Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2014, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 31.10.2014, Qupperneq 18
31. október 2014 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings hf., hefur í tveimur blaðagreinum fyrir skömmu rakið fram- gang lánveitingar Seðlabankans til Kaup- þings 6. október 2008. Á þeim tíma lánaði Seðlabankinn Kaupþingi 500 milljón evrur, um það bil helming gjaldeyrisvarasjóðs Íslands, gegn vilyrði um veð í hlutabréf- um bankans í dönskum banka að sögn for- stjórans. Útborgun lánsins fór fram eftir hádegið þennan dag, en flýtirinn var svo mikill að ekki vannst tími til að ganga frá formlegum lánssamningi. Lánið var veitt í þeirri sælu trú að Kaupþing mundi trú- lega lifa af þær hremmingar sem þá hrjáðu fjármálamarkaði heimsins – annars hefði lánið að sjálfsögðu ekki verið veitt. Upplýst hefur verið að bankastjórn Seðlabankans tók ákvörðun um lánveit- inguna að höfðu samráði við þáverandi for- sætisráðherra, sem í sjónvarpsútsendingu til landsmanna síðar sama dag bað guð að blessa Ísland. Að kvöldi þessa dags var svo frumvarp til svokallaðra neyðarlaga tekið til með- ferðar á Alþingi og samþykkt með hraði. Undirritaðir telja útilokað annað en að for- sætisráðherrann hafi vitað um undirbún- ing þeirrar lagasetningar þegar ákvörðun var tekin um lánveitinguna. Afar líklegt verður að telja að formaður bankastjórnar Seðlabankans hafi einnig vitað um þetta á þeim tíma. Með neyðarlögunum voru bankainnstæður gerðar að forgangskröfum við skipti, en fram að þeim tíma voru þær almennar kröfur. Slík röskun á hagsmun- um kröfuhafa bankanna hlaut að leiða til gjaldfellingar lánasamninga erlendra lána- stofnana, en ljóst var að enginn íslensku viðskiptabankanna gæti staðið slíkt af sér. Setning neyðarlaganna leiddi þess vegna til þess að lánið sem Kaupþingi var veitt 6. október 2008, helmingur gjaldeyrisvara- sjóðs landsins, brann upp þá um nóttina. Getur það verið að þeir menn sem tóku ákvörðun um lánveitinguna 6. október 2008 hafi ekki áttað sig á þeirri verulegu fjártjónshættu sem lánveitingunni fylgdi í ljósi fyrirætlana sem fólust í frumvarpi til neyðarlaganna? Getur verið að efni neyðarlaganna hafi komið til tals í símtal- inu fræga sem þessir menn áttu í aðdrag- anda lánveitingarinnar og þeir vilja alls ekki birta? Það er afar áríðandi að fá þetta upplýst ef menn ætla sér á annað borð að brjóta til mergjar öll stóru málin sem tengdust hruninu 2008. Hver vissi hvað? FJÁRMÁL Ragnar Hall Helgi Sigurðsson hæstaréttarlög- menn ➜ Getur verið að efni neyðarlag- anna hafi komið til tals í símtalinu fræga sem þessir menn áttu í að- draganda lánveitingarinnar og þeir vilja alls ekki birta? Löggan slapp fyrir horn Í nýrri skoðanakönnun MMR um viðhorf fólks til einstakra stofnana í samfélaginu kemur fram að lögreglan nýtur meira trausts en aðrar stofnanir. Hugsanlega hefur lögreglan sloppið fyrir horn, þar sem ólukkan hefur elt hana síðustu daga, dagana eftir að könnunin var gerð. Þar má nefna hríð- skotabyssumálið og svo njósnaskýrslu Geirs Jóns Þórissonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns, hversu klaufalega tókst til hjá lögreglunni. Eins og allir vita mistókst að afmá nöfn í skýrslunni og í ofanálag missti lögreglan hana á netið þar sem hver sem vill getur nú lesið. Athygli vekur að safnað var saman persónuupplýsingum um almenning. Alþingi situr í súpunni Alþingi gengur illa að auka traust til sín hjá þjóðinni. Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti þingsins, og aðrir sem þar starfa verða að sætta sig við að innan við þrettán prósent svarenda í könnun MMR, segjast bera traust til Alþingis og tæplega 55 prósent segjast ekki bera traust til þingsins. Annað er eftirtektarvert, en það er að stjórnarandstaðan nýtur mun meira trausts en ríkisstjórnin og eins vantreysta mun fleiri ríkisstjórn- inni en stjórnarandstöðunni. Á ekki löngum tíma hefur orð- ið algjör viðsnúningur hvað þetta varðar. Þeir flokkar sem nú skipa stjórnarandstöðuna þóttu ekki par fínir fyrir ekki löngu síðan. Alþingi og ebólan Margir hafa velt fyrir sér niður- stöðum könnunar MMR um traust til stofnana samfélagsins. Þeirra á meðal er Gunnar Smári Egilsson sem fann nýja nálgun, ekki síst vegna slæmrar stöðu Alþingis og stjórnmálamanna. Hann skrifar á Facebook: „Traust til stofnana mjakast eilítið upp– nema til ríkis- stjórnar og Alþingis. Traust á þessum fyrirbrigðum fellur aftur eftir örlítinn bata í fyrra. Það er spurning hvort MMR eigi ekki að bæta við fyrirbrigðum eins og Íslamska ríkinu, ebólu eða einhverju slíku svo við fáum raunhæfan samanburð á trausti íslensku þjóðarinnar til stjórnvalda og stjórnmálamanna.“ sme@frettabladid.is Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Í slenskt heilbrigðiskerfi verður að vera samkeppnisfært við nágrannalönd um tækjakost, aðbúnað sjúklinga og aðstæður starfsmanna.“ Svo segir í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar- innar. Engu að síður er það ekkert launungarmál og líklegast nokkuð óumdeilt að staðan í heilbrigðismálum á Íslandi hefur farið hríðversnandi frá hruni. Landflótti lækna ógnar kerfinu og Læknafélagið hefur um árabil varað við niðurskurði í greininni. Fáir læknar ef einhverjir sækja um lausar stöður. Heimilislækna vantar sárlega til starfa á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggð- inni eru fáir fastráðnir læknar. Á Landspítalanum er mikil undir- mönnun og þá sérstaklega í sér- greinum, eins og krabbameins- lækningum. Miðað við spár um brottflutning sem og hækkun meðalaldurs lækna er ljóst að læknaskortur er orðinn við- varandi vandi. Ofan á það bætist að aðstaða á þjóðarspítalanum er algerlega óviðunandi. Fréttir af plássleysi, biluðum tækjabúnaði, myglu eða leka á ýmsum við- kvæmum deildum spítalans eru orðnar eins fastur liður og fréttir af fyrstu snjókomunni eða lóunni. Læknar halda því fram að kjör þeirra séu engan veginn sam- bærileg við kjör sem þeim standa til boða erlendis og þeir hafi dregist aftur úr í samanburði við aðrar háskólamenntaðar stéttir. Af þeim sökum boðuðu þeir til verkfalls sem hefur nú staðið yfir í tæpa viku. Verkfallið er skipulagt í tveggja daga hollum þar sem ákveðnir hópar lækna skiptast á að fara í verkfall tvo daga í senn. Fresta hefur þurft aðgerðum sem ekki teljast til bráðatilfella, þar á meðal hjartaaðgerðum. Enn verri staða verður uppi í næstu viku þegar svæfingar- og skurðlæknar leggja niður störf í beit, þá mun meðal annars þurfa að fresta krabbameinsaðgerðum. Læknar hafa hingað til passað vel upp á að aðgerðir þeirra stofni ekki lífi sjúklinga í hættu. Barátta þeirra felur hins vegar í sér óhjá- kvæmilegar tafir á meðferð fjölda fólks og því lengur sem þessar aðgerðir vara þeim mun meiri hætta er á að þær hafi alvarlegar ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir einstaka sjúklinga. Það er því áhyggjuefni að staðan í viðræðum deiluaðila virðist í fullkomnum hnút. Læknar krefjast, samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins, allt að 36 prósenta hækkunar, á meðan ríkið er tilbúið að hækka laun þeirra um 2,5 til 3 prósent. Himinn og haf er þarna á milli og því líklegast langt í að niðurstaða fáist. Það þarf varla að taka það fram að samkeppnishæf laun eru lykilatriði til að stöðva landflóttann og manna þær stöður sem vantar upp á í heilbrigðis- kerfinu. Þá verður að tryggja að annar aðbúnaður sé í það minnsta boðlegur. Miðað við fyrirheit stjórnvalda sem boðuð voru við myndun ríkisstjórnarinnar vorið 2013 hljóta læknar að eiga von á því að komið verði til móts við þá í þessum kjaraviðræðum. Í ræðu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra: „Við getum ekki boðið sjúkling- um né starfsfólki í heilbrigðiskerfinu upp á viðvarandi niðurskurð og óöryggi. Ekkert okkar vill horfa upp á hnignun á þessu sviði. Öll eigum við heilbrigðiskerfinu skuld að gjalda.“ Ef staðan í þjóðarbúinu er sú að ekki er hægt að hækka laun lækna um tugi prósenta verða stjórnvöld allavega að sýna fram á vilja til að bæta aðstæður og kjör þeirra til framtíðar. Boð um 2,5 til 3 prósenta hækkun lýsir ekki slíkum vilja. Hnignun heilbrigðiskerfisins er staðreynd. Það er komið að skuldadögum. Það verður að bæta aðstæður og kjör lækna: Skuldadagar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.