Skessuhorn - 27.11.2013, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Lífland boðar til
bændafunda
VESTURLAND: Lífland
hefur um árabil verið í farar-
broddi við að halda fræðslu-
fundi fyrir íslenska kúabænd-
ur. Í ár munu fundirnir verða
haldnir á sex stöðum á land-
inu dagana 26. – 28. nóvem-
ber. Hér á Vesturlandi verð-
ur fundurinn haldinn á Hót-
el Hamri við Borgarnes mið-
vikudaginn 27. nóvember
klukkan 11:00. „Á dagskrá
fundanna nú verður m.a. sam-
antekt á niðurstöðum hey-
sýnagreininga og samanburð-
ur við fyrri ár. Fjallað verður
um helstu fóðurgrös, notagildi
þeirra auk þess sem tæpt verð-
ur á sáðvöruúrvali Líflands.
Farið verður yfir hvernig bæta
má heilbrigði nautgripa með
markvissri notkun bætiefna
og nýjar kjarnfóðurblöndur
Líflands verða kynntar. Fyr-
irlesarar verða Gerton Hu-
isman, sérfræðingur frá Tro-
uw Nutrition í Hollandi, auk
ráðgjafa Líflands. Hluti fyrir-
lestra mun fara fram á ensku,
en verður þýddur jafnóðum á
íslensku. Boðið verður upp á
veitingar og eru allir velkomn-
ir,“ segir í tilkynningu frá Líf-
landi. –mm
„Algjörlega ómissandi!“
www.skogarholl.com
Þeir sem eignast hafa Kjötgálgann hans
Kristjáns segja hann „algjörlega ómissandi
við grillið“. Þeir hafa kynnst því af eigin raun
hversu pottþétt það er að skorða lærið beint af
grillinu og „á gálgann“. Allur skurður verður
auðveldur, þægilegur og nákvæmur – og
bakkinn tekur svo við öllum safanum.
Gálginn er hannaður af Kristjáni Sveinssyni
og er sérhver gálgi smíðaður af honum sjálfum
eftir pöntun. Þá er boðið upp á merkingu eða
hvers kyns skreytingu með laser-skurðarvél.
Gálginn er vinsæl tækifærisgjöf, ekki síst
þegar kemur að brúðkaupi, afmæli eða jólum
og því tilvalið að merkja bakkann af því tilefni.
Verð á gálganum er 15.000 kr. og er merking
innifalin í verðinu – og unnið eftir óskum
kaupanda.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma
863-6884 og 863-4808 og fyrirspurnum svarað
gegnum tölvupóst: skogarholl@gmail.com
Sjá einnig: www.skogarholl.com
Sérmerkt er
persónulegt og
skemmtilegt.
S: 571-5464
Stjórnir Verkalýðsfélag Akra-
ness og stéttarfélagsins Framsýn-
ar á Húsavík hafa fordæmt auglýs-
ingaherferð Samtaka atvinnulífs-
ins sem þessa dagana birtist á aug-
lýsingatíma fjölmiðla. Í ályktunum
sem félögin hafa sent frá sér seg-
ir orðrétt: „Stéttafélögin Framsýn
og Verkalýðsfélag Akraness for-
dæma harðlega ósmekklega aug-
lýsingaherferð Samtaka atvinnu-
lífsins er miðar að því að gera lít-
ið úr kröfum verkafólks um hækk-
un lægstu launa. Samtök atvinnu-
lífsins! Þið berið fyrst og fremst
ábyrgð á því launaskriði sem ver-
ið hefur á íslenskum vinnumark-
aði ekki íslenskt lágtekjufólk. Lítið
því í eigin barm í stað þess að sverta
aðra fyrir ykkar eigin verk! Sam-
kvæmt fyrirliggjandi upplýsing-
um er launaskriðið 54% hærra en
umsamdar almennar launahækkan-
ir frá gerð síðustu kjarasamninga
verkafólks. Þetta er minnisvarðinn
sem þið reistuð ykkur til heiðurs og
berið ábyrgð á skuldlaust. Framsýn
og Verkalýðsfélag Akraness skora
á Samtök atvinnulífsins að ganga í
takt með launafólki í stað þess að
slá ryki í augu almennings. Himin-
háum auglýsingakostnaði Samtaka
atvinnulífsins er án efa betur varið í
vasa launafólks en í hræðsluáróður í
fjölmiðlum,“ segir í ályktuninni.
þá
Í liðinni viku var því fagnað að
Landbúnaðarsaga Íslands er kom-
in út – fjögurra binda ritverk sem
hefur verið í vinnslu síðastliðin níu
Laugardaginn 14. desember standa Kór Akranes-
kirkju og Akraneskirkja að sannkallaðri jólahátíð.
Þann dag verður fjölbreytt dagskrá allan daginn
þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Kórfélagar munu skapa markaðsstemningu
og verða með ýmsan varning til sýnis og mögulega
verður hægt að gera góð kaup, söngvísir jólasvein-
ar munu kæta ungviðið og jafnvel taka snúning í
kringum jólatré. Ef vel viðrar fá bæjarbúar söng úr
turni kirkjunnar og orgelið hljómar í morgunsárið.
Kór Akraneskirkju heldur síðan jólatónleika í Vina-
minni kl. 17 þar sem tónleikagestir fá m.a. að taka
undir í þekktum jólasöngvum. Engin aðgangseyrir
er á tónleikana né á aðra viðburði og allir hjartan-
lega velkomnir.
-fréttatilkynning
Landbúnaðarsaga Íslands komin út
ár. Spannar ritið sögu íslensks land-
búnaðar allt frá landnámi og fram
yfir síðustu aldamót. Landbúnaðar-
saga Íslands er mikið rit enda stór
hluti Íslandssögunnar. Má nefna
sem dæmi að um aldamótin 1800
voru Íslendingar 47
þúsund og töldust 39
þúsund hafa framfæri
sitt af landbúnaði. Sig-
urður Ingi Jóhanns-
son, núverandi sjávar-
útvegs- og landbún-
aðarráðherra bauð
helstu aðstandend-
um og styrktarað-
ilum útgáfunnar til
móttöku í ráðuneyt-
inu sl. föstudag.
Höfundar verks-
ins eru dr. Árni
Daníel Júlíusson
sagnfræðingur og
Jónas Jónsson,
fyrrverandi bún-
aðarmálastjóri. Jónas lést árið 2007
en hafði þá lokið sínum skrifum. Dr.
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræði-
prófessor tók að sér að búa verk
hans undir útgáfu. Hjá annarri eins
sagnaþjóð og Íslendingum, kemur
það nokkuð á óvart að þessi heild-
arsaga skuli ekki hafa komið út fyrr
og má fullyrða að hér er um tíma-
mótaverk að ræða, ekki aðeins á Ís-
landi heldur og á norrænum vett-
vangi þar sem sambærileg verk eru
nýlega komin út. Ritverkið er prýtt
hundruðum ljósmynda og í alla
staði hið veglegasta.
Í lok ávarps sagði ráðherra við
formlega útgáfu ritverksins: „Það
er ekkert launungar-
mál að rit-
un og útgáfa
L a n d b ú n -
aðarsögunn-
ar sem hér er
að líta dags-
ljósið hefur
verið studd af
ýmsum aðil-
um og þá fyrst
og fremst hinu
opinbera og þá
á einn eða ann-
an máta í gegn-
um landbún-
aðarráðuneytið
fyrir forgöngu
þeirra ráðherra
sem þar hafa far-
ið með völd á ritunartíma sögunn-
ar, þeim Guðna Ágústssyni, Ein-
ari K. Guðfinnssyni, Jóni Bjarna-
syni og Steingrími J. Sigfússyni.
Sú leið hefur áður verið farin og
má nefna þar Iðnsögu Íslendinga
og Sögu íslensks sjávarútvegs en
hvoru tveggja voru einnig megin-
stoðir íslensks athafnalífs og efna-
hags. Einnig má nefna Kristni-
Sigurveig Erlingsdóttir ekkja Jónasar Jónssonar, Helgi Skúli Kjartansson, Stein-
grímur J. Sigfússon, Árni Daníel Júlíusson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Einar K.
Guðfinnsson.
Fordæma áróðursherferð
Samtaka atvinnulífsins
Skapa jólastemningu
með söng og fleiru
14. desember
sögu Íslands, Sögu stjórnarráðsins
svo eitthvað sé nefnt. M.ö.o. ráð-
herrar og Alþingi hafa gert sér ljóst
að saga sem þessi er ekki rituð án
þátttöku þjóðarinnar allrar og talið
einsýnt að það fjármagn sem í hana
er lagt skili sér með aukinni þekk-
ingu nemenda og annarra lesenda
– um Ísland og sögu þess viðfangs-
efnis sem um ræðir.“
-fréttatilkynning