Skessuhorn - 27.11.2013, Page 87
87ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 8,6m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
Weckman sturtuvagnar
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2013
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Mánudaginn 2. desember
Þriðjudaginn 3. desember
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Nýverið var starfsfólki Skessu-
horns boðið að skoða prentsmiðju
Landsprents við Hádegismóa í
Reykjavík þar sem blaðið er prent-
að. Prentsmiðjan er fullkomnasta
blaðaprentsmiðja landsins og þar
fara flest blöð á dagblaðapappír í
gegn. Meðal annars Morgunblað-
ið, DV, Viðskiptablaðið, Bænda-
blaðið og nokkur héraðsfréttablöð,
þ.m.t. Skessuhorn. Eftir að vinnslu
Skessuhorns lýkur á Akranesi er
skrá með blaðinu send í tölvu-
pósti í prentsmiðjuna á þriðju-
dagskvöldi. Þar er blaðið plötu-
tekið, eins og kallað er, og plötun-
um komið fyrir í risavaxinni prent-
vél sem er álíka há og fimm hæða
fjölbýlishús. Gangi vinnsla blaðs-
ins vel, tekur hún ekki lengri tíma
en svo að ef starfsmaður Skessu-
horns legði af stað frá Akranesi um
leið og skráin með blaðinu hef-
ur verið send, stendur það á end-
um að blaðið er tilbúið innpakk-
að í prentsmiðjunni þegar komið
er suður. Prentvél Landsprents var
vissulega stór þegar hún var keypt
til landsins um miðjan síðasta ára-
tug. Sagt hefur verið í gríni að hún
geti prentað öll dagblöð sem koma
út norðan miðbaugs. Þáverandi út-
gefendum Morgunblaðsins glímdu
ekki við minnimáttarkennd þegar
vélin var keypt. Til gamans birtum
við hér nokkrar myndir úr prent-
smiðjunni til að sýna lesendum
það sem fram fer eftir að starfs-
fólk Skessuhorns hefur lokið sínu
verki, sent blaðið suður, og starfs-
menn Landsprents taka við.
mm
Síðastliðinn föstudag hélt verslunin
Þóra í Ólafsvík upp á 50 ára afmæli.
Mættu fjölmargir gestir í tilefni
dagsins. Var boðið uppá hressingu
fyrir gesti og rifjaðir upp gamlir og
góðir tímar. Undir kvöld var svo
skotið upp 50 flugeldum fyrir fram-
an búðina.
Sigríður Þóra Eggertsdótt-
ir stofnaði verslunina Þóru 22.
nóvember 1963 í einu herbergi á
neðstu hæðinni á Brautarholti 2
og á boðstólnum var alklæðnaður
á fjölskylduna. Búðin flutti í núver-
andi húsnæði að Mýrarholti 12 árið
1967. Fram að því hafði hún ver-
ið á þrem stöðum, Brautarholti 2
jarðhæð, Skálholt 6 neðri hæð og
í bílskúr á Brautarholti 2. Í upp-
hafi voru allar vörur fluttar inn frá
Englandi, Hollandi og Danmörku.
Vöruúrvalið í versluninni hefur
breyst í gegnum tíðina og hefur t.d.
verið boðið upp á snyrtivörur, úr
og skartgripi, barnaföt, vefnaðar-
vöru og garn. Árið 1987 varð stór-
breyting þegar útibú ÁTVR opn-
aði í versluninni. Þá varð Þóra að
minnka vöruúrvalið og hætti með
vefnaðarvöruna. Árið 2012 flutti
Vínbúðin í annað húsnæði og sel-
ur Þóra nú eingöngu garn og það
sem því fylgir. Sigríður Þóra þakkar
fyrir góð viðskipti í gegnum árin og
sendir góðar kveðjur til allra starfs-
stúlkna sem hafa unnið hjá henni í
þessi 50 ár.
af
Verslunin Þóra í Ólafsvík 50 ára
Sigríður Þóra Eggertsdóttir ásamt manni sínum Bergmundi Ögmundssyni og
dætrunum Elsu og Þórdísi.
Gæti prentað allt norðan miðbaugs
Starfsmaður í plötuvinnslu tekur við
skránni af blaðinu.
Prentplata tekin úr vél þaðan sem hún
fer áleiðis á sinn stað í prentvélina.
Prentari fer yfir hvort prentgæðin séu
í lagi eftir að fyrstu eintökin koma úr
prentun.
Risavaxnar rúllur af pappír.-
Hér eru litirnir sem notaðir eru í prentun. Raunar ekki
ósvipað prentarahylkjum, en töluvert stærri!
Búið að prenta síðurnar og hér fara þær í brot og skurð.
Prentvélin er eins og fimm hæða fjöl-
býlishús að hæð.
Blaðið kemur af færibandi úr prentvélinni tilbúið í pökkun.
Verið að pakka blaðinu og ganga frá því til dreifingar.