Fréttablaðið - 31.10.2014, Side 87

Fréttablaðið - 31.10.2014, Side 87
FÖSTUDAGUR 31. október 2014 | LÍFIÐ | 51 Íslandsmeistaramótið í póker 2014 fer fram í Hótel Borgarnesi um helgina. Í tilkynningu segir að mótið hafi aldrei verið glæsilegra heldur en í ár enda sé póker í mikilli uppsveiflu hérlendis. Sérstaklega eftir að IFP (International Federation of Poker) sendi Pókersambandi Íslands bréf þess efnis að Match Poker væri hug- aríþrótt og þar með lögleg íþrótt. Því bréfi hefur verið komið til við- eigandi aðila hérlendis þar sem krafist er viðurkenningar á Match Poker sem löglegri íþrótt hérlend- is. Íslandsmeistarinn í póker hlýtur um þrjár milljónir króna í verð- laun, silfurarmband og sérmerktan glerbikar ásamt þeim titli að verða fyrsti íslenski landsliðsmaðurinn í póker. Sökum staðfestingarinnar frá IFP og Sport’s Accord mun Pókersam- band Íslands senda landslið til að keppa í fyrsta sinn á heimsmeistara- móti í Match Poker á komandi ári og fer Íslandsmeistarinn 2014 að sjálf- sögðu þangað í boði sambandsins. Pókermeistari fær þrjár milljónir í verðlaun Íslandsmeistaramótið í póker verður haldið í Borgarnesi um helgina. Sigurvegarinn kemst í landsliðið. VERÐUR Á STAÐNUM Davíð Þór Rúnarsson, formaður Pók- ersambands Íslands, verður í Borgarnesi um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ➜ Þrjár staðreyndir um Íslandsmótið í póker 55 Grínarinn Jim Carrey var gestur Davids Letterman í spjallþætt- inum The Late Show á miðviku- dagskvöldið. Ákvað spéfuglinn að ganga úr skugga um að Letter- man væri örugglega ekki sýktur af ebóluveirunni. Carrey var með hitamæli á sér og athugaði hvort spjall- þáttakóngurinn væri með hita á meðan hann spurði hann nokk- urra spurninga. Spurði Carrey hvort Letterman hefði ferðast til útlanda nýlega og svaraði spjall- þáttakóngurinn neitandi. Þegar Carrey hins vegar spurði hvort hann hefði kysst apa eða sleikt flugvélasæti þurfti Letterman að hugsa sig um. Eftir smástund sagði Letterman að það gæti hafa gerst einhvern tímann og upp- skar hann mikil fagnaðarlæti frá áhorfendum. - lkg Lét Letterman taka ebólupróf UPPÁTÆKJASAMUR Jim Carrey er engum líkur. NORDICPHOTOS/GETTY Vaxmyndasafnið Madame Tuss- auds opnar útibú í Orlando í Bandaríkjunum snemma á næsta ári. Nú er búið að tilkynna hvaða stjarna verður fyrst til að fá vax- mynd af sér á safninu en það er engin önnur en leik- og söngkonan Selena Gomez. Selena er hvað þekktust fyrir að leika í þáttum á sjónvarpsstöð Disney, en hún hefur einnig verið mikið á milli tannanna á fólki síð- ustu ár fyrir að vera í „haltu mér slepptu mér“ sambandi við popp- prinsinn Justin Bieber, en vax- mynd af honum mun án efa einnig prýða nýja safnið í Orlando. - lkg Vaxmynd af Gomez STEYPT Í VAX Aðdáendur Selenu í Orlando eru eflaust ánægðir með frétt- irnar. NORDICPHOTOS/GETTY þúsund krónur kostar inn. 125 kepp endur eru nú þegar skráðir til leiks sem eru töluvert fl eiri en undanfarin ár. Mótið verður tekið upp og búinn til sjónvarps þáttur upp úr efninu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.