Skessuhorn


Skessuhorn - 27.11.2013, Blaðsíða 46

Skessuhorn - 27.11.2013, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013 Sportvörubúðin Borgarsport hefur lifað með Borgnesing-um í yfir þrjá áratugi og þjón- að viðskiptavinum sínum innan sem utan héraðs. Í tæp ellefu ár hefur Jó- hanna Björnsdóttir rekið verslunina af röggsemi í Hyrnutorgi. Jóhanna er borinn og barnfæddur Borgnes- ingur. Borgarsport er glæsileg og fjölbreytt verslun með úrvalsvörur í fjölskrúðugum litum frá þekktustu sportvöruframleiðendum heims. Viðskiptavinir Borgarsports ættu því ekki að vera í vandræðum með að finna réttu jólagjöfina í ár í búðinni. „Hér finnur fólk allt það nauð- synlega í sportið, góðar æfinga- treyjur, hvort sem það er í þreksal- inn, spinning eða fyrir útihlaup- ið; sundföt, íþróttaskó, töskur og sitthvað fleira á borð við hlýjar og góðar úlpur. Merkin sem við bjóð- um upp á eru í heimsklassa; Adidas, Nike, Puma, Speedo og Casall, svo eitthvað sé nefnt, en einnig íslensk merki eins og gamla góða Hen- son,“ segir Jóhanna. „Eftir að við stækkuðum verslunina fyrir fáeinum árum höfum við verið að bjóða upp á tískufatnað fyrir konur, t.d. kjóla, ásamt barnafatnaði frá danska merk- inu Me-Too. Borgarsport er því stöðugt vakandi fyrir nýjungum og er reynt að tryggja að viðskiptavin- um okkar sé boðið upp á gæðavörur og síðast en ekki síst góða þjónustu hér í heimabyggð,“ segir Jóhanna sem býður alla velkomna í Borgar- sport á aðventunni. Verslunin Knapinn í Hyrnutorgi í Borgarnesi er eina sérvöruverslun hestamanna á Vesturlandi. Búðina reka þau Gunnfríður Harðardóttir (Guffý) og Sveinn Harðarson. Í Knapanum er gott úrval af alhliða vörum fyrir hestamenn, allt frá fyrsta flokks fatnaði til gæðaútbúnað- ar til reiðmennskunnar á borð við reiðtygi, hjálma, skófatnað og skeifur. „Hestaáhuga- fólk kemur ekki að tómum kofanum hjá okk- ur hér í Borgarnesi og munum við sem fyrr taka vel á móti viðskiptavinum á aðvent- unni. Við Sveinn leggjum okkur fram um að bjóða viðskiptavinum upp á úrvals vörur og umfram allt persónulega og góða þjónustu,“ segir Guffý. „Meðal þess sem við seljum er fjölbreyttur fatnaður frá þýska fyrirtækinu HKM sem við flytjum inn beint frá Þýskalandi. Fötin frá HKM eru fyrsta flokks og nýtast vel til reið- mennskunnar sem og almennrar útiveru,“ segir hún og bætir við að margir viðskipta- vinir Knapans kaupi föt gagngert til útver- unnar. „Einnig mætti nefna ullarnærfötin frá Janus sem hafa verið vinsæl meðal viðskipta- vina okkar, en Janusarfötin eru mjúk og fín og stinga ekki.“ „Svo má ekki gleyma hestanamminu sem við seljum. Einnig höfum við byrjað að selja hundamat frá Arion fóður, þannig að það eru ætíð einhverjar nýjungar í boði,“ segir Guffý að lokum. Hún býður alla viðskipta- vini velkomna í heimsókn í Knapann og minnir um leið á að tilboð verða á völdum vörum á föstudögum á aðventunni. Á aðventunni þurfa gestir Hyrnutorgs ekki að örvænta þegar kemur að jóla-klippingunni því þar rekur Katrín Arna Ólafsdóttir hársnyrtimeistari frá Hvít- árvöllum hársnyrtistofuna Solo. Á stofunni tekur Kata vel á móti öllum viðskiptavinum en þar býður hún upp á alhliða klippingu og hárgreiðslu allt eftir þörfum viðskiptavinar- ins. Stofan er þeim kosti gædd að vera vott- uð Aveda stofa sem tryggir gæði og staðfest- ir fagmennsku. „Aveda leggur áherslu á líf- rænar vörur en fyrirtækið er með sterka sam- félags- og umhverfisvitund og hagar fram- leiðslu sinni á hárvörum þannig að þær séu framleiddar í sátt við umhverfi og fólk. Ég býð því stolt til sölu Aveda vörur, sem eru hágæða lífrænar vörur,“ segir Kata. „Einnig býð ég til sölu hand- og fótakrem, ilmkerti, bodyvörur, te og gloss frá Aveda. Vegna jólanna er ég kominn með í sölu sér- staka jólalínu í þessum vörum sem ég sel í snotrum jólapakkningum,“ bætir hún við og býður fólk að koma og kynna sér vöruna. „Síðan minni ég á gjafabréfin sem ég hef til sölu og eru kjörið fyrir fólk að lauma í jóla- pakkann,“ segir Kata að lokum. Borgarsport er hágæða verslun í heimabyggð Jóhanna Björnsdóttir í Borgarsport býður alla velkomna í búðina á aðventunni. Tískuföt fyrir konur og barnaföt frá Me-Too skipa sess í Borgarsporti ásamt sportvörunum. Borgarsport er vel staðsett í verslanamiðstöðinni Hyrnutorgi. Katrín Arna Ólafsdóttir hárgreiðslumeistari við afgreiðsluborðið í Solo. Solo hársnyrtistofa er vottuð Aveda stofa Gæðavörur og persónuleg þjónusta í Knapanum Guffý í Knapanum. Gott og glæsilegt vöruúrval er í Knapanum í Borgarnesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.