Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 10
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Eyðsla frá
3,8 l/100 km
2CO frá
99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap
STJÓRNSÝSLA Ástæða þess að
Hafnar fjarðarbær leitaði til Voda-
fone um símagögn bæjarins er
ágreiningur um hvort fundur hafi
verið haldinn laugardaginn 15.
nóvember í fyrra í ráðhúsi bæjar-
ins. Á þann fund var starfs maður
hafnarinnar boðaður og mætti
hann í ráðhúsið þennan dag.
Tveir einstak-
lingar sátu fund-
inn með honum
en ekki er enn
vitað hvaða ein-
staklingar voru
þar á ferðinni.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðs-
ins var fundur-
inn á efri hæð ráðhússins á gangi
þar sem ágætis setustofa er fyrir
hendi. Sá staður er mjög nálægt
skrifstofu bæjarstjóra Haraldar
Líndal Haraldssonar.
Þennan laugardag var hafnar-
stjóri, Már Sveinbjörnsson, í
útlöndum og vissi ekki af fundin-
um í ráðhúsinu.
Á fundinum með starfsmanni
hafnarinnar var aðallega farið yfir
vaktir sem starfsmenn Hafnar-
fjarðarhafnar ganga, sem og við-
hald á bryggjunni.
Einnig var farið á fundinum yfir
rekstur hafnarinnar og starfsmað-
urinn spurður nokkuð ítarlega um
stjórnun Más hafnarstjóra.
Þessir þættir sem spurt er um
eru allir rekstrarlegs eðlis. Hafnar-
fjarðarhöfn er svokallað B-fyrir-
tæki innan Hafnarfjarðar, rekið
eingöngu á sjálfsaflafé og skilar
tekjum í sveitarsjóð því rekstur-
inn stendur undir sér og meira til.
Enginn kannast við fundinn
Menn innan bæjarkerfisins vilja
ekkert kannast við það að þessi
fundur hafi nokkurn tímann átt
sér stað og enginn innan stjórn-
sýslunnar virðist kannast við að
hafa kallað hafnarstarfsmanninn
á fund til sín, þennan umrædda
laugardag 15. nóvember 2015.
Þegar hafnarstarfsmaðurinn
fór síðan að tala um þennan fund
og ræða við samstarfsmenn sína
um fundinn í ráðhúsinu fóru hjól-
in að snúast á bæjarskrifstofum
Hafnar fjarðarbæjar.
„Aðgangskerfið lá niðri“
Til þess að komast inn í ráðhús
Hafnarfjarðarkaupstaðar á laugar-
degi þarf að hafa kort. Húsið er
rammlæst og háþróað aðgangs-
stýrikerfi að húsinu veitir upp-
lýsingar um hverjir eru í húsinu
á hverjum tíma. Hins vegar hefur
komið fram í viðtölum við starfs-
menn Hafnarfjarðarkaupstaðar
að svo virðist sem aðgangsstýri-
kerfið hafi „legið niðri“ á nákvæm-
lega þeim tíma sem fundurinn fór
fram.
Ekki er hægt að finna út í gögn-
um bæjarins hverjir hafi verið í
húsinu þennan dag og ekki hægt
að sjá á myndavélum hverjir gengu
þar um. Hins vegar er vitað að
bæjarstjóri sjálfur var í húsinu
þegar fundurinn var haldinn.
Áminntur fyrir ósæmilega
hegðun í starfi
Á fundi hafnarstjórnar var ákveð-
ið að áminna starfsmanninn vegna
ósæmilegrar hegðunar í starfi.
Ekki var nánar tilgreint hvað
fólst í orðunum „ósæmileg hegð-
un í starfi“ en að endingu var sam-
þykkt að maðurinn, sem er við það
að fara á eftirlaun, yrði áminntur.
Sú áminning er talin vera fyrir
þær sakir að hann hafi ekki sagt
satt og rétt frá um fundinn 15.
nóvember.
Hafnarstjórn fól hafnarstjór-
anum að áminna starfsmann sinn.
Már taldi hann hins vegar ekki
hafa unnið til áminningar með
nokkrum hætti og neitaði að veita
hana.
Áminntur af bæjarfulltrúa
Að endingu var svo ákveðið að
formaður hafnarstjórnar og
bæjar fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, Unnur Lára Bryde, áminntu
starfsmann persónulega fyrir
ósæmilega hegðun í starfi. Afhenti
Unnur, pólitískt skipuð, starfs-
manni hafnarinnar þá áminningu
þrátt fyrir að hafa lítið sem ekk-
ert umboð til þess að geta áminnt
starfsmenn bæjarfélagsins.
Enn er ekki vitað af hverju mað-
urinn var áminntur og enginn vill
tjá sig um áminninguna.
Bréf frá Félagi skipstjórnarmanna
Stéttarfélag hafnarstarfsmanns-
ins, Félag skipstjórnarmanna,
sendi Hafnarfjarðarbæ harðort
bréf vegna áminningarinnar og
bað bæjaryfirvöld um að aftur-
kalla hana hið snarasta og biðja
starfsmanninn afsökunar.
Í bréfinu eru vinnubrögðin gagn-
rýnd og fullyrt að starfsmaðurinn
hafi ekki unnið það sér til saka að
verða áminntur fyrir störf sín.
Á síðasta fundi hafnarstjórnar
17. febrúar var málið gagnvart
hafnarstarfsmanninum látið niður
falla og honum sent bréf þar sem
áminningin er afturkölluð. Ekki
er beðist afsökunar eins og Félag
skipstjórnarmanna óskaði eftir.
Enginn vill tjá sig
Hvorki bæjarstjóri, Haraldur Lín-
dal Haraldsson, né oddvitar meiri-
hlutaflokkanna vilja tjá sig um
málið og segja það starfsmanna-
mál. Því sé ekki hægt að ræða það
mál í fjölmiðlum.
Hins vegar hefur bæjarstjóri
sagt í ræðustól í bæjarstjórn
Hafnar fjarðar að málið hafi verið
það alvarlegt að það varðaði öryggi
bæjarins og því þurfti að grípa til
þeirra aðgerða að kalla eftir gögn-
um hjá Vodafone. sveinn@frettabladid.is
Kannast ekki við fund í ráðhúsinu
Upphaf símtalamálsins í Hafnarfirði er fundur í ráðhúsinu 15. nóvember. Hafnarstarfsmaður segist hafa farið á fund og rætt störf Más
Sveinbjörnssonar hafnarstjóra. Bæjaryfirvöld verjast allra fregna af fundinum. Starfsmaðurinn fékk áminningu sem var þó dregin til baka.
SÍMTALAMÁLIÐ Í HAFNARFIRÐI
MÁR SVEIN-
BJÖRNSSON
Í RÁÐHÚSI HAFNARFJARÐARBÆJAR Hafnarstarfsmaðurinn segir fundinn hafa
verið á efri hæð ráðhússins, steinsnar frá skrifstofu bæjarstjóra sem var í húsinu.
Aðgangsstýrikerfið var óvirkt þegar fundurinn var haldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-D
3
A
0
1
3
E
0
-D
2
6
4
1
3
E
0
-D
1
2
8
1
3
E
0
-C
F
E
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K