Fréttablaðið - 31.10.2014, Side 88
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 52
SÍÐUSTU TVÖ TÍMABIL
MEÐ FH (2013-14)
39 leikir 2164 mínútur
7 mörk + 6 stoðsendingar
ÞÁTTUR Í 13 MÖRKUM
SÍÐUSTU TVÖ TÍMABIL
MEÐ FYLKI (2011-12)
37 leikir 3121 mínútur
17 mörk + 10 stoðsendingar
ÞÁTTUR Í 27 MÖRKUM
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
FÓTBOLTI Ingimundur Níels Óskarsson og
Jóhannes Karl Guðjónsson skrifuðu í gær undir
samning við Pepsi-deildarlið Fylkis. Jóhannes
Karl skrifaði undir eins árs samning og er að
koma í Árbæinn eftir að hafa fallið úr deildinni
tvö ár í röð, fyrst með ÍA 2013 og svo með Fram
2014. Ingimundur Níels Óskarsson er aftur á
móti kominn aftur í Fylki eftir tveggja ára veru
í FH en Ingimundur gerði þriggja ára samning.
Ingimundur Níels byrjaði 14 af 20 leikjum
sínum með FH í sumar, skoraði fjögur mörk
og átti þrjár stoðsendingar. „Mig hefur lengi
dreymt um að vinna Íslandsmeistaratitilinn
en það tókst ekki í ár sem var grátlegt,“ sagði
Ingimundur í samtali við Arnar Björnsson á
íþróttadeild 365 í gær. Þegar Ingimundur kom
í FH var liðið nýbúið að vinna titilinn en liðið
fékk silfur bæði ár hans í Hafnarfirðinum.
„Ég hefði viljað vera þar áfram en þeir voru
að hugsa aðra hluti þannig að maður verður
bara að taka því. Maður kemur því bara aftur
hingað og reynir að gera eitthvað,“ sagði hann.
Ingimundur er nú aftur kominn í Árbæinn
þar sem hann fór á kostum fyrir þremur árum
þegar hann var með 10 mörk og 6 stoðsending-
ar í 21 leik.
Það er athyglisvert að bera saman síðustu tvö
árin hans hjá FH annars vegar (2013 og 2014)
og Fylki hins vegar (2011 og 2012). Ingimund-
ur spilaði tveimur leikjum færra með Fylki
en skilaði samt yfir tvöfalt meira í sköpuðum
mörkum. Ingimundur kom að 13 mörkum þessi
tvö tímabil hjá FH (7 mörk og 6 stoðsendingar)
en var maðurinn á bak við 27 mörk Fylkisliðs-
ins sumrin 2011 og 2012 (17 mörk og 10 stoð-
sendingar).
Fleiri félög en Fylkir höfðu áhuga á Ingi-
mundi en hann valdi á endanum að klæðast
aftur appelsínugulu næsta sumar. Tölfræð-
in sýnir að þar er strákurinn á heimavelli og
Árbæingar trúa því og treysta að hann taki
aftur upp fyrri siði næsta sumar.
Mörkin hans ættu að hjálpa liðinu að forð-
ast fallbaráttuna og það hljómar örugglega
einkar vel í eyrum Jóhannesar Karls. „Síðustu
tvö tímabil hafa verið svolítil vonbrigði og það
hefur ekki verið neitt sérstaklega gaman að
taka þátt í að falla tvisvar. Það er eitthvað sem
ég hef ekki áhuga á að gera aftur. Ég er alls
ekkert að gefast upp. Það er hugur í mér og
ég ætla að taka næsta tímabil með Fylki með
trompi,“ sagði Jóhannes Karl við Arnar. - óój
Skilaði tvöfalt meira hjá Fylki en hjá FH
Ingimundur Níels Óskarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson sömdu báðir við Fylkismenn í gær.
KOMNIR Í APPELSÍNUGULT Ingimundur Níels og
Jóhannes Karl í Árbænum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
INGIMUNDUR AFTUR Í LIT NÆSTA SUMAR
HANDBOLTI „Það er vissulega þægi-
legt að byrja á svona leik. Ná úr
sér mesta skrekknum,“ segir
Dagur Sigurðsson sem stýrði
sínum fyrsta alvöruleik hjá þýska
landsliðinu í gær.
Þjóðverjar unnu þá öruggan
30-18 sigur á Finnum fyrir framan
fullt hús af fólki í Gummersbach.
„Þetta var svona leikur eins og
ég bjóst við. Strákarnir voru til-
búnir og við gengum frá þessu
frekar snemma. Ég get ekki kvart-
að yfir þessari byrjun.“
Dagur fékk tvo æfingaleiki með
liðið áður en alvaran byrjaði þann-
ig að hann var aðeins búinn að
venjast því að vera orðinn þjálfari
þýska landsliðsins.
„Það var svolítið skrítið í fyrsta
leiknum. Að sjá fálkann á brjóst-
inu og svona. Það var allt farið
núna. Ég var ekkert meira stress-
aður núna en fyrir einhverja aðra
leiki þó svo vissulega væri tilefn-
ið sérstakt. Maður er alltaf með
smá fiðring fyrir alla leiki,“ segir
Dagur en er hann búinn að læra
þýska þjóðsönginn?
„Nei, reyndar ekki. Ég hef nú
aðeins gluggað í textann en er
ekki alveg kominn á þann stað að
vera byrjaður að humma með. Ég
fer kannski að gera það ef ég end-
ist meira en 20-30 leiki í starfinu,“
segir þjálfarinn léttur.
Horfa á HM 2019
Hans hlutverk er að byggja upp
nýtt landslið hjá Þjóðverjum en
liðið hefur valdið stöðugum von-
brigðum undanfarin ár. Nú á að
horfa til lengri tíma í stað þess að
tjalda til einnar nætur.
„Við erum að horfa ansi langt
og meðal annars á HM 2019 sem
verður haldið í Þýskalandi og svo
Ólympíuleikana árið eftir. Ég er
með samning fram yfir leikana
en auðvitað er hann uppsegjan-
legur af beggja hálfu eftir ákveð-
inn tíma eins og gengur og gerist,“
segir Dagur en mótið 2019 verður
haldið bæði í Þýskalandi og Dan-
mörku. „Það eru líka mörg stórmót
á leiðinni. Þegar maður er kominn
þangað vill maður gera einhverja
hluti. Það þýðir ekkert að setja ein-
hverja kjúklinga inn og segja að
þetta blessist allt árið 2020.“
Þjálfarinn hefur fengið að vinna
með mörgum mönnum í fyrstu
verkefnum sínum.
„Það er gott að hafa fengið að
skoða marga leikmenn. Ég er með
talsvert af nýjum mönnum eins
og í skyttustöðunum. Þetta er smá
púsluspil ennþá en ég vona að við
lifum þetta af í fyrstu leikjunum.
Ég fæ svo meiri tíma með liðinu í
lok ársins og þá verður þetta von-
andi orðið betra.“
Það var nokkuð umdeilt í Þýska-
landi að útlendingur skyldi vera
ráðinn sem landsliðsþjálfari.
Hein er Brand, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, var á meðal þeirra
sem vildu þýskan þjálfara. Finnur
Dagur fyrir aukinni pressu út af
því öllu?
„Ég fæ alveg spurninguna,
enda verið umræða um þetta. Ég
hef svarað því þannig að ef það
yrði ráðinn útlendingur á Íslandi
þá væri líka umræða um það þar.
Það er eðlilegt. Það er annars ekki
mitt að ákveða hvaða þjálfarar eru
ráðnir.“
Mætir gamla herbergisfélaganum
Fyrsti leikurinn var eins og áður
segir frekar auðveldur en læri-
sveina Dags bíður erfiðara verk-
efni um helgina er þeir sækja
lið Austurríkis heim en því stýr-
ir annar Íslendingur, Patrekur
Jóhannesson.
„Gamli herbergisfélaginn minn
úr íslenska landsliðinu bíður. Ég
fékk SMS frá honum í sumar þar
sem hann óskaði mér til ham-
ingju með starfið. Svo hef ég ekk-
ert heyrt í honum. Það er búinn að
vera kuldi á milli herbergisfélag-
anna núna svo mánuðum skiptir,“
segir Dagur léttur en Patrekur
hefur verið að gera flotta hluti með
lið Austurríkis.
„Ef maður á að vera heiðarlegur
þá er það auðvitað mögnuð staða
að við séum að mætast þarna hvor
með sitt erlenda landsliðið. Það
er alveg magnað og maður fattar
það ekki alveg. Þetta er svipað og
með Gumma Gumm og Alfreð sem
voru líka herbergisfélagar í lands-
liðinu.“ henry@frettabladid.is
Kuldi á milli okkar Patreks
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands, segir að það hafi verið skrítið í fyrstu að sjá þýska fálkann á
brjóstinu. Hann mætir fyrrum herbergisfélaga sínum hjá íslenska landsliðinu, Patreki Jóhannessyni, næst.
FYRSTI SIGURINN Í HÖFN
Dagur Sigurðsson stýrði þýska
handboltalandsliðinu til sigurs
á móti Finnum í fyrrakvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI „Það er ekki komið neitt
tilboð frá þeim enn sem komið
er en ég veit að þeir hafa áhuga á
mér,“ segir besti leikmaður Pepsi-
deildarinnar í sumar, Ingvar Jónsson
markvörður Stjörnunnar, en hann
fór á kostum á ævintýralegu tímabili
Garðbæinga.
Ingvar er staddur úti í Svíþjóð þar
sem hann æfir með sænska úrvals-
deildarfélaginu Åtvidaberg sem er
í leit að nýjum markverði. Þar mun
hann æfa með liðinu í vikutíma.
„Mér líst ágætlega á þetta. Þetta er
lítið félag sem stendur sig vel. Þetta
er mjög heimilislegur klúbbur, ekkert
ólíkt Njarðvík,“ segir Ingvar léttur
en hann er uppalinn hjá Njarðvík og
kom þaðan í Garðabæinn.
Hann segist vita af áhuga fleiri
félaga á sér en það sé lítið meira en
þreifingar eins og staðan sé í dag.
Það er þó ein aðalástæða fyrir því
að hann er að æfa í Svíþjóð.
„Ég vil vera í toppstandi ef svo færi
að ég yrði valinn í landsliðið fyrir
næstu verkefni. Ég vonast til þess og
ef það gerist þá verð ég klár. Það er
mikil samkeppni. Ögmundur [Krist-
insson] er farinn að spila þannig að
maður verður að vera á tánum.“
- hbg
Vill vera í toppstandi fyrir landsliðið
ÖFLUGUR Ingvar er eftirsóttur þessa
dagana. MYND/OLIMPIK
Ég hef nú aðeins
gluggað í textann en er
ekki alveg kominn á
þann stað að vera byrj-
aður að humma með.
Dagur um þýska þjóðsönginn.
HANDBOLTI Atli Hilmarsson var í gær ráðinn þjálfari
Akureyrar í Olísdeild karla. Hann tekur við starfinu af
Heimi Erni Árnasyni sem óskaði sjálfur eftir því að
verða leystur frá þjálfarastörfum sínum. Heimir Örn
mun þó taka fram skóna á nýjan leik og stefnir að því
að spila með liðinu út leiktíðina.
Sverre Andreas Jakobsson verður áfram spilandi að-
stoðarþjálfari Akureyrarliðsins sem hefur unnið aðeins
þrjá af átta leikjum sínum í deildinni í haust. Liðið er
í sjöunda sæti sem stendur.
Atli er öllum hnútum kunnugur á Akureyri
en hann þjálfaði liðið frá 2010 til 2012
auk þess sem hann stýrði liði KA frá
1997 til 2002. Hann stýrir sinni fyrstu
æfingu í dag en Akureyri mætir topp-
liði Aftureldingar á fimmtudag. - esá
Atli tekur við Akureyri
ÚRSLIT
DOMINO’S-DEILD KARLA
TINDASTÓLL - NJARÐVÍK 86-75 (41-37)
Tindastóll: Darrel Keith Lewis 23/8 fráköst/5
stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 18/5 fráköst,
Darrell Flake 17/7 fráköst, Myron Dempsey 14/8
fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 7, Pétur Rúnar
Birgisson 5/6 stoðsendingar/5 stolnir, Viðar
Ágústsson 2.
Njarðvík: Dustin Salisbery 24/9 fráköst, Logi
Gunnarsson 14, Ágúst Orrason 13, Mirko Stefán
Virijevic 7/6 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5/5
fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 5, Ólafur Helgi
Jónsson 3, Ólafur Aron Ingvason 2, Rúnar Ingi
Erlingsson 2.
KEFLAVÍK - KR 67-90 (31-48)
Keflavík: William Thomas Graves VI 23/7
fráköst/3 varin skot, Damon Johnson 11/6 fráköst,
Andrés Kristleifsson 8, Reggie Dupree 7, Guð-
mundur Jónsson 6, Þröstur Leó Jóhannsson 5/6
fráköst, Eysteinn Bjarni Ævarsson 3/6 fráköst,
Aron Freyr Kristjánsson 2, Davíð Páll Hermanns-
son 2, Gunnar Einarsson 0/4 fráköst, Valur Orri
Valsson 0/4 fráköst.
KR: Michael Craion 27/16 fráköst, Darri
Hilmarsson 13, Pavel Ermolinskij 11/8 fráköst/5
stoðsendingar, Brynjar Þór Björnsson 11/5 fráköst,
Björn Kristjánsson 9, Helgi Már Magnússon 9/5
fráköst, Illugi Steingrímsson 5, Þórir Guðmundur
Þorbjarnarsson 3, Hörður Helgi Hreiðarsson 2,
Finnur Atli Magnússon 0/6 fráköst.
GRINDAVÍK - ÞÓR 90-85 (57-44)
Grindavík: Joel Hayden Haywood 20/9 stoðsend-
ingar, Ólafur Ólafsson 19/14 fráköst/3 varin skot,
Ómar Örn Sævarsson 18/14 fráköst, Oddur Rúnar
Kristjánsson 13/6 fráköst, Magnús Þór Gunnars-
son 12, Daníel Guðni Guðmundsson 4, Þorsteinn
Finnbogason 2, Hilmir Kristjánsson 2/5 fráköst.
Þór Þ.: Nemanja Sovic 26/9 fráköst, Tómas Heiðar
Tómasson 20/6 fráköst, Vincent Sanford 13/12
fráköst, Emil Karel Einarsson 11/5 fráköst, Oddur
Ólafsson 8, Baldur Þór Ragnarsson 4/6 stoðsend-
ingar, Þorsteinn Már Ragnarsson 3/4 fráköst.
SNÆFELL - STJARNAN 81-92 (46-43)
Snæfell: William Henry Nelson 22/10 fráköst,
Stefán Karel Torfason 22/11 fráköst, Austin
Magnus Bracey 15/4 fráköst, Pálmi Freyr Sigur-
geirsson 11, Sigurður Á. Þorvaldsson 7/8 fráköst,
Snjólfur Björnsson 4.
Stjarnan: Jarrid Frye 28/9 fráköst, Justin Shouse
19/5 fráköst, Dagur Kár Jónsson 18, Ágúst
Angantýsson 12/5 fráköst, Jón Orri Kristjánsson
5/12 fráköst, Marvin Valdimarsson 4/10 fráköst,
Sæmundur Valdimarsson 2, Sigurður Dagur
Sturluson 2.
FJÖLNIR - ÍR 75-81 (36-45)
Fjölnir: Arnþór Freyr Guðmundsson 27/5 fráköst,
Ólafur Torfason 14/12 fráköst/6 stoðsendingar,
Daron Lee Sims 10, Róbert Sigurðsson 9, Garðar
Sveinbjörnsson 6, Sindri Már Kárason 4, Hreiðar
Bjarki Vilhjálmsson 3, Davíð Ingi Bustion 2.
ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 25, Kristján Pétur
Andrésson 19/10 fráköst, Sveinbjörn Claessen 13,
Christopher Gardingo 12/10 fráköst, Vilhjálmur
Theodór Jónsson 8, Ragnar Örn Bragason 2, Leifur
Steinn Arnason 2.
HAUKAR - SKALLAGR. 107-68 (52-40)
Haukar: Alex Francis 31/20 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Haukur Óskarsson 20, Hjálmar Stefánsson
16/7 fráköst, Kári Jónsson 11, Kristinn Marinósson
9, Helgi Björn Einarsson 6, Emil Barja 4/11
fráköst/8 stoðsendingar/4 varin skot, Steinar
Aronsson 4, Sigurður Þór Einarsson 3, Kristján
Leifur Sverrisson 3.
Skallagrímur: Tracy Smith Jr. 26/9 fráköst, Daði
Berg Grétarsson 12, Sigtryggur Arnar Björnsson
11/6 fráköst, Davíð Guðmundsson 9, Atli Aðal-
steinsson 5, Davíð Ásgeirsson 3, Egill Egilsson 2.
STAÐAN
Haukar 4 4 0 380-305 8
KR 4 4 0 370-320 8
Tindastóll 4 3 1 370-340 6
Stjarnan 4 2 2 349-327 4
Grindavík 4 2 2 351-360 4
Þór Þ. 4 2 2 348-358 4
Keflavík 4 2 2 295-309 4
Njarðvík 4 2 2 345-333 4
Snæfell 4 2 2 337-329 4
ÍR 4 1 3 319-343 2
Fjölnir 4 0 4 302-362 0
Skallagrímur 4 0 4 291-371 0
SPORT