Skessuhorn


Skessuhorn - 27.11.2013, Blaðsíða 84

Skessuhorn - 27.11.2013, Blaðsíða 84
84 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013 Stærsta mál Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar var að leið- rétta stökkbreytt fasteignalán ís- lenskra heimila. Forsætisráðherra lagði fram aðgerðaáætlun í tíu lið- um þann 13. júní sl. sem var sam- þykkt á Alþingi. Í henni kemur m.a. fram að: „Settur verði á fót sérfræð- ingahópur sem útfæri mismunandi leiðir til að ná fram höfuðstólslækk- un verðtryggðra húsnæðislána og geri tillögur þar að lútandi. Til- lögur liggi fyrir í nóvember 2013.“ Vinna hópsins gengur vel og mun hann boða til blaðamannafund- ar og kynna niðurstöður sínar í lok nóvember. Á þeim tímapunkti get- ur fólk mátað sína stöðu við nið- urstöðu sérfræðinganna. Leiðrétt- ingin sjálf mun síðan taka nokkra mánuði enda um flókið verkefni að ræða. Alið á ótta og óvissu Það hefur verið mjög einkennilegt að fylgjast með umræðunni sl. mán- uði. Svo virðist sem það vaki fyrir ákveðnum einstaklingum að grafa undan von fólks að skuldaleiðrétt- ingaleiðin sé fær. Reynt hefur verið að ala á ótta og vantrú af einhverjum öflum, sem erfitt er að festa hönd á. Vanlíðan margra og óvissa er alveg nógu mikil án þess að vísvitandi sé alið á þessum erfiðu tilfinningum. Væri ekki eðlilegra að bíða eftir niðurstöðum sem eiga að liggja fyr- ir í nóvember í stað þess að tala um svik. Hver sveik annars hvern? Mitt mat er að þeir sem voru við stjórn- völinn í síðustu ríkisstjórn hafi svik- ið almenning. Ekki núverandi ríkis- stjórn. Hún hefur ekki svikið gefin loforð og mun ekki gera það. Ekki hlustað á tillögur Framsóknar 2009 Framsóknarflokkurinn fékk umboð sitt frá kjósendum í síðustu Alþing- iskosningum. Þá vann flokkurinn sögulegan kosningasigur og undir- ritaði í framhaldinu stjórnarsáttmála ásamt Sjálfstæðiflokki. Í stjórnar- sáttmála má lesa eftirfarandi: „Rík- isstjórnin mun með markvissum aðgerðum taka á skuldavanda ís- lenskra heimila sem er til kominn vegna hinnar ófyrirsjáanlegu höf- uðstólshækkunar verðtryggðra lána sem leiddi af hruni fjármálakerfis- ins. Grunnviðmiðið er að ná fram leiðréttingu vegna verðbólguskots áranna 2007–2010 en í því augna- miði má beita bæði beinni niður- færslu höfuðstóls og skattalegum aðgerðum. Um verður að ræða al- menna aðgerð óháð lántökutíma með áherslu á jafnræði.“ Flokkarn- ir vinna nú samkvæmt þessum sátt- mála og samstarfið gengur vel. Í vor var kosið um skuldamálin. Það er ekki rétt að flokksmenn hafi lofað öllu fögru kortér í kosningar til að komast til valda, eins og sum- ar litlar sálir halda fram. Það er af- bökun á sannleikanum. Hið rétta er að þingmenn flokksins töluðu fyrir skuldaleiðréttingu allt síðasta kjör- tímabil, en á þá var ekki hlustað og lítið gert úr þeirra tillögum til skuldaleiðréttingar. Staðfastur hópur að baki stórum verkefnum Í þingflokki Framsóknar starf- ar fólk sem vill íslenskum heimil- um vel og er tilbúið að leggja mik- ið á sig til að koma þeim til hjálpar. Fyrir marga er það því miður orð- ið of seint. Tillögurnar munu koma fram innan skamms og það er vitað að það verða ekki allir ánægðir með þær tillögur. Sumum mun eflaust finnast að niðurstaðan sé ekki rétt fyrir sig. Aðrir vilja fara allt aðrar leiðir í skuldaleiðréttingum og svo er þeir sem telja skuldaleiðréttingu óþarfa með öllu. Þingmenn Fram- sóknarflokksins voru kosnir til að leysa þetta verkefni og þeir ætla að halda áfram að standa með íslensk- um heimilum. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins. Pennagrein Enginn með lygara- merki á tánum Meðal fjölmargra bóka sem kom út í haust var ævisagan „Snorri á Foss- um – Hjálpari og hestamaður – listamaður og lífskúnstner.“ Það er bókaútgáfan Salka sem gefur bók- ina út. Í henni rekur Bragi Þórðar- son fróðlega og bráðskemmtilega ævisögu Snorra Hjálmarssonar. „Snorri á Fossum er að góðu kunn- ur. Borgfirðingar þekkja hann sem dugandi bónda, hestamann, gleði- mann og leikara, en á undanförnum árum hefur hann orðið landsþekkt- ur söngvari og „hjálpari.“ Með því er átt við hæfileika Snorra til að koma öðrum til aðstoðar með ýms- um hætti. Hann getur fundið vatn í jörðu með spáteinum, hann sér óorðna hluti og veitir hjálp í veik- indum og annars konar erfiðleikum með stuðningi frá öðrum heimi. Snorri Hjálmarsson er upprunn- inn í Aðalvík á Hornströndum en fluttist í Andakílinn eftir uppvöxt og skólagöngu í Reykjavík og á Hvanneyri. Hann hreppti kóngs- dótturina, Sigríði Guðjónsdóttur á Syðstu - Fossum, hálft ríkið og síð- an allt, eins og í sönnu ævintýri, og hefur ríkt þar síðan. Bragi Þórðar- son, segir í þessari bók sögu Snorra sem er allt í senn; fróðleg, umhugs- unarverð og bráðskemmtileg. Hér eru á ferðinni æviminningar manns með fágæta hæfileika og jákvæða lífssýn, manns sem gefur lífinu lit og er ávallt reiðubúinn að rétta náunganum hjálparhönd. Með leyfi útgefanda birtum við hér örstuttan kafla úr bókinni. Að vísu tengist þessi tiltekni bókarkafli Skessuhorni, en þar segir frá því þegar Snorri á Fossum gaf í fyrsta sinn viðtal sem tengist hæfileikum sínum. Blaðamaður tekinn á beinið „Eftir því sem fleiri fengu hjálp hjá Snorra fréttist af starfi hans. Margir fjölmiðlamenn vildu fá hann til að segja frá því opinberlega sem gerð- ist fyrir hans atbeina. Í fyrstu sam- þykkti hann engin viðtöl, en loks fékk hann leyfi hjálpara sinna til þess að svara. Fyrsti blaðamaðurinn Snorri á Fossum Bók um hjálpara og hestamann, listamann og lífskúnstner í Borgarfirði sem Snorri veitti viðtal var Birna Konráðsdóttir frá Vesturlands- blaðinu Skessuhorni. Hún heim- sótti Snorra í desember 2011, leit- aði frétta og bað um að fá að sjá hvernig starfsemi hans færi fram. Það samþykkti Snorri og sagði að það væri kannski sniðugast að blaðamaður fengi að reyna aðferð- irnar á eigin skinni. Hann býður Birnu inn á skrifstofu sína þar sem við sitjum nú og spjöllum saman. ,,Nú býð ég þér inn í mitt einka- herbergi sem ég hef undir starfið mitt,“ sagði hann við Birnu. ,,Mér finnst ég ekki hafa verið heimtu- frekur um ævina eða beðið um mik- ið fyrir mig, en þegar við byggð- um nýja húsið ákvað ég að hafa eitt herbergi fyrir mig og mín mál og þannig hefur það verið.“ Birna settist á sófa í látlausu her- berginu en Snorri sjálfur í stól við skrifborð sitt. Hann skrifar niður nafn hennar í þéttskrifaða stílabók, tekur upp þrístrendan pendúl, sem festur er í bandspotta. Snorri held- ur í bandið og pendúllinn er graf- kyrr. Síðan byrjar hann að spyrja einhverja sem blaðamaður ekki sér. Ef pendúllinn snýst sólarsinnis er svarið já, ef hann fer hinn hringinn er um neikvæð viðbrögð að ræða. Á meðan hjálpararnir hugsa sig um, fer pendúllinn gjarnan fram og til baka að sögn Snorra. ,,Er ég með hjálpara hér?“ spyr Snorri. Og viti menn pendúll- inn fer á fleygiferð, réttan hring. Einhverjir eru greinilega mætt- ir. Þá spyr hann hvort ,,sólarlógus“ sé mættur og því er einnig svar- að jákvætt. Á eftir koma alls konar spurningar um orkubrautir, orku- stöðvar og hvort hægt sé að hjálpa. Hann nefnir nöfn. ,,Gyðja ljóssins“ er viðbúin og Snorri spyr hvort við- komandi vilji aðstoða, hversu mikla hjálp er þörf að fá og hvort það geti orðið hér og nú. Sem betur fer er blaðamaður ekki mjög illa haldinn svo öflugustu hjálparmennirnir fá frí þetta kvöld. Pendúllinn er tækið Pendúllinn var tækið sem svaraði öllum spurningum Snorra. Allan tímann var hann hafður yfir nafni blaðamannsins sem einnig var nefnt inn á milli. Ekki er þetta látið duga. Snorri spyr sína tengiliði um það hvort eitthvað sé að trufla. Blaða- maður sperrir eyrun vitandi upp á sig skömmina um að vera ekki allt- af nógu staðfastur og láta hugann reika um of. En það er alls ekki þetta sem Snorri á við með spurn- ingum sínum. ,,Ég er að spyrja um hvort einhverjir púkar eða sálir séu að trufla þig. Það er nefnilega svo oft sem það er reyndin og þá get- ur verið erfitt að hjálpa viðkom- andi. Stundum get ég sent sálirnar sem trufla í ljósið eða á stjörnu fyrir utan jörðina,“ segir hann og glettn- isbrosi bregður fyrir eftir þessi orð. ,,Þeir sem ekki fá að fara í ljósið fara á stjörnu fyrir utan jörðina, eða svo er mér sagt.“ Blaðamaður varpar öndinni feg- insamlega þegar upplýst er að eng- inn sé að trufla, nema ef vera skyldi hann sjálfur. ,,Nú þarf ég að síð- ustu að athuga hvaða líkamstýpa þú ert, þó að ég viti það reyndar þá er samt alltaf betra að spyrja.“ Enn fer pendúllinn á loft og í ljós kemur að blaðamaður er próteintýpa. Við erum það sem við hugsum ,,Þú ert sömu gerðar og flestir á Ís- landi og átt því ekki að borða kol- vetni. Ef þú borðar of mikið af því færðu það sem ég kalla fæðu- tengda blokkeringu sem leiðir til vanheilsu. Oft lokast orkubraut- ir út af vitlausu matarræði. Mann- skepnan er nefnilega það sem hún hugsar, hvað hún borðar og hvernig utanað komandi áhrif móta hana.“ Snorri heldur áfram: ,,Ég er sál og ég er það sem ég hef tekið með mér í þennan heim, án þess að vita hvað það er. Kem hingað eins og flestir með ákveðið verkefni í huga til að vinna með í þessari jarðvist, en fæst- ir muna hvað það er. Ef verkefnið mistekst þá vill sálin koma aftur til að ljúka ætlunarverkinu. Að mínu mati eru sumir þeirra sem grípa til þess ráðs að taka eigið líf stundum að því vegna þess að þá hefur bor- ið svo langt af leið frá upprunalegu markmiði sínu. Þeir ákveða því að klára málið strax til að hafa mögu- leika til að byrja sem fyrst að nýju. Sálin er sífellt að þroska sig, hún er í skóla og byrjar í fyrsta bekk. Ef illa gengur er stundum gott að taka bekkinn bara aftur.“ Þetta eru greinilega mál sem blaðamaðurinn hefur ekki hugleitt mikið. Hún hefur orðið margs vís- ari en vantar miklu fleiri svör sem ekki fást.“ Forsíða bókarinnar um Snorra á Fossum. Snorri með pendúlinn og Bragi skrásetjari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.