Fréttablaðið - 31.10.2014, Síða 58
16 • LÍFIÐ 31. OKTÓBER 2014
„Það er eitt að taka
út augljósan sykur svo
sem sælgæti, gos og
sætabrauð en þegar
hugmyndir eru um að
halda lengra birtist
fjall í fjarska sem
nánast vonlaust er að
klífa. Sykur er notaður
í það margar matvörur
að það væri nær að
gera lista yfir matvörur
sem sykurinn er ekki í“
2 dl vatn
3 dl kókosmjólk
1 tsk. grænt karrýmauk
1 hvítlauksrif, pressað
2 cm biti fersk engiferrót,
smátt söxuð
3-4 límónulauf
1 stöngull sítrónugras
500 g grænmeti, skorið í pass-
lega bita. (120 g gulrætur, 120
g paprika, 120 g blómkál, 120 g
sætar kartöflur).
200 g soðnar svartar
baunir
½ tsk. salt
1 hnefi ferskur kóríander
Setjið vatn, kókosmjólk, grænt
karrý mauk, hvítlauk, engifer, lím-
ónulauf, sítrónugras í pott, hrær-
ið í og látið suðuna koma upp.
Bætið grænmeti útí og látið malla
í um 10 mín. eða þar til græn-
metið er byrjað að mýkjast. Klipp-
ið ferskan kóríander yfir og berið
fram með grænu salati.
BRAGÐGOTT
THAI CURRY
AÐ HÆTTI SOLLU
Leikkonan Aníta Briem kom í heimsókn til
Heilsugengisins í þættinum sem sýndur var á
Stöð 2 í gærkvöldi. Solla Eiríks bjó til einstak-
lega bragðgott og hollt thai curry fyrir Anítu.
Heilsugengið
er þáttaröð
sem sýnd er
á Stöð 2 á
fimmtudags-
kvöldum.
Margir hafa tekið áskorun um að
reyna að skera niður sykurneyslu
en það hefur mörgum reynst
þrautin þyngri þar sem hann er
að finna í nánast flestöllum fram-
leiddum matvörum í einu eða
öðru formi. Það er eitt að taka út
augljósan sykur svo sem sælgæti,
gos og sætabrauð en þegar hug-
myndir eru um að halda lengra
birtist fjall í fjarska sem nánast
vonlaust er að klífa.
Sykur er notaður í það marg-
ar matvörur að það væri nær að
gera lista yfir matvörur sem syk-
urinn er ekki í og hvað þá gervi-
sykur.
Skoðið innihaldslýsinguna
Sykur er góður, já við vitum það,
en hann gefur líka fallega áferð,
meiri fyllingu í matinn og sælu-
tilfinningu eftir átið. Er það
ekki hin fullkomna samsetn-
ing, ekki satt? Jú, því miður er
það alveg hárrétt. Sykurinn á sér
líka svartar hliðar sem eru þess-
um ljósu yfirsterkari. Hann er
ávanabindandi, fitandi, næring-
arlaus, hreint út sagt eitur í of
miklu magni og hann felur sig
allstaðar.
Matvælaframleiðendum og
matvælainnflytjendum er skylt
að vera með innihaldslýsingu
á matvörum á Íslandi. Með því
að skoða innihaldslýsinguna er
hægt að sjá heildarmagn sykurs
í vörunni og yfirleitt líka í hverj-
um skammti eða í hverjum 100
grömmum.
Í innihaldslýsingum á að telja
upp allt sem sett er í vöruna. Fyrst
það sem mest er af og síðan koll af
kolli eftir minnkandi magni, þann-
ig að ef um er að ræða vöru þar
sem sykurinn er ofarlega á list-
anum þá inniheldur varan líklega
mikinn sykur. Það sama gildir um
matvælaframleiðendur erlendis
og á eftirtöldum lista er að finna
hin mörgu nöfn og andlit sykurs
sem gott er að hafa í huga næst
þegar þú lest aftan á innfluttar
matvælapakkningar.
ÚLFUR Í
SAUÐARGÆRU
Sykur hefur mikið verið til umfjöllunar undanfarnar vikur og mánuði
enda ekki að ástæðulausu, þetta er eitt mest notaða efni í matvælafram-
leiðslu í heiminum í dag og er notað í mun fleiri vörur en mann grunar.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins
Sykurinn er ávanabindandi, fitandi og næringarlaus. Hreint út sagt eitur í of miklu magni.
ENSK HEITI YFIR SYKUR
Brown sugar
Cane juice
Cane syrup
Confectioners’ sugar
Corn sweetener
Corn syrup
Dextrose
Fructose
Fruit juice concentrates
Glucose
Granulated white sugar
High-fructose corn syrup
Honey
Invert sugar
Maltose
Malt syrup
Molasses
Raw sugar
Sucrose
Syrup