Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 10
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 Eyðsla frá 3,8 l/100 km 2CO frá 99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap STJÓRNSÝSLA Ástæða þess að Hafnar fjarðarbær leitaði til Voda- fone um símagögn bæjarins er ágreiningur um hvort fundur hafi verið haldinn laugardaginn 15. nóvember í fyrra í ráðhúsi bæjar- ins. Á þann fund var starfs maður hafnarinnar boðaður og mætti hann í ráðhúsið þennan dag. Tveir einstak- lingar sátu fund- inn með honum en ekki er enn vitað hvaða ein- staklingar voru þar á ferðinni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins var fundur- inn á efri hæð ráðhússins á gangi þar sem ágætis setustofa er fyrir hendi. Sá staður er mjög nálægt skrifstofu bæjarstjóra Haraldar Líndal Haraldssonar. Þennan laugardag var hafnar- stjóri, Már Sveinbjörnsson, í útlöndum og vissi ekki af fundin- um í ráðhúsinu. Á fundinum með starfsmanni hafnarinnar var aðallega farið yfir vaktir sem starfsmenn Hafnar- fjarðarhafnar ganga, sem og við- hald á bryggjunni. Einnig var farið á fundinum yfir rekstur hafnarinnar og starfsmað- urinn spurður nokkuð ítarlega um stjórnun Más hafnarstjóra. Þessir þættir sem spurt er um eru allir rekstrarlegs eðlis. Hafnar- fjarðarhöfn er svokallað B-fyrir- tæki innan Hafnarfjarðar, rekið eingöngu á sjálfsaflafé og skilar tekjum í sveitarsjóð því rekstur- inn stendur undir sér og meira til. Enginn kannast við fundinn Menn innan bæjarkerfisins vilja ekkert kannast við það að þessi fundur hafi nokkurn tímann átt sér stað og enginn innan stjórn- sýslunnar virðist kannast við að hafa kallað hafnarstarfsmanninn á fund til sín, þennan umrædda laugardag 15. nóvember 2015. Þegar hafnarstarfsmaðurinn fór síðan að tala um þennan fund og ræða við samstarfsmenn sína um fundinn í ráðhúsinu fóru hjól- in að snúast á bæjarskrifstofum Hafnar fjarðarbæjar. „Aðgangskerfið lá niðri“ Til þess að komast inn í ráðhús Hafnarfjarðarkaupstaðar á laugar- degi þarf að hafa kort. Húsið er rammlæst og háþróað aðgangs- stýrikerfi að húsinu veitir upp- lýsingar um hverjir eru í húsinu á hverjum tíma. Hins vegar hefur komið fram í viðtölum við starfs- menn Hafnarfjarðarkaupstaðar að svo virðist sem aðgangsstýri- kerfið hafi „legið niðri“ á nákvæm- lega þeim tíma sem fundurinn fór fram. Ekki er hægt að finna út í gögn- um bæjarins hverjir hafi verið í húsinu þennan dag og ekki hægt að sjá á myndavélum hverjir gengu þar um. Hins vegar er vitað að bæjarstjóri sjálfur var í húsinu þegar fundurinn var haldinn. Áminntur fyrir ósæmilega hegðun í starfi Á fundi hafnarstjórnar var ákveð- ið að áminna starfsmanninn vegna ósæmilegrar hegðunar í starfi. Ekki var nánar tilgreint hvað fólst í orðunum „ósæmileg hegð- un í starfi“ en að endingu var sam- þykkt að maðurinn, sem er við það að fara á eftirlaun, yrði áminntur. Sú áminning er talin vera fyrir þær sakir að hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um fundinn 15. nóvember. Hafnarstjórn fól hafnarstjór- anum að áminna starfsmann sinn. Már taldi hann hins vegar ekki hafa unnið til áminningar með nokkrum hætti og neitaði að veita hana. Áminntur af bæjarfulltrúa Að endingu var svo ákveðið að formaður hafnarstjórnar og bæjar fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, Unnur Lára Bryde, áminntu starfsmann persónulega fyrir ósæmilega hegðun í starfi. Afhenti Unnur, pólitískt skipuð, starfs- manni hafnarinnar þá áminningu þrátt fyrir að hafa lítið sem ekk- ert umboð til þess að geta áminnt starfsmenn bæjarfélagsins. Enn er ekki vitað af hverju mað- urinn var áminntur og enginn vill tjá sig um áminninguna. Bréf frá Félagi skipstjórnarmanna Stéttarfélag hafnarstarfsmanns- ins, Félag skipstjórnarmanna, sendi Hafnarfjarðarbæ harðort bréf vegna áminningarinnar og bað bæjaryfirvöld um að aftur- kalla hana hið snarasta og biðja starfsmanninn afsökunar. Í bréfinu eru vinnubrögðin gagn- rýnd og fullyrt að starfsmaðurinn hafi ekki unnið það sér til saka að verða áminntur fyrir störf sín. Á síðasta fundi hafnarstjórnar 17. febrúar var málið gagnvart hafnarstarfsmanninum látið niður falla og honum sent bréf þar sem áminningin er afturkölluð. Ekki er beðist afsökunar eins og Félag skipstjórnarmanna óskaði eftir. Enginn vill tjá sig Hvorki bæjarstjóri, Haraldur Lín- dal Haraldsson, né oddvitar meiri- hlutaflokkanna vilja tjá sig um málið og segja það starfsmanna- mál. Því sé ekki hægt að ræða það mál í fjölmiðlum. Hins vegar hefur bæjarstjóri sagt í ræðustól í bæjarstjórn Hafnar fjarðar að málið hafi verið það alvarlegt að það varðaði öryggi bæjarins og því þurfti að grípa til þeirra aðgerða að kalla eftir gögn- um hjá Vodafone. sveinn@frettabladid.is Kannast ekki við fund í ráðhúsinu Upphaf símtalamálsins í Hafnarfirði er fundur í ráðhúsinu 15. nóvember. Hafnarstarfsmaður segist hafa farið á fund og rætt störf Más Sveinbjörnssonar hafnarstjóra. Bæjaryfirvöld verjast allra fregna af fundinum. Starfsmaðurinn fékk áminningu sem var þó dregin til baka. SÍMTALAMÁLIÐ Í HAFNARFIRÐI MÁR SVEIN- BJÖRNSSON Í RÁÐHÚSI HAFNARFJARÐARBÆJAR Hafnarstarfsmaðurinn segir fundinn hafa verið á efri hæð ráðhússins, steinsnar frá skrifstofu bæjarstjóra sem var í húsinu. Aðgangsstýrikerfið var óvirkt þegar fundurinn var haldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 2 0 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 6 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 E 0 -D 3 A 0 1 3 E 0 -D 2 6 4 1 3 E 0 -D 1 2 8 1 3 E 0 -C F E C 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 1 2 0 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.