Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 45
HÚÐFLÚR LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015 Kynningarblað Reykjavík Ink, Bleksmiðjan og Classic Tattoo Reykjavík. HAFÞÓR JÚLÍUS BJÖRNSSON Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson hefur í nógu að snúast þessar vikurnar. Fram undan eru tvö stórmót auk þess sem hann flýgur til Katar í næstu viku þar sem hann verður viðstaddur stóra tölvuleikjahátíð. „Fyrra mótið sem ég tek þátt í er Arnold Sports Festival í Bandaríkjunum, nefnt eftir meistaranum sjálfum Arnold Schwarzenegger. Svo er ég á fullu að búa mig undir mótið Sterkasti maður heims sem haldið verður í apríl í Malasíu. Ég stefni auðvitað á fyrsta sætið en ég er í mjög góðu formi og vel stemmdur fyrir mótið.“ Í næstu viku heldur Haf- þór til Katar en honum var boðið sérstaklega á stóra tölvu- leikjahátíð sem haldin er þar. „Ég á marga aðdáendur á þessum slóðum og fer raunar bara út til að hitta þá og gefa eiginhandaráritanir.“ Hafþór er vel skreyttur tattúum en það fyrsta fékk hann 15 ára gamall. „Ég þurfti auðvitað leyfi frá pabba mínum og suðaði í honum í margar vikur þar til hann gaf sig loksins. Fyrst fékk ég mér tribal-tattú á bakið en þau voru í tísku á þessum tíma. Svo hef ég haldið áfram hægt og rólega gegn- um árin.“ Meðal húðflúra á Hafþóri má nefna Elvis Presley og Marilyn Monroe sem hvort prýðir sinn fótlegginn. Jón Páll Sigmarsson er einnig á vinstri fætinum og fræg tilvitn- un hans þegar hann sló met í réttstöðulyftu á sínum tíma: „There is no reason to be alive if you can’t do deadlift.“ Hægri armur Hafþórs er alsettur húðflúri en sá vinstri til hálfs. „Markmiðið er að klára vinstri handlegginn ein- hvern tíma síðar á árinu.“ RÚNAR GEIRMUNDSSON Rúnar Geirmundsson starfar sem aðstoðarmaður á Bleksmiðjunni sem er húðflúrstofa í Reykjavík. Utan þess á hann og rekur fatafyrirtækið Akkeri Clothing í félagi við Dag Gunnarsson en fyrirtækið framleiðir „Streetwear“-fatnað fyrir karla og konur á borð við boli, derhúfur og peysur. Hann fékk snemma mikinn áhuga á húðflúri og segist hafa pantað fyrsta tímann sinn 14 ára gamall. „Ég mátti það víst ekki fyrr en ég var orðinn 18 ára þannig að ég þurfti að bíða í nokkur ár. Þegar ég hafði aldur til tók ég fyrst nánast allan vinstri handlegginn í einu.“ Uppáhaldshúðflúrið hans þessa stundina er fiðrildi framan á hálsinum sem hann fékk sér fyrir mánuði. „Ég hef nú ekki talið tattúin nýlega enda svo sem aukaatriði hvað þau eru mörg. Hins vegar stefni ég á að innan eins og hálfs árs verði allur líkaminn þakinn húðflúri, eða svo- kallað „Body Suit“. Það er verið að vinna í því plani á fullu og stefnan sett á að klára það seinni part árs 2016.“ ANDRI MÁR ENGILBERTSSON Eigandi Irezumi Ink-húðflúrstofunnar í Reykjavík, Andri Már Engilbertsson, hefur mörg járn í eldinum. Undanfarin ár hefur hann þjálfað fitness sport og crossfit en í augnablikinu er stofan, sem hann opnaði nýlega, fyrir- ferðarmest í lífi hans. Sjálfur var hann fimmtán ára gam- all þegar hann fékk sitt fyrsta tattú. „Fyrir tólf árum fékk ég mér fyrsta húðflúrið. Það fór á bakið og er víkingarúnir.“ Andri Már er í dag með flúr á báðum handleggjum sem tengist við brjóstkassann, á maganum og báðum síðum. „Næsta verk er að fá mér skálm á löppina hægra megin og fylla alla löppina.“ Hann segir erfitt að nefna eitt uppáhaldstattú umfram önnur. „Þau renna eiginlega öll saman í eitt stórt tattú í dag og því erfitt að velja. Ég er ánægður með þau öll og líka spenntur fyrir þeim næstu sem ég búinn að teikna upp. Þar tek ég fyrir bak og rass og það verður það hrikalegasta sem ég á eftir að vera með og væntanlega uppáhaldið mitt. Það verður japanskt þema og sá sem mun sjá um það heitir Sören og kemur frá Kaupmannahöfn. Hann er einn af þeim betri á Norðurlöndum og verkið tekur sjálfsagt rúmlega 50 klukkustundir.“ ÞAKTIR HÚÐFLÚRI Hafþór, Rúnar og Andri Már eru misstórir karlmenn en allir vel skreyttir húðflúri. Allir fengu þeir sér sitt fyrsta húðflúr ungir og eru hvergi nærri hættir. 2 0 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 6 F B 1 2 0 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 E 1 -0 0 1 0 1 3 E 0 -F E D 4 1 3 E 0 -F D 9 8 1 3 E 0 -F C 5 C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 1 2 0 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.