Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 34
FÓLK|JÓLAHLAÐBORÐ
JÓLAMATSEÐILL
Leifur Kolbeinsson, matreiðslumeistari og einn eigenda Kolabrautarinnar, segir að starfsfólkið sé að komast í jólaskap og hlakki mikið til að taka á
móti gestum í hátíðarmatinn. „Við vorum með svipaðan
jólamatseðil í fyrra sem gestir voru ákaflega ánægðir
með. Þess vegna ákváðum við að vera á sömu nótum
núna,“ segir Leifur.
„Gestir byrja á því að velja sér einn aðalrétt af fjór-
um, nautafilet, lynghænu, fisk eða grænmetisrétt. Allir
ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þegar
búið er að velja aðalréttinn byrjar veislan,“ segir Leifur.
„Fimm tegundir af forréttum eru bornir á borð, einn af
öðrum. Byrjað er á léttari forréttum, til dæmis græn-
metisrétti með svartri radísu og endað á hreindýra-
tartar og villigæsasúpu,“ útskýrir Leifur og bætir við
að þetta sé ekki hefðbundið jólahlaðborð. „Við viljum
að gestirnir sitji lengi og njóti réttanna. Þetta er mikill
matur og þess vegna erum við ekkert að flýta okkur.
Eftir aðalrétt kemur síðan eftirréttabomba, það er úrval
af jólaeftirréttum. Ég get lofað því að það gengur enginn
svangur frá borði.“
Kolabrautin hefur verið starfandi í tæp fjögur ár og
hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af bestu veit-
ingastöðunum í borginni. Þar fyrir utan geta gestir
notið fallegs útsýnis yfir Reykjavík og höfnina á meðan
veitingarnar renna ljúflega niður. „Við erum hófsöm í
skreytingum hér innandyra en gestir geta virt fyrir sér
jólaskreytingar í borginni út um gluggana hjá okkur.“
Tíu rétta jólamatseðill kostar 9.500 krónur á mann. Ef
fólk vill sérvalið vín með réttunum kosta herlegheitin
18.800 krónur, en innifalið eru fjögur mismunandi létt-
vín og hvítt jólaglögg með eftirréttunum.
Hinn frábæri vínsérfræðingur Kolabrautarinnar,
Alba E.H. Hough, aðstoðar fólk við val á víni ef þess er
óskað. Best er að panta borð sem fyrst en jólamatseðill-
inn verður í boði alla daga frá 20. nóvember.
Kolabrautin er á efstu hæðinni í Hörpu, sími 519
9700. Hægt er að skoða matseðla á www.kolabrautin.is.
JÓLAMATUR FYRIR ALLA
SÆLKERA Á KOLABRAUTINNI
KOLABRAUTIN KYNNIR Kolabrautin í Hörpu býður upp á glæsilegan jólamatseðil frá 20. nóvember. Tíu rétta hátíðarseðil þar sem
gestir geta valið sér aðalrétt. Jólamatur sem ætti að kitla bragðlauka allra sælkera.
JÓLAGLEÐI Starfsfólk Kolabrautarinnar hlakkar mikið til að taka á móti gestum í tíu rétta jólamatseðil. MYND/PJETUR
FORRÉTTIR
● Villigæsasúpa með lakkrísrjóma
● Hreindýratartar á stökku brauði með kóngasveppa-aioli og lauk
● Svart radísusalat með granatepli, sauðaosti og sítrus-vinaigrette
● Kjúklingalifrarfrauð með krækiberjahlaupi
● Hægeldaður lax með fennelsultu og mascarpone-sósu
AÐALRÉTTIR
● Girini með rauðvíni, gráðaosti, furuhnetum og rauðsalati
● Sjávarrétta-burrida úr fersku sjávarfangi með rouilli og grilluðu
súrdeigsbrauði
● Grilluð lynghæna með grænkáli, seljurótarmauki og granatepli
● Nautafilet með kremuðu svepparagú, graskeri og perlulauk
EFTIRRÉTTIR
● Tiramisu-ís, omnom súkkulaði- og möndlufrauð, sítrónubaka og
jólaávaxtasalat
KOLABRAUTARINNAR