Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 31.10.2014, Blaðsíða 10
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi. Sími 585 4000 www.uu.is 19. – 27. NÓVEMBER - 8 NÆTUR Verð frá aðeins 124.900 KR. á mann í tvíbýli með morgunverði á Hotel Zentral Center Stórar Stelpur Munið bílastæði bak við hús HJÁLPARSTARF Magna Björk Ólafs- dóttir hefur starfað á vegum Rauða krossins á Íslandi í alþjóð- legu teymi sem vinnur gegn útbreiðslu ebólufaraldursins í Síerra Leóne. Hún er nú í stuttu stoppi á Íslandi þar sem hún held- ur námskeið fyrir viðbragðsteymi Landspítalans vegna ebólu. Í Síerra Leóne vann hún að fræðslu til þess að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu far- aldursins. Ebólu faraldurinn sem geisar nú í Vestur-Afríku er talinn sá stærsti hingað til og erfitt hefur reynst að koma í veg fyrir smit. Magna var í eldlínunni og segir ástandið slæmt en er sannfærð um að hægt yrði að stöðva farald- urinn, væri rétt staðið að. Neyðin sé mikil og sjálfboðaliðar rekist á marga veggi í starfi sínu. Fólk sé oft hrætt við sjálfboðaliðana og afneitun vegna sjúkdómsins mikil. „Þarna kemur þetta upp á þessu strjálbýla svæði þar sem fólk þekkir ekki sjúkdóminn og er í vissri afneitun á honum. Við brugðumst líka ansi seint við, þetta komst á góðan skrið áður en alþjóðleg aðstoð tók að berast. Það er gerlegt að stoppa þetta. Við þurfum bara gífurlega mikið af hjálparstarfsmönnum og pen- ingum. Það þarf meiri pening og líka góða stjórnun yfir þetta allt saman.“ Hún hefur horft upp á marga lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómn- um og segir það vissulega erfitt þó hún sé búin að koma sér upp þykkum skráp. „Dauðinn er aldrei skemmtileg- ur. Það er mjög erfitt að sjá full- orðna og börn deyja í massavís. En þetta er vinna og á ákveðn- um tímapunkti verður þú að líta á þetta sem vinnu til þess að ná ákveðnum markmiðum. Ef þú gerir það ekki þá ertu bara heima grátandi uppi í herbergi og það er ekkert gagn að þér,“ segir Magna. Undanfarna mánuði, eða frá því hún kom frá Síerra Leóne, hefur hún starfað í Sviss þar sem hún hefur umsjón með námskeiðum fyrir sendiboða á leið til starfa. „Ég var kölluð heim vegna þess að hlutirnir voru mjög óráðnir hérna á Íslandi og ekki aðstaða til að taka við mér ef ég myndi smit- ast. Þá fór ég til Sviss til að vera þar í 21 dag sem er meðgöngutími þess að sjúkdómurinn komi fram. Í kjölfarið fór ég í þjálfun hjá Læknum án landamæra í Belgíu og svo þróaðist það út í að þörfin fyrir þjálfun var mikil, ég var á staðnum og fór að sinna henni.“ Magna hefur frá árinu 2010 verið víða um heim í hjálpar- starfi. Meðal annars á Haítí, í Kenía og Írak. Hún segist sjald- an óttast aðstæður eða að eitt- hvað komi fyrir sig enda gefist ekki tími í það þar sem neyðin sé svo mikil. „Ég hafði ekki tíma til þess að vera hrædd. Það komu alveg stundir, sérstaklega í lok dags þegar maður var kominn í ró, að það poppaði upp í höfð- inu á mér hvort ég hefði nokkuð gleymt að þvo mér úr klór eftir daginn, hvort ég hefði gert ein- hver mistök. Það er algengt að fólk leggist upp í rúm á kvöld- in og reki slóðina yfir daginn,“ segir hún. Fjölskylda Mögnu er heima á Íslandi og segir hún að þótt þau óttist vissulega um hana þá virði þau störf hennar. „Þau eru alltaf hrædd um mig þegar ég fer en þau eru ótrúlega stuðningsrík og virða það að þetta sé það sem ég vil. Ég held að það sé oft erfiðara fyrir þau en mig. Þau sitja eftir og hlusta á fréttir meðan ég sé hvernig þetta er í raunveruleik- anum. En ég reyni að vera dugleg að láta þau vita af mér.“ Magna heldur aftur til Sviss eftir helgi þar sem hún held- ur áfram að kenna á námskeið- um. Hún vonast þó til að geta farið aftur út. „Þar er þörfin mest,“ segir hún og er staðráðin í að halda áfram í hjálparstarfi. „Þetta er það sem drífur mig áfram og það sem ég vil gera.“ viktoria@frettabladid.is Starfaði með fólki smituðu af ebólu Magna Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur unnið hjálparstarf á vegum Rauða krossins í Síerra Leóne til þess að hindra útbreiðslu ebólufaraldurs. Núna heldur hún námskeið og fræðir sjálfboðaliða, bæði í Sviss og á Íslandi. DÓMSMÁL „Samningaviðræður við verktakana og tryggingafélag- ið báru ekki árangur. Þess vegna höfum við stefnt þeim.“ Þetta segir Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir, íbúi á Lágholtsvegi 15 í Reykjavík. Íbúar þar og á Grandavegi 38 hafa höfð- að mál á hendur verktakafyrir- tækjunum Hagtaki og Þingvangi og Vátryggingafélagi Íslands, VÍS, vegna tjóns sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna sprenginga á svo- kölluðum Lýsisreit þar sem reisa á fjölbýlishús. „Við viljum að þeir viðurkenni skaðabótaskyldu og beri kostnað af mati á tjóninu,“ segir Svanlaug Rós. Hún býr aðeins sex metrum frá klöppinni þar sem sprengt var um margra vikna skeið fyrr á þessu ári eða frá 6. janúar til 31. mars. Í viðtali við Fréttablaðið um miðj- an febrúar sagði Svanlaug allt hafa nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag frá því að byrjað var að sprengja í janúarbyrjun og að skemmdir hefðu orðið á húsi hennar. Í stefnunum segir að spreng- ingarnar hafi verið í andstöðu við ákvæði reglugerða um sprengi- efni. Í kjölfar frétta af mótmælum íbúa vegna sprenginganna síðast- liðinn vetur sagði þáverandi for- maður umhverfis- og skipulags- ráðs Reykjavíkurborgar, Páll Hjaltason, í viðtali við Fréttablað- ið að Reykvíkinga skorti þekkingu á því hvernig byggja ætti í þéttri byggð. Hann sagði þörf á skýrari verklagsreglum. - ibs Samningaviðræður íbúa í nágrenni Lýsisreits við verktaka og Vátryggingafélag Íslands um bætur hafa verið árangurslausar: Stefna verktökum vegna tjóns af sprengingunum SKEMMDIR Svanlaug Rós Óskarsdóttir, íbúi á Lágholtsvegi við Lýsisreitinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í STUTTU STOPPI HEIMA Magna Björk hefur um árabil sinnt hjálparstarfi víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Dauðinn er aldrei skemmtilegur. Það er mjög erfitt að sjá fullorðna og börn deyja í massavís. Magna Björk Ólafsdóttir, starfsmaður Rauða krossins. TYRKLAND, AP Tíu íraskir Kúrdar, allt liðsmenn Peshmarga-sveitanna, héldu yfir landamærin frá Tyrklandi til Sýrlands í gær til þess að berjast þar gegn vígasveitum Íslamska ríkisins. Þetta er í fyrsta sinn sem tyrk- nesk stjórnvöld leyfa Kúrdum að fara yfir til Sýrlands til að taka þátt í átökum. Tyrkneskir Kúrdar hafa ekki fengið slíkt leyfi. Hörð átök standa enn yfir í bænum Kobani, skammt frá landamærum Tyrklands. - gb Tyrknesk stjórnvöld opna á hernað gegn vígasveitum: Kúrdum hleypt yfir landamærin FLÓTTAMANNABÚÐIR Í TYRKLANDI Kúrdi heldur á syni sínum í Rojova-flótta- mannabúðunum í Suruc, skammt frá landamærum Sýrlands. NORDICPHOTOS/AFP BORINN HINSTA SPÖLINN Verkamenn sem sérhæfa sig í greftrun þolenda ebóluveirunnar bera lík að gröf í Síerra Leóne. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.