Fréttablaðið - 31.10.2014, Page 46
LG G3 var svo byltingarkenndur að hann seld-ist í fimm sinnum meira upplagi þegar hann kom út í sumar í Suður-Kóreu
en Samsung Galaxy S5 þegar hann
kom út, en fyrir þá sem ekki vita er
Suður-Kórea heimaland Samsung
og LG,“ segir Guðni Kristjánsson,
framkvæmdastjóri og eigandi Actus.
„LG kom á óvart með útgáfu LG
G2 í fyrra. Endaði með því að hann
var valinn snjallsími ársins 2013 og
nýtur hann mikilla vinsælda enn í
dag. LG G2 er enn þá mjög öflugur
snjallsími og ekki skemmir fyrir að
við náðum frábærum samningum
við LG um sérstakt verð á honum
sem er nú í gangi hjá flestum endur-
söluaðilum fram til jóla.
LG G3 mögulega
snjallsími ársins 2014
Sigurför LG heldur áfram því marg-
ir hafa nefnt LG G3 sem snjall-
síma ársins 2014. „LG G3 var sett-
ur á markað í sumar og var fyrstur
til að fá „Quad HD“-skjáupplausn en
Samsung Galaxy S5 er með helm-
ingi minni upplausn og Apple er að
koma með fjórum sinnum minni
upplausn í iPhone 6 miðað við LG
G3.“
Hjá LG er lögð mikil áhersla á raf-
hlöðuendingu og eru allir snjall-
símarnir frá LG með yfirburða raf-
hlöðuendingu sem dugar allan dag-
inn og fyrir marga nokkra daga á
einni hleðslu. „LG G3 er með hröð-
ustu myndavélina sem skilar frábærum gæðum og
er mjög einföld í notkun. Til að ná þessum hraða
þurfti nýja tækni sem heitir „Laser Auto Focus“.
Þessi tækni hefur ekki verið notuð áður í símtæki
en henni svipar til laser-byssunnar sem lögregl-
an notar til að hraðamæla, sem sumir ættu að
kannast við,“ útskýrir Guðni.
Ótrúlega einfaldir
Að sögn Guðna endurhannaði LG
allt stýrikerfið í G3 og einfaldaði
allt fyrir notandann. „Það má eig-
inlega segja að það sé ekkert sem
ekki er hægt að aðlaga að þörfum
hvers og eins í tækinu. Sem dæmi
er búið að sameina mörg lík öpp
og einnig getur notandinn valið að
eyða út óþarfa öppum sem komu
með tækinu upp úr kassa. Þessi
valmöguleiki hefur ekki verið í
boði áður og í mörgum tilfellum
hefur notandinn þurft að sitja uppi
með mörg óþarfa öpp sem f lækjast
fyrir og taka einnig upp geymslu-
pláss og vinnsluminni.“
Slagorð LG G3 er „Simple is the
new smart“ og LG leggur upp með
einfaldleikann að vopni enda G2
og G3 með marga eiginleika sem
einfalda hlutina til muna. Sem
dæmi má nefna að þegar síminn
hringir er nóg að taka hann upp
og leggja hann að eyranu og hann
svarar sjálfur.
LG að taka fram úr hinum?
„LG fékk titilinn „Most innovative
handset maker of the year 2014“ á
virtustu ráðstefnu símaframleið-
enda MWC í Barcelona þar sem
allir símarisarnir mæta og kynna
sínar vörur. Þennan titil færðu ekki nema að þú
sért að gera eitthvað framúrskarandi enda telja
margir að LG sé búinn að taka fram úr hinum
risunum,“ segir Guðni.
LG G3 – Væntanlega
besti snjallsími í heimi
LG G3 hefur farið sigurför um allan heim og hefur hann selst í metfjölda
eintaka og fengið eina bestu gagnrýni sem sími hefur fengið, jafnt erlendis og
hér heima. LG fékk titilinn „Most innovative handset maker of the year 2014“.
KOSTIR NÝJA LG G3
„Quad HD“-skjáupplausn
Hröð myndavél
Frábær rafhlöðuending
Einfalt stýrikerfi
Glæsileg hönnun
Nýtt LG G úr í nóvember
Fyrir stuttu kom út LG G Watch, sem er fyrsta snjallúrið sem skartar Android Wear-stýrikerf-
inu. Þetta þýðir að hægt er að nota úrið með öllum Android-símum með Android-útgáfu 4.3
eða hærra, Samsung Gear gengur til dæmis einungis við ákveðna Samsung-síma.
Fyrir utan að sýna tímann er úrið í grunninn framlenging af símanum, þar sem allar til-
kynningar sem berast í símann birtast á úrinu. Hægt er að stjórna vissum smáforritum, til
dæmis tónlistarspilaranum, með úrinu, svara símtölum og tölvupósti, skoða SMS og margt
f leira. Í úrinu er einnig skrefateljari, tenging við öll helstu Google-smáforritin, raddleit í
gegnum Google, skeiðklukka og margt fleira.
Ný útgáfa af LG G Watch, G Watch R, er væntanleg í verslanir á Íslandi um miðjan nóvem-
ber.
Það úr verður svipað fyrirrennara sínum að mörgu leyti, en verður sérstakt að því leyt-
inu til að það verður hringlaga. Þetta er í fyrsta sinn sem skjár á snjallúri er alveg hringlaga.
Kappkostað var að gera LG G Watch R líkara venjulegu úri en snjallgræju.
Guðni Kristjánsson