Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 26
| HELGIN | 21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR26
➜ Al Thani-ættin er bundin eins konar þagnarskyldu samkvæmt reglum ættarinnar og þeim er
annt um að vernda einkalíf sitt. Til að mynda eru aðeins örfáar myndir til af sjeik Mohammed
og eingöngu fengust skjáskot af netmiðlum í Katar. Upplýsingar um hagi fjölskyldunnar eru
einnig af skornum skammti en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir þessum fyrri störfum sjeiksins.
Lítið sem ekkert hefur heyrst né spurst til mannsins sem Al Thani-sakamálið er nefnt eftir í daglegu tali, sjeik Mohammed bin Kha-
lifa Al Thani eða einfaldlega
sjeik Mohammed, eftir að rann-
sókn hófst á málinu hér á landi.
Al Thani-málið svokallaða er
eitt stærsta efnahagsbrotamál í
Íslandssögunni sem sérstakur sak-
sóknari rak gegn fjórum einstak-
lingum, fyrrverandi stjórnendum
eða eigendum bankans, vegna við-
skipta sem Kaupþing banki hf. átti
við hinn vellauðuga kaupsýslu-
mann sjeik Mohammed frá Katar
skömmu áður en bankinn féll.
Samningar tókust hinn 22. sept-
ember 2008 um að sjeik Moham-
med keypti rúmlega fimm prósent
hlutafjár í bankanum. Selj-
andinn var bankinn sjálf-
ur. Hlutabréfin voru seld
fyrir 25,7 milljarða króna
og lánaði bankinn allt sölu-
verðið. Kaupandinn var
einkahlutafélag í eigu sjeik
Mohammed og tók hann
persónulega ábyrgð á greiðslu
helmings kaupverðsins. Lítið
er vitað um sjeik Mohammed á
Íslandi og á tímabili velti ákæru-
valdið fyrir sér hvort hann væri
yfirhöfuð til.
Hver er Mohammed
bin Khalifa Al Thani?
Fréttablaðið kannar sögu og bakgrunn þessa auðuga huldumanns sem komst í
kynni við stjórnendur Kaupþings í gegnum vináttu við Ólaf Ólafsson.
Hreiðar Már
Sigurðsson,
fyrrverandi for-
stjóri Kaupþings, var
dæmdur í fimm og
hálfs árs fangelsi fyrir
markaðsmisnotkun og umboðssvik.
Ólafur Ólafsson
fjárfestir hlaut
fjögurra og hálfs árs
fangelsisdóm óskil-
orðsbundinn fyrir
markaðsmisnotkun.
Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnar-
formaður Kaup-
þings, var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi
fyrir markaðsmis-
notkun og hlutdeild í umboðssvikum.
Dómurinn er óskilorðsbundinn.
Magnús
Guðmundsson,
fyrrverandi forstjóri
Kaupþings í Lúxem-
borg, var dæmdur í
fjögurra og hálfs árs
fangelsi óskilorðsbundið.
SÖGULEGUR DÓMUR
Sjeik Mohammed er mikill áhugamaður um
hestamennsku og er eigandi Al Shahania Stud
sem er viðurkennt alþjóðlegt kappreiðafyrir-
tæki.
Tenging sjeik Mohammeds við Kaupþing
liggur í persónulegri vináttu hans og Ólafs
Ólafssonar. Vinskapur þeirra er sagður krist-
allast í sameiginlegu áhugamáli, hestamennsk-
unni, en Ólafur heimsótti meðal annars Al
Shahania-býlið í Doha sem er í eigu sjeiksins.
Ólafur Ólafsson var sá sem kynnti sjeik
Mohammed fyrir Kaupþingi banka og hafði
milligöngu um viðskiptin. Ólafur lýsti því yfir
í skýrslu sinni fyrir dómi að hann hafi á árinu
2005 kynnst sjeiknum og frænda hans sjeik
Sultan bin Jassim Al Thani, sem kom að undir-
búningi viðskiptanna með hlutabréf í Kaup-
þingi.
Sjeik Sultan bin Jassim Al Thani kom til Ís-
lands með Sigurði Einarssyni árið 2008 og sótti
hann kynningarfund um Kaupþing banka hf.
með Hreiðari Má, fyrrverandi forstjóra bankans.
Ólafur og Sigurður voru við skotveiðar í
Englandi árið 2008 með þeim frændum, sjeik
Mohammed og sjeik Sultan bin Jassim Al
Thani, þar sem þeir lýstu yfir hrifningu sinni á
bankanum.
Fljótlega eftir veiðiferðina bar Hreiðar Már upp við Ólaf að kanna hvort sjeik Mo-
hammed kynni að hafa áhuga á að kaupa hlut í bankanum, sem hann gerði og stuttu
síðar var staðfest að áhugi væri fyrir hendi. Samkomulag tókst svo í september 2008.
SVONA KYNNTIST AL THANI KAUPÞINGSMÖNNUM
Al Thani-ættin hefur verið
við völd í Katar síðan á 19.
öld. Katar er eitt auðugasta
ríki heims í ljósi auðugra
náttúruauðlinda og er Al
Thani-ættin ein efnaðasta
fjölskylda heims. Um er að
ræða einveldi sem erfist í
beinan karllegg. Emírinn er
höfuð ættarinnar og hann
velur sjálfur ráðherra og
lykilmenn stjórnkerfisins.
Sjeik Mohammed er
fæddur árið 1964 í Doha,
höfuðborg Katar.
Hann býr í höllinni Al
Shahaniya Palace í
bænum Al Shahaniya.
Faðir sjeiks Moham-
meds er sjeik Khalifa
bin Hamad Al Thani.
Hann var
einráður
emír í
Katar
1972 til
1995.
Einn
bræðra sjeik Mohammeds
er sjeik Hamad bin Khalifa
Al Thani en hann var emír
í Katar 1995 til 2013 eftir
að hafa steypt föður þeirra
af stóli.
Flökkusagan í Katar
segir að ósætti hafi orðið
innan fjölskyldunnar eftir
valdatökuna þar sem hinir
bræðurnir, meðal annars sjeik
Mohammed, hefðu getað
orðið einvaldir.
Á þeim tíma er viðskipti
íslensku fjórmenn-
inganna áttu sér stað
við sjeik Mohammed
var hann bróðir ríkjandi
emírs í Katar.
Núverandi emír í
Katar er sjeik Tamim
bin Hamad
bin Khalifa
Al Thani
sem er
bróðursonur
sjeik Mo-
hammeds.
EIN EFNAÐASTA FJÖLSKYLDA HEIMS
Nadine Guðrún
Yaghi
nadine@frettabladid.is
■ Stjórnarformaður í Qatar
National Bank árið 1990.
■ Fjármálaráðherra í Katar á
árunum 1995 til ársins 1998.
■ Ráðgjafi emírsins, bróður síns.
■ Aðstoðarforsætisráðherra Katar
í stjórnartíð bróður síns.
■ Fjárfestir. Hann á fjölmörg félög
um allan heim. Vitað er fyrir víst
að ættin hefur fjárfest gríðarlega
mikið í London, meðal annars í
verslunarhúsinu Harrods.
■ Átti íslensk hlutafélög, meðal
annars Q Iceland Finance sem
keypti fimm prósenta hlut í Kaup-
þingi. Ákæran í Al-Thani-málinu
snerist að hluta um lánveitingar
til aflandsfélaga á Jómfrúaeyjum
sem fjármögnuðu Q Iceland
Finance.
■ Eigandi „Al Shahania Stud“ sem
er alþjóðlegt kappreiðafyrirtæki í
Doha.
Myndir og upplýsingar um sjeikinn eru af skornum skammti
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-D
D
8
0
1
3
E
0
-D
C
4
4
1
3
E
0
-D
B
0
8
1
3
E
0
-D
9
C
C
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K