Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 30
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Mér finnst æðislegt
að búa hérna. Það er
fjölskylduvænt en samt
nálægt, sveit í borg. Guðný Hrefna Sverris-dóttir förðunarfræð-ingur býr ásamt eigin manni sínum og tveimur börnum þeirra á Álftanesi í
fallegu húsi með stórum gluggum
og góðu útsýni. „Mér finnst æðis-
legt að búa hérna. Það er fjöl-
skylduvænt en samt nálægt, sveit
í borg.“
Þegar inn er komið er augljóst að
við erum hér komin á heimili mikill-
ar smekkkonu, hér blasir við mikið
af klassískri og fallegri hönnunar-
vöru. Það er augljóst að sá sem hér
býr hefur gott auga og það er valinn
hlutur í hverju horni. „Þetta er svo-
lítið blandað, skandinavískt, gamalt
og nýtt,“ segir Guðný. Hún bætir
við að innanhússhönnun sé eitt af
hennar áhugamálum en hún á vef-
verslunina Minimaldecor.is og ber
heimili hennar hönnunaráhuganum
augljóst vitni. Hún byrjar að sýna
okkur sína uppáhaldshluti og það er
ljóst að af nógu er að taka.
Stílhrein sveit í borg
Guðný Hrefna Sverrisdóttir er búsett á Álftanesi með fjölskyldunni þar sem afar vel fer um þau.
GAMLAR BÆKUR
Fyrstu hlutirnir sem Guðný
sýnir okkur eru gamlar barna-
bækur sem margir kannast
sjálfsagt við. Bækurnar búa yfir
tilfinningalegu gildi ásamt því
að vera hið mesta stofustáss.
„Amma mín las þær alltaf fyrir
mig þegar ég var lítil, þær eru
mjög gamlar, örugglega fimm-
tíu til sextíu ára.“
HANDSAUMAÐUR
„Skírnarkjóllinn er hand-
saumaður af langalangömmu
minni og hann er búinn að
fara ættliðanna á milli. Hann
er örugglega níutíu til hundrað
ára,“ segir Guðný og bætir
við að nöfn allra barna sem
hafi verið skírð í kjólnum séu
saumuð í faldinn og hann
muni vafalaust halda áfram að
ganga ættliða á milli.
SKEMMTILEGT Veggklukkan frá Karlsson setur litríkan og sterkan svip á stofuna.
Hana keypti Guðný í Berlín. Eigandinn ræður sjálfur hvernig henni er raðað upp.
KOPAR
Tom Dixon-
ljósið setur
mikinn svip
á stofuna en
það er í miklu
uppáhaldi hjá
Guðnýju. Ljósið
keypti hún sjálf
en það hefur
í gegnum árin
fengið marga
hönnunar-
áhugamann-
eskjuna til
þess að kikna í
hnjánum. Kopar
hefur einnig
verið að koma
sterkur inn á
síðustu árum og
það er augljóst
að okkar kona
er með trendin
á hreinu.
U
PPÁH
ALD
S Í H
O
SILÓ
GU
Ð
N
Ý H
REFN
A SVERRISD
Ó
TTIR
FÖ
RÐ
U
N
ARFRÆ
Ð
IN
GU
R
➜ STAÐURINN UPPÁHALDSSTAÐURINN Í stofunni eru stórir gluggar og við þá stendur Eggið sem hannað var af Arne Jacobsen. Stólinn hefur Guðný
átt í rúm átta ár og í honum fær hún sér morgunkaffið og nýtur útsýnisins. „Ég sit alltaf hérna með kaffibollann og horfi á útsýnið áður
en við förum af stað,“ segir Guðný, en út um gluggann má sjá alla leið frá Seltjarnarnesi og upp í Hafnarfjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Gyða Lóa Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
TÚLÍPANAR Lifandi blóm eru alltaf falleg og Guðný er mjög hrifin af túlípönum. Á
hliðarborði í stofunni stendur fallegur vasi með rauðum túlípönum sem lífga upp á
stofuna.
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-B
6
0
0
1
3
E
0
-B
4
C
4
1
3
E
0
-B
3
8
8
1
3
E
0
-B
2
4
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K