Fréttablaðið - 31.10.2014, Side 90

Fréttablaðið - 31.10.2014, Side 90
31. október 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 54 FÓTBOLTI Það er ekki á hverjum degi sem þjálfarar fá strax tæki- færi í úrvalsdeildinni nokkrum vikum eftir að þeir féllu með lið sitt úr deildinni og Bjarni Guðjóns- son, nýráðinn þjálfari KR-inga, bættist því í fámennan hóp þegar hann skrifaði undir samninginn í Frostaskjóli á þriðjudaginn. Átta prósent þjálfara Aðeins átta prósent þjálfara sem hafa fallið með lið sitt hafa fengið starf í efstu deild fyrir næsta tíma- bil, eða bara 5 af 63. Að auki bæt- ast við tuttugu aðrir þjálfarar sem hættu með lið á fallsumri og fengu ekki lið í efstu deild árið eftir. Það er því afar sjaldgæft að þjálfarar fái slíkt tækifæri eftir vonbrigðin sumarið á undan, hvað þá að fá eitt allra eftirsóttasta þjálfarastarfið í íslenska boltan- um eins og Bjarni. KR-ingar hafa mikla trú á sínum gamla fyrirliða og láta frumraunina með Fram ekki trufla sig. Pressa á öllum sem þjálfa KR „Það er alltaf pressa á öllum þeim sem koma og starfa fyrir KR. Þannig viljum við hafa það. Við horfum bara á okkur. Við erum KR – ekki Fram, með fullri virð- ingu fyrir þeim,“ sagði Krist- inn Kjærne sted, formaður knatt- spyrnudeildar KR, í samtali við Vísi. „Við þekkjum Bjarna enda var hann lengi hér sem leikmaður. Við vitum fyrir hvað hann stendur og treystum honum í verkið. Það eru alltaf skiptar skoðanir á þjálfara- ráðningum KR og þannig er það sjálfsagt nú,“ bætti Kristinn við. Það hefur gengið vel hjá þrem- ur af fjórum „fall“-þjálfurum sem hafa fengið strax aftur tækifæri í úrvalsdeildinni. Undir stjórn tveggja þeirra hækkaði liðið sig í töflunni á milli ára og hjá einum hélt liðið sama sæti í efri hlutan- um. Ekkert gekk hins vegar upp hjá þeim fjórða sem bæði þurfti að taka pokann sinn og horfa á eftir liði falla annað árið í röð. Hörður Hilmarsson og Logi Ólafsson eru þeir „fall“-þjálfarar sem komust næst titli ári eftir að hafa farið með lið niður um deild. Hörður féll með Blikana haustið 1992 eftir að hafa tekið við liðinu fyrir 9. umferð en tók síðan við liði FH sem hoppaði upp um fjögur sæti og endaði í öðru sæti á eftir sterku Skagaliði sumarið 1993. Logi fór niður með Selfoss sum- arið 2012 en tók við Stjörnumönn- um nokkrum vikum eftir mótið. Stjarnan hækkaði sig um tvö sæti í töflunni (úr 5. sæti í 3. sæti) og fór í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð. Þorlákur Árnason féll með Vals- liðið sumarið 2003 en fékk strax starf hjá Fylki sem undir hans stjórn endaði í fjórða sæti annað sumarið í röð. Andri Marteinsson sker sig úr í hópnum en hann féll með Hauk- ana sumarið 2010 og var í næst- neðsta sætinu og nýbúinn að tapa fyrir neðsta liðinu í deildinni þegar hann var rekinn um mitt mót. Víkingsliðinu tókst ekki að bjarga sæti sínu og Andri átti því þátt í að lið féllu úr deildinni tvö sumur í röð. Ólafur með aukaaðild Ólafur H. Kristjánsson fær síðan aukaaðild að klúbbnum því hann tók við A-deildarliði um mitt næsta sumar. Ólafur fór niður með Fram haustið 2005 en tók síðan við liði Breiðabliks í byrjun júlí þegar Bjarni Jóhannsson sagði upp. Ólaf- ur fór með Blikana upp um fjögur sæti á síðustu níu umferðunum og átti síðan efir að þjálfa Kópavogs- liðið út maí 2014 þegar hann tók við danska liðinu Nordsjælland. Á þeim tíma unnu Blikar sína fyrstu og einu stóru titla í karlaflokki. Það er orðið meira en hálf öld síðan sami maður náði því að vinna Íslandsbikarinn bæði sem fyrirliði og þjálfari hjá KR. Hvort Bjarni nái að endurtaka afrek Óla B. Jónssonar frá fimmta og sjötta áratugnum kemur ekki í ljós fyrr en síðar. ooj@frettabladid.is Ekki allir sem fá annan séns Bjarni Guðjónsson fékk á þriðjudaginn eitt eft irsóttasta þjálfarastarfi ð í íslenska boltanum þrátt fyrir að hafa fallið með Fram á sínu fyrsta ári sem þjálfari. Með því að taka við KR kemst Bjarni í fámennan hóp. FYRSTU SKREF ÞJÁLFARA EFTIR FALL ÚR EFSTU DEILD 1984-2014 Hættu með liðið eftir tímabilið 41 65% Héldu áfram með liðið 22 35% Fengu starf í A-deild 5 8% Héldu áfram með liðið í B-deild 22 35% Fengu annað starf í neðri deildum 6 10% Fengu ekkert starf í meistaraflokki 29 46% Þjálfari: Logi Ólafsson Féll með: Selfoss 2012 Tók við: Stjarnan 2013 - Gengi á nýjum stað - Sæti árið áður: 5. sæti Sæti með hann: 3. sæti Niðurstaða: Hækkaði sig um tvö sæti Þjálfari: Andri Marteinsson Féll með: Haukar 2010 Tók við: Vikingur 2011 - Gengi á nýjum stað - Sæti árið áður: Kom upp úr B-deild Sæti með hann: 11. sæti– rekinn eftir 11 leiki Niðurstaða: Rekinn og liðið féll Þjálfari: Þorlákur Árnason Féll með: Valur 2003 Tók við: Fylkir 2004 - Gengi á nýjum stað - Sæti árið áður: 4. sæti Sæti með hann: 4. sæti Niðurstaða: Hélt sama sæti Þjálfari: Hörður Hilmarsson Féll með: Breiðablik 1992 Tók við: FH 1993 - Gengi á nýjum stað - Sæti árið áður: 6. sæti Sæti með hann: 2. sæti Niðurstaða: Hækkaði sig um fjögur sæti AÐEINS FJÓRIR FALL-ÞJÁLFARAR HAFA FENGIÐ TÆKIFÆRI Í EFSTU DEILD SUMARIÐ EFTIR AFTUR Í KR Bjarni Guðjónsson er nýr þjálfari KR-liðsins. FRÉT- TABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Þótt allt hafi gengið upp innan vallar í Laugardalshöll- inni á miðvikudagskvöldið þegar strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael í fyrsta leik liðsins í undan- keppni EM 2016 í handbolta þá var gleðin ekki jafn mikil utan vallar. Eftirlitsmaður evrópska hand- knattleikssambandsins hafði út á ýmislegt að setja, t.a.m. klukk- una í Höllinni sem hikstaði öðrum megin og þrengsli þeim megin sem heiðursstúkan er. „Það er bara hægt að setja núm- erin 4-15 á klukkuna sem hentar engan veginn fyrir handbolta og svo stoppaði hún nokkrum sinn- um en hélt svo áfram. Hún fékk algjöra falleinkunn,“ segir Róbert Geir Gíslason, mótastjóri HSÍ, við Fréttablaðið. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, segir sam- bandið hafa beðið eftirlitsmanninn um að taka út húsið til að vita hvað þurfi að laga. „Höllin er bara barn síns tíma. Það eru orðnar meiri kröfur í kringum alþjóðlega leiki sem húsið ræður ekki við.“ Áður hafði verið kvartað yfir því að leikvöllurinn væri of nálægt áhorfendapöllunum í stóru stúk- unni og þurfti því að færa völlinn um 80 cm til suðurs. Var það gert til að tryggja öryggi áhorfenda þannig að hægt sé að rýma húsið fljótlega komi eitthvað upp á. „Það var eitthvað sem við réðum ekkert. En þegar það vandamál var leyst varð til annað hinum megin þar sem það voru alltof mikil þrengsli í kringum heiðurs- stúkuna og sætin á vængjunum. Við vorum að sjá leik núna í fyrsta skipti eftir að völlurinn var færður og þetta var niðurstaðan. Svona er bara staðan á þessu húsi; það upp- fyllir ekki nútímastaðla,“ segir Einar. Róbert Geir sagði við Vísi að HSÍ mætti búast við skýrslu frá eftirlitsmanni sem hann er nú búinn að skila inn til EHF, en hvort sektir fylgi eða önnur refsing á eftir að koma í ljós. Á dögunum var haldið glæsi- legt Evrópumót í hópfimleikum í frjálsíþróttahöllinni í Laugar- dalnum þar sem leigð var stúka sem myndaði flottan keppnisvöll. Þetta er eitthvað sem HSÍ var að spá í fyrir nokkrum árum. „Við fórum í svona hönnun í Egilshöll í kringum 2008. Það sorg- legasta við frjálsíþróttahöllina er bara lofthæðin. Hún er ekki nema níu metrar sem sleppur í hand- bolta, en minni má hún ekki vera. Þetta leit mjög vel út og umgjörðin var flott. Menn þurfa því að spyrja sig ýmissa spurninga eftir þetta,“ segir Einar. Komið hefur til tals að stúkan verði eftir hér á landi en HSÍ hefur að minnsta kosti ekki tekið þátt í þeim umræðum. „Ef þú myndir leigja svona stúku sex sinnum held ég það borgi sig að kaupa hana. Það er mikill kostnaður í kringum svona stúku. En það er líka mikill kostn- aður að setja hana upp fyrir svona leik eins og gegn Ísrael. Þetta hefði verið hægt fyrir leiki eins og gegn Svíum hér um árið og fleiri leiki þegar hefði verið hægt að fylla Höllina oft,“ segir Einar. - tom Hvert vandamálið rekur annað með umgjörð hallarinnar Eft irlitsmaður EHF setti út á umgjörðina í Laugardalshöllinni sem er barns síns tíma að sögn Einars Þorvarðarsonar hjá HSÍ. FÆRÐIR Leikvöllurinn í Laugardalshöll var færður 80 cm frá áhorfendum af öryggis- ástæðum, en það skapaði bara vandamál hinum megin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykja- ness sem gerði knattspyrnudeild Grindavíkur að greiða Guðjóni Þórðarsyni 8,4 milljónir króna í skaðabætur fyrir vangoldin laun. Guðjóni voru einnig dæmdar 500 þúsund krónur vegna málskostn- aðar í Hæstarétti og 400 þúsund krónur vegna málskostnaðar í héraðsdómi. Guðjón var ráðinn í nóvem- ber 2011 til að þjálfara meist- araflokk karla hjá Grindavík en knattspyrnudeild félagsins sagði honum upp störfum eftir að liðið féll úr efstu deild karla haustið 2012. Launalið í samningi Guð- jóns var þá sagt upp en mánaðar- laun hans voru 400 þúsund krón- ur auk afnota af íbúð í Grindavík, bifreiðar til afnota, bensínkorts og 10 þúsund króna í símakostnað á mánuði. Guðjóni bauðst að vera áfram á launaskrá en gegna engum skyldum. Fyrir það átti hann að fá 65 þúsund krónur en héraðs- dómur taldi tilboðið ekki trúverð- ugt og mat svo að uppsögnin á launaliðnum hefði verið uppsögn á samningi Guðjóns í heild sinni. Grindvíkingar höfðu ekki heimild til þess. Guðjón fór upphaflega fram á 12,5 milljónir króna en í þeirri upphæð var 3,7 milljóna króna skaðabótagreiðsla vegna húsa- leigu á samningstímanum en héraðsdómur varð ekki við þeirri kröfu. Guðjón var landsliðsþjálf- ari 1997-1999 en hafði þar áður þjálfað ÍA, KA og KR með góðum árangri. Eftir að hann hætti með íslenska landsliðið hefur hann stýrt Stoke, Barnsley, Notts County og Crewe á Englandi, Start í Noregi en einnig Keflavík, ÍA, BÍ/Bolungarvík og nú síðast Grindavík. Hann er 59 ára gam- all. - esá Uppsögnin ólögmæt GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Var þjálfari Grindavíkur sumarið 2012 en liðið féll þá úr efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.