benediktsson, knattspyrnulýs-
andi á Stöð 2 Sport, um leikinn við
Fréttablaðið, en Gummi Ben mun
að sjálfsögðu lýsa þessum stórleik.
Sálfræðistríðið hefur verið í
fullum gangi fyrir leikinn; Börs-
ungar þar duglegri að láta gamm-
inn geisa en óvinir þeirra úr höf-
uðborginni. Fréttum fyrir leikinn
fækkaði reyndar alveg um 30 pró-
sent eða svo þegar José Mourinho
lét af störfum sem þjálfari Real.
Honum leiddist aldrei að skjóta á
Börsunga, reyndar leiðist honum
bara ekkert að tala yfirhöfuð.
Forseti brasilíska félagsins
Santos lét heyra í sér í vikunni og
sagði að Neymar hefði kosið sjálf-
ur að spila fyrir Barcelona frekar
en Real Madrid. Hjálp í sálfræði-
hernaðinum úr óvæntri átt en vel
þegin.
Suárez, Suárez, Suárez
Allt í kringum El Clásico að þessu
sinni snýr að úrúgvæska fram-
herjanum Luis Suárez sem Barce-
lona keypti fyrir fúlgur fjár frá
Liverpool í sumar. Það vissi að
þar væri á ferð strákur sem á við
erfiðleika að stríða, en það bjóst
nú væntanlega við að hann væri
búinn að spila leik fyrir félagið
áður en hann gerði endanlega allt
vitlaust í knattspyrnuheiminum.
Þeir sem eru með módem heima
hjá sér og hafa internet-aðgang
eða lesa dagblöð vita vel að Luis
Suár ez hefur verið í löngu keppn-
isbanni eftir að smakka ítalskt á
HM í Brasilíu í sumar.
Luis Enrique, þjálfari Barce-
lona, er búinn að gefa það út að
Suárez muni koma við sögu í leikn-
um. Ekki vænkast hagur mótherja
Barcelona þegar Messi, Neymar
og Suárez verða komnir á fullt, en
það er einmitt spurningin. Hversu
mikið getur Luis Suárez gefið af
sér í leiknum?
Það er ekkert grín að spila
alvöru fótboltaleik eftir fjögurra
mánaða frí og hvað þá einn stærsta
leik ársins. Munurinn er vissu-
lega sá að hann er ekki að koma úr
meiðslum og þurfti enga endur-
hæfinu; Suárez hefur verið
að æfa og spila æfingaleiki
allan tímann.
Deilt hefur verið um í
hversu góðu formi Suárez
er, en hann var úthrópaður
silakeppur af spænskum
fjölmiðlum þegar hann
spilaði fyrsta æfinga-
leikinn.
„Suárez er ekki
í yfirvigt. Alls
ekki. Þetta eru
bara þið, fjöl-
miðlarnir. Hann
er í eðlilegri
þyngd eins og hjá
Liverpool,“ sagði
En rique, sem var
ekki skemmt.
Auðveldari vika
hjá Barca
Bæði Barcelona
og Real Madrid
spiluðu í Meist-
aradeildinni
í vikunni, og
hefur Crist-
iano Ronaldo
látið óánægju
sína í ljós
með að El Clásico-fari fram á laug-
ardegi þegar Real spilaði á mið-
vikudegi.
Vikan var nefnilega öllu auð-
veldari fyrir Barcelona sem
mætti Ajax á þriðjudaginn og það
á heimavelli. Luis Enrique vildi
ekki viðurkenna að hann væri að
hvíla menn fyrir El Clásico, en
samt voru Jérémy Mathieu, Sergio
Busquets og Gerard Pique hvíldir.
Þá tók Enrique Messi, Neymar og
Iniesta út af við fyrsta tækifæri.
Real Madrid þurfti að spila stór-
leik í sínum riðli gegn Liverpool
á Englandi. Það vann auðveldan
sigur, en fékk degi minna í hvíld,
þurfti að fljúga aftur heim og spila
á sínu besta liði.
Múrað fyrir– skora mikið
Bæði Barcelona og Real
Madrid hafa verið þekkt
fyrir öflugan sóknarleik und-
anfarin ár og það hefur ekki
breyst. Luis Enrique hefur
aftur á móti látið sína menn í
Barcelona prófa nýjan hlut; að
fá ekki á sig mark. Þegar átta
umferðum er lokið í deildinni
er Barcelona búið að vinna sjö
leiki, gera eitt jafntefli, skora
22 mörk og fá ekki á sig eitt
einasta.
Þar munar mikið
um komu franska
varnarmannsins
Jérémy Mathieu
frá Valencia; mið-
vörður af gamla skólan-
um sem gerir þetta ein-
falt. Engar krúsídúllur;
bara stendur sína vakt
og sparkar boltanum burt
ef það eru vandræði. Hann og
Javier Mascherano mynda
öflugt miðvarðapar.
Real Madrid hefur
aðeins fengið á sig rétt
rúmt mark
í leik að
meðal-
tali, en
skorar eins og enginn sé morgun-
dagurinn. Þrjátíu mörk komin í
átta leikjum og er annað hægt með
svona stormsveit fyrir framan
miðlínuna? Ronaldo skorar í hverj-
um leik og hinn gríðarlega van-
metni Karim Benzema blómstrar
með aðstoð Toni Kroos og James
Rodríguez.
Barca vinnur með Suárez
„Ég myndi láta Luis Suárez byrja
leikinn,“ segir Guðmundur Bene-
diktsson, beðinn um að spá í spilin
fyrir þennan stórleik.
„Ég myndi vera með Messi í hol-
unni, Suárez frammi með Neym-
ar vinstra megin og Ivan Rakitic
hægra megin. Busquets og Iniesta
á miðjunni, Xavi er búinn,“ segir
Guðmundur sem vill sjá Real-lið-
ið óbreytt fyrir utan að Frakkinn
ungi Rafael Varanë þarf að víkja
fyrir Sergio Ramos í vörninni.
Guðmundur telur Barcelona sig-
urstranglegra þrátt fyrir að vera á
útivelli. Það hefur reyndar unnið
níu af síðustu sautján leikjum á
Bernabéu og þekkir því vel að
vinna í Madríd. Möguleikar Barce-
lona liggja þó í því að spila Suárez
sem mest.
„Barcelona vinnur með Suárez
í byrjunarliðinu. Ég held að press-
an fremst á vellinum verði bara
of góð með hann þarna því hann
getur hlaupið endalaust. Þarna er
Barcelona líka komið með mann
sem getur leitt línuna. Hann býr til
pláss fyrir Messi sem hefur verið í
erfiðleikum með að finna það und-
anfarið. Varnarmennirnir geta
bara hópað sig í kringum hann,“
segir Guðmundur, en Real-liðið
segir hann sterkara á miðjunni.
„Eftir komu Toni Kroos er
Real með sterkari miðju. Hann er
alveg frábær, en hann og Modric
spila mjög vel saman með Isco
og James eiginlega á köntunum í
4-4-2 eins og á Anfield. Þar fékk
Ronaldo bara að leika lausum hala.
Það hentar honum líka ágætlega,“
segir Guðmundur Benediktsson.
Verður Suárez bitlaus eft ir bannið?
Fyrsti El Clásico-leikur vetrarins á milli Real Madrid og Barcelona fer fram á Santiago Bernabéu í Madríd á laugardaginn klukkan 16.00.
Stóra sagan er endurkoma úrúgvæska framherjans Luis Suárez sem losnar úr fj ögurra mánaða keppnisbanni skömmu fyrir leikinn.
Luis Enrique, þjálfari Barcelona, snýr aftur á Santiago Bernabéu í fyrsta sinn sem þjálfari á
laugardaginn þegar El Clásico fer fram. Enrique hóf leikmannsferil sinn með Sporting Gíjon, en
gekk í raðir Real Madrid árið 1991. Hann spilaði 213 leiki fyrir Madrídarliðið á fimm árum.
Enrique hóf ferilinn sem framherji, en var mikið notaður sem bakvörður hjá Real. Undir
lokin var hann lítið notaður og vildi losna frá liðinu. Hann fór 1996 og gerði það sem ekki
má eftir að spila með Real; semja við Barcelona.
Enrique skapaði usla strax á fyrsta blaðamannafundi sem Börsungur þegar hann
sagði: „Mér líkaði aldrei við að sjá sjálfan mig í búningi Real. Mér líður mun betur
í litum Barcelona.“ Eftir það varð ekki aftur snúið. Enrique er hataður af stuðnings-
mönnum Real Madrid, og ekki hjálpaði til að hann fagnaði mörkunum fimm sem hann
skoraði á móti Real með Barcelona af þvílíkum krafti að annað eins hefur varla sést.
„Ég á engar góðar minningar frá tíma mínum hjá Real Madrid,“ sagði Luis Enrique einu sinni.
Honum verður ekki vel tekið á Bernabéu.
Þjálfari Barcelona hataður í Madríd
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
+ +
NEYMARLIONEL
MESSI
LUIS SUAREZ
MARKAVÉL Cristiano
Ronaldo skorar að
vild. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY