Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 12
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12
VERÐI LJÓS!
Velkomin á ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Hilton
fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 8:30 – 11:00.
Húsið opnar kl. 8:00 með morgunverði og ljúfum tónum.
Dagskrá ársfundar:
Ávarp ráðherra – Ragnheiður Elín Árnadóttir
Verði ljós! - opnunarerindi – Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri
Ræsing landsbyggðarinnar – Sigurður Steingrímsson
Ljósið í efnistækninni – Guðbjörg Óskarsdóttir
Hlutverk „ljósmóðurinnar“ – Sigríður Ingvarsdóttir
Ljómandi Fab Lab – Frosti Gíslason
Einstök íslensk upplifun – Sigríður Kristjánsdóttir
Brautryðjandinn – viðurkenning Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
Vistbyggðarstigakerfið BREEAM í nýju ljósi – Ólafur Wallevik
Kastljós á byggingarannsóknir – Björn Marteinsson
Brautargengi, ljósmegin í lífinu – Bjarnheiður Jóhannsdóttir
Nýsköpun með ljósi – Kristján Leósson
Óvænt endalok
Fundarstjóri: Hundur í óskilum
Skráning og nánari upplýsingar á nmi.is
GoRed konudagurinn á Íslandi 22. febrúar
Konur klæðumst RAUÐU!
Ertu kona á miðjum aldri – eða áttu nána ættingja sem hafa fengið hjartasjúkdóm?
Vissir þú að hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi?
Viltu vita meira?
Opið hús í húsnæði Hjartaheilla að Síðumúla 6, milli 11.00 og 16.00
Í boði verður meðal annars:
• Fræðsla um hjarta- og æðasjúkdóma á formi stuttra fyrirlestra og samtala
• Áhættuþáttaskimum fyrir konur: Blóðþrýstingsmæling, blóðfitumæling, súrefnismettun og blóðsykur
• Útdráttarvinningar fyrir heppna gesti
Kl. 12.45 Ávarp formanns GoRed, Þórdísar Jónu Hrafnkelsdóttur
Kl. 13.00 Úthlutað styrk úr Rannsóknarsjóði GoRed
Hvernig væri að draga fram eitthvað rautt úr skápnum og kíkja við?
Hugaðu að hjartanu – ekki bíða til morguns, því þú hefur aðeins eitt!
Nánari upplýsingar á www.gored.is og www.hjartaheill.is
GoRed nælan er til sölu í verslunum Hagkaups
BRETLAND Í aðdraganda stríðsátak-
anna í Úkraínu gerðu hvorki bresk
stjórnvöld né aðrir ráðamenn í
Evrópusambandinu sér neina
grein fyrir því hve andsnúnir
Rússar voru nánari tengslum
Úkraínu við Evrópusambandið.
Þetta kemur fram í ítarlegri
skýrslu frá Evrópunefnd lávarða-
deildar breska þingsins, að Vestur-
lönd hafi flotið sofandi að feigðar-
ósi hvað þetta varðar.
Nefndin gagnrýnir stjórnvöld
harðlega fyrir ómarkviss vinnu-
brögð og skilningsleysi á ástand-
inu. Það stafi ekki síst af því að
dregið hafi verið úr fjárfram-
lögum til greiningar og upplýs-
ingasöfnunar í breska utanríkis-
ráðuneytinu. Vantað hafi fleiri
sérfræðinga um Rússland í ráðu-
neytið til þess að hægt væri að lesa
betur í stöðuna.
Þá hafi forysta Evrópusam-
bandsins gefið sér að Rússland
væri á góðri leið með að verða
lýðræðisríki, en sú forsenda hafi
verið of bjartsýn: „Aðildar ríkin
hafa verið lengi að endurmeta
samskiptin og aðlagast veruleika
þess Rússlands sem við eigum við
að etja í dag,“ segir í skýrslunni.
„Athafnir Rússa þarf að skoða
innan bæði hins sérstaka sögu-
lega samhengis Úkraínu sjálfrar
og innan víðara samhengis hegð-
unar Rússa í nágrannalöndunum,“
segir í skýrslunni. „Staðan nú er
mjög frábrugðin því sem var árið
1991 þegar Sovétríkin liðuðust
með friðsamlegum hætti í sundur
í fimmtán ríki.“
Breska stjórnin hafnar þessari
gagnrýni. David Cameron, for-
sætis ráðherra Bretlands, segir
aðalatriðið núna vera að senda
Rússum skýr skilaboð um að það
sem gerst hafi sé óviðunandi: „Það
verður að standa við vopnahléið,
og ef það gerist ekki þá verða
frekari afleiðingar, frekari refsi-
aðgerðir,“ hefur BBC eftir honum.
Skýrslan var birt í gær, en þá
var rétt ár liðið frá blóðugasta degi
mótmælanna í Kænugarði þegar
meira en 50 manns létu lífið. Um
það bil tveimur mánuðum seinna
hófust svo stríðsátökin, sem nú
hafa kostað meira en fimm þúsund
manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Flutu sofandi
að feigðarósi
Bresk þingnefnd gagnrýnir bæði bresku stjórnina og
ráðamenn Evrópusambandsins harðlega fyrir ómark-
viss vinnubrögð í aðdraganda stríðsins í Úkraínu.
BRETLAND Bandarískir og breskir leyniþjón-
ustumenn komust yfir milljónir dulkóðunar-
lykla SIM-korta frá stærsta SIM-kortafram-
leiðanda heims, fyrirtækinu Gemalto sem er
með höfuðstöðvar í Hollandi.
Þetta kemur fram í skjölum frá bandaríska
uppljóstraranum Edward Snowden, sem enn
hefst við í Rússlandi. Vefmiðillinn The Inter-
cept skýrir frá þessu.
Gemalto framleiðir SIM-kort fyrir flest
stærstu farsímafyrir tæki heims. Bresku og
bandarísku njósnararnir brutust inn í innra
tölvukerfi fyrirtækisins og komust þannig í
aðstöðu til þess að fylgjast með megninu af
öllum símtölum og textaskilaboðum í far-
símum heimsins án þess að fá til þess heimild
frá stjórnvöldum eða biðja um upplýsingarnar
beint frá fyrirtækjunum.
Með því að hafa dulkóðunarlyklana við hönd-
ina losnuðu njósnastofnanirnar einnig við að
þurfa að leysa úr dulkóðuninni. Bæði Bretar og
Bandaríkjamenn notfærðu sér þetta á árunum
2010 og 2011, en ekki kemur fram í skjölunum
frá Snowden hvort sambærilegar njósnir hafi
verið stundaðar síðan. Í skjölunum frá Snowden
kemur fram að símar íslenska símafyrirtækis-
ins NOVA séu meðal þeirra sem njósnastofnan-
irnar höfðu aðgang að. - gb
Uppljóstranir Snowdens sýna að breska og bandaríska leyniþjónustan brutust inn í tölvukerfi Gemalto:
Fengu aðgang að milljónum SIM-korta
HÖFUÐSTÖÐVARNAR Hollenska símafyrirtækið
Gemalto framleiðir um það bil tvo milljarða SIM-korta
á ári hverju. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HERINN FER Úkraínskir hermenn á leiðinni brott frá átakasvæðunum, samkvæmt
ákvæðum friðarsamkomulags. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÓSÁTTIR VIÐ RÚSSA Íbúar í Kænugarði með mótmælaspjöld gegn Pútín Rússlands-
forseta og Rússum almennt. NORDICPHOTOS/AFP
FJÁRMÁL Hjá framkvæmdahópi um
afnám gjaldeyrishafta er litið svo
á að það sé áhyggjuefni að hreinn
tiltækur gjaldeyrisforði ríkisins sé
aðeins 53 milljarðar króna. Ekki sé
til gjaldeyrir til að skipta út krónu-
eignum slitabúa föllnu bankanna
án þess að taka lán. Seðlabank-
inn hefur aðgang að jafnvirði 530
milljarða í formi lána. „Það hefur
ekki staðið til að nota gjaldeyris-
varaforða landsmanna til að leysa
út þessar krónustöður,“ segir Már
Guðmundsson seðlabankastjóri. - þþ
Ríkið á 53 milljarða tiltæka:
Áhyggjur af
gjaldeyrisforða
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-B
F
E
0
1
3
E
0
-B
E
A
4
1
3
E
0
-B
D
6
8
1
3
E
0
-B
C
2
C
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K