Skessuhorn - 27.11.2013, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Nýverið tók Gunnlaugur Jónsson
við þjálfarastöðu knattspyrnuliðs
ÍA, liðinu sem ól hann upp. Gunn-
laugur er ekki bara í boltanum þrátt
fyrir að njóta velgengni á því sviði.
Hann er einnig umsjónarmaður út-
varpsþáttaraðarinnar „Árið er,“ á
Rás 2 en þáttur sá hefur hlotið mik-
ið lof gagnrýnenda. Þetta hugar-
fóstur Gunnlaugs hefur ekki ein-
ungis orðið að útvarpsþáttaröð
heldur einnig víðtækri samantekt
á sagnfræðilegum tónlistarminj-
um Íslendinga. Eða eins Hallgrím-
ur Oddsson hjá Viðskiptablaðinu
komst að orði: „Þættirnir Árið er
eru einhverjar mikilvægustu menn-
ingarheimildir sem Ríkisútvarpið
hefur nokkurn tímann tekið sam-
an.“ Blaðamaður ræddi við útvarps-
manninn Gunnlaug Jónsson.
Einn gítartími
Gunnlaugur, eða Gulli eins og hann
er jafnan kallaður, er fæddur 1974.
Hann hefur alla sína tíð haft brenn-
andi áhuga á tónlist og þá aðallega
íslenskri tónlist. „Það var á árunum
1990 og 1991 sem tónlistin fang-
aði mig algerlega. Á þessum tíma
voru plötur með Þursaflokknum,
Trúbroti og Spilverkinu endurút-
gefnar á geisladiskum. Og í þessu lá
ég,“ segir Gulli. Sumir gætu haldið
að maður með svo mikla tónlistar-
ástríðu myndi jafnvel reyna sjálfur
fyrir sér í tónlist? „Mig minnir að
það hafi ekki þurft nema einn gítar-
tíma hjá Orra Harðarsyni vini mín-
um til að átta mig á því að leið mín
lá ekki í þær áttir,“ segir Gunnlaug-
ur og þar með er því svarað.
Gerði Ný dönsk þætti á
launum hjá MP banka
Þegar Gunnlaugur gekk í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi tók hann virkan þátt í útvarpi
skólans. „Það blundaði alltaf í mér
einhver fjölmiðladraumur og árin
1994 og 1995 var ég með tónlist-
arþætti í útvarpi FVA. Það tók sinn
tíma að klára stúdentinn. Árið 2000
fór ég aftur í Fjölbraut á Akranesi.
Þá var boðið upp á útvarpsáfanga
sem Óli Haralds kennari stjórnaði.
Ég nýtti mér hann og þannig hélst
við fjölmiðlaáhuginn,“ segir Gulli.
Í byrjun árs 2008 kom Gulli sér
að hjá RÚV í gegnum kunnings-
skap. Hann gerði þá fimm þætti um
hljómsveitina Ný dönsk fyrir Rás
2. „Þarna var ég að vinna fyrir MP
banka. Það var ósköp lítið að gera
í vinnunni svo ég gerði bara þessa
þætti á launum hjá þeim,“ segir
hann og brosir.
Löng fæðing
Eftir vel heppnaða þætti um Ný
dönsk hélt Gunnlaugur að björn-
inn væri unnin og hann væri komin
inn hjá RÚV. „Ég fór að viðra hug-
mynd af viðamikilli þáttaröð sem
ég var með í kollinum við starfsfólk
Rásar 2. Óla Palla og Ásgeiri Ey-
þórssyni leist strax vel á hugmynd-
ina. Á þessum tímapunkti trúði ég
því innst inni að þættirnir yrðu að
veruleika og byrjaði strax að skrifa
upplýsingar um hvert ár í íslenskri
tónlist í excel skjal. Ég verð að við-
urkenna að ég var logandi hrædd-
ur að svipaður þáttur myndi dúkka
upp í útvarpinu,“ segir Gulli. Það
var hins vegar ekki fyrr en haust-
ið 2012, þegar stefndi í afmælisár
Rásar 2, að hann var kallaður aft-
ur inn á teppi hjá þeim Óla Palla og
Ásgeiri til ræða hugmyndina frek-
ar. Í nóvember 2012 fangaði Mar-
grét Marteinsdóttir þáverandi dag-
skrárstjóri hugmyndina að þáttun-
um Árið er, sem hófu svo göngu
sína á þrítugasta afmælisári Rásar 2
á þessu ári.
Fjórir af sjö
eru Skagamenn
Gunnlaugur fékk með sér ein-
vala lið til að vinna þættina. „ Jón-
atan Garðarsson kemur að hand-
ritsgerð, Sigríður Thorlacius ljá-
ir okkur rödd sína við lestur hand-
rits, Gunnar Gunnarson bróðir Óla
Palla, hefur hjálpað okkur með af-
ritun á segulböndum, Stefán Jóns-
son bróðir minn hefur verið ómiss-
andi síðari hluta árs og svo Ás-
geir Eyþórsson sem er minn nán-
asti samstarfsmaður,“ segir Gulli
ánægður með sitt lið. Þess má geta
að þrír síðastnefndu eru Skaga-
menn. „Ásgeir reyndist hárréttur
samstarfsaðili að þessum þáttum.
Hann er háklassa klippari og mjög
skipulagður, án hans hefðum við
ekki komist í gegnum þetta ár. Við
Ásgeir eigum það sameiginlegt að
vera fullkomnunarsinnar. Það held
ég að sé einn lykillinn af því hversu
vel þættirnir hafa tekist. Það eru
mörg smáatriði sem eru útpæld,“
segir Gulli og bætir því við að hann
sé heppinn með allt starfsfólk sem
komið hefur að þessari þáttaröð.
Spurður hver uppáhalds tónlistar-
árin séu, svarar Gulli: „1992, 1999
og 2005. Á þeim árum voru gefn-
ar út frábærar plötur, þau eru tíð-
indamikil hvað varðar tónlist og við
höfum þurft að kafa djúpt. Þar af
leiðandi hefur verið skemmtilegast
að vinna þættina um þau ár.“
Hálf manískur
„Það er eins og ég hafi verið að und-
irbúa þessa þætti frá unglingsaldri,“
segir Gulli. „Ég hélt tónlistarúr-
klippubók í fjögur ár og sankaði að
mér segulbandsspólum og tímarit-
um. Þessir hlutir hafa allir nýst mér
í þessari samantekt. Nútímatækni
gerir þetta líka auðveldara, svo sem
tonlist.is, google docs, tímarit.is og
eins er hægt að nálgast tónlistar-
mennina á Facebook,“ bætir Gulli
við. Þeir sem þekkja til Gunnlaugs
vita að það sem hann tekur sér fyrir
hendur gerir hann af svo mikilli elju
að það jaðrar við þráhyggju. „Það
er svo sem ekkert launungar mál að
ég er náttúrulega hálf manísk ur,“
játar Gulli. „Sjúkdómurinn „Ma-
nic Depression“ erfist frá móðurætt
minni,“ bætir hann við. Bæði móð-
ir Gunnlaugs og amma hans hafa
þurft að glíma við þann illvíga sjúk-
dóm sem oft á tíðum hefur verið og
er mjög óvæginn. „Ég hef bara ver-
ið það heppinn að hafa ekki orðið
veikur í maníunni síðan 1992,“ segir
Gunnlaugur sem greinlega nýtir sér
orkuna sem í sjúkdómnum felst.
Ætlaði aldrei að
verða þjálfari
Gunnlaugur býr yfir leiðtogahæfi-
leikum sem hafa nýst honum í fót-
boltanum. Hann var valinn fyrirliði
ÍA árið 2000. Þar hélt Gulli þeim
titli allt þar til hann fór yfir í KR
árið 2006 þar sem hann var einn-
ig valinn fyrirliði. Fyrir tímabilið
2009 var hann ráðinn þjálfari Sel-
foss mjög óvænt. „Ég ætlaði aldrei
að verða þjálfari. En úr því það æxl-
aðist þannig þá vaknaði sá draum-
ur að fá einhvern tímann að þjálfa
æskuliðið mitt ÍA,“ segir Gunnlaug-
ur sem nú hefur tekið við þjálfara-
stöðunni á Akranesi. „Núna er rétti
tíminn. Ég kem inn á mjög spenn-
andi tíma. Aldrei í sögu liðsins hef-
ur verið svona langt skeið þar sem
hefur gengið svona illa,“ segir Gulli
sem er hvergi banginn við mögu-
legar væntingarnar Skagamanna.
„Ég verð með Jón Þór Hauksson
vin minn mér við hlið. Í fyrsta skipti
verð ég með aðstoðarþjálfara sem ég
veit upp á hár hvar ég hef. Það verð-
ur bara spennandi að takast á við
þessa áskorun,“ segir Gulli tilbúin í
slaginn.
Fjölskyldan
„Þetta eru ólík störf og ég sé kostina
sem í því felast,“ segir Gulli um at-
vinnu sína. „Það felst ákveðin hvíld
í hvoru öðru að vinna þetta svona.
En svo er bara að finna jafnvægi
með þessu öllu og fjölskyldunni.
Það verður að viðurkennast að það
hefur aðeins hallað á fjölskylduna
þetta árið meðal annars vegna þess
að við gerðum okkur ekki grein fyr-
ir hversu tímafrekt er að búa til út-
varpsþættina. En við erum reynsl-
unni ríkari og munum gefa okk-
ur meiri tíma í þá þætti sem eftir
eru,“ bætir hann við. Betri helming-
ur Gunnlaugs heitir Kristín Hall-
dórsdóttir. Þau kynntust í námsferð
í Brussel í námskúrs sem kenndur
var í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands. Saman eiga þau börnin Jón
Breka sjö ára og Katrínu Björgu sem
verður tveggja ára núna í lok des-
ember. “Kristín er ótrúlegur kven-
maður sem hefur verið mér stoð og
stytta síðustu tíu ár.Við erum talsvert
ólík en ég er ekki frá því að hún hafi
róað mig talsvert síðan við kynnt-
umst. Þó hún sé nú ekki alltaf hrifin
af tímanum sem fer í vinnuna mína
þá er hún minn helst stuðningsmað-
ur,“ segir Gulli.
Fortíð í framtíðinni
„Ég er heppinn að vinna við áhuga-
málin mín og ég er hvergi hættur.
Það er stefnan að berjast með ÍA lið-
inu og mig dreymir um að gera aðra
þáttaröð,“ segir Gulli. „Hugmyndin
er að hún taki fyrir árin 1964-1982
og við erum búnir að teikna hana
upp. Það má ekki bíða of lengi svo
hægt sé að ná tali af tónlistarmönn-
um áður en maður missir þá til feðra
sinna,“ bendir Gunnlaugur á, kapp-
samur um að ná saman þessum
sagnfræðilegu tónlistarminjum.
Brynh. Stef.
Lífið er annað og meira en fótbolti
Gunnlaugur Jónsson knattspyrnuþjálfari og útvarpsmaður
„Og þá var kalt í höllinni.“ Aðstoðarþjálfarinn Jón Þór Hauksson og Gunnlaugur
Jónsson þjálfari ÍA. Myndin var tekin á æfingu í Akraneshöllinni á dögunum.
Bræðurnir Gunnlaugur Jónsson og Stefán Jónsson við störf á RÚV.