Skessuhorn - 27.11.2013, Side 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Snorri á Fossum
– Hjálpari og hestamaður
Hinn góðkunni sagnamaður Bragi
Þórðarson rekur hér fróðlegar og
bráðskemmtilegar æviminningar
Snorra Hjálmarssonar sem
er upprunninn í Aðalvík á
Hornströndum en gerðist síðan
bóndi á Syðstu-Fossum í Andakíl.
Á miðjum starfsferli sem bóndi,
hestamaður, söngvari og leikari
breyttist hið daglega líf. Hann
gerðist tengiliður við dulin öfl, sem
leiðbeindu honum í hjálpar starfi
fyrir meðbræður hans.
Áhugaverð saga sem
lætur engan ósnortinn.
Kíktu á salka.is
Rjómabúið Erpsstaðir framleiðir ýmiskonar ljúfmeti
sem hentar í eftirrétti eða bara sem ábætir milli mála
Ljúffengur rjómaís margar bragðtegundir • Skyrkonfekt og gómsætir ostar
Einnig hið rómaða gamaldags skyr sem hentar vel í ostakökur og deserta
Njótið jólanna
Gleðileg Jól
Gerum okkur
glaðan dag um jólin
Rjómabúið Erpsstöðum • erpsstaðir.is • rjomabu@simnet.is • 868 0357
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
„Ég hef alltaf haft áhuga á ljós-
myndum, bara frá því ég man eft-
ir mér. Þær geyma svo dýrmætar
minningar,“ segir Edit Ómarsdóttir
25 ára gömul Skagamær. Edit hef-
ur getið af sér gott orð sem áhuga-
ljósmyndari og hefur haft nóg af
verkefnum í kringum ljósmynd-
unina undanfarin ár. „Ég eignað-
ist fyrstu alvöru myndavélina 2008
og í framhaldi af því fór ég að taka
fleiri myndir. Ég hef smátt og smátt
farið í aðeins þróaðri vélar en lins-
urnar skipta samt mestu máli.“
Edit útskrifaðist nýlega frá Fashion
Academy en þar fór hún á nám-
skeið í ljósmyndun. „Það var mjög
skemmtilegt á námskeiðinu og ég
hef fengið helling af verkefnum
eftir það. Ég fór að fá fjölbreyttari
verkefni en áður, eins og til dæm-
is í tískuljósmyndun.“ Eftirminni-
legast finnst henni þegar hún fór
og aðstoðaði við Orublu mynda-
töku með Aldísi Pálsdóttur. Orublu
er þekktur framleiðandi á sokka-
buxum. „Ég tók þar baksviðsmynd-
ir og myndskeið þar sem ég mynd-
aði allt á bak við tjöldin. Svo þurfti
ég að klippa myndbandið sjálf og
þetta var mjög skemmtilegt og eft-
irminnilegt. Ég er eiginlega búin að
prófa allar tegundir af ljósmyndun.
Arkitektúrs ljósmyndun heillar mig
mest,“ segir Edit. Hún hefur mik-
inn áhuga á hönnun og langar að
blanda þessum tveimur áhugamál-
Ljósmyndir geyma dýrmætar minningar
um saman. „Ég get skapað svolít-
ið sjálf með arkitektúrs ljósmynd-
un og er ekki föst innan eins ákveð-
ins ramma.“
Spurðist út og boltinn
fór að rúlla
Ljósmyndaævintýrið byrjaði með
því að Edit tók að sér að mynda
son vinkonu sinnar. Eftir það fór
boltinn að rúlla og fleiri verkefni
fóru að raðast upp. „Þetta spurðist
bara út og fleiri báðu um að koma
til mín í myndatökur. Þannig hef-
ur þetta bara rúllað. Fólk talar sam-
an og það er besta auglýsingin,“ út-
skýrir hún. Edit hefur haft nóg að
gera og hefur fengist við fjölbreytt
verkefni með myndavélina. „Helstu
verkefnin hafa verið brúðkaup,
fermingar og barna- og fjölskyldu-
myndatökur. En ég hef ákveðið að
hvíla mig á því í bili og einbeita mér
að arkitektúrs ljósmynduninni.“
Edit hefur marga drauma í magan-
um um framtíðina en núna er hún
í námi við Fjölbrautaskóla Vestur-
lands. Hún fer svo í Keili eftir ára-
mótin. Eftir það er stefnan tek-
in á viðskiptafræðinám við Há-
skóla Íslands en þar vill hún leggja
áherslu á markaðsfræði. „Ég held
að það fari ágætlega saman við ljós-
myndunina og það sem mig lang-
ar að gera í sambandi við það,“ seg-
ir hún. Draumurinn er svo að læra
í Danmörku en Edit fór þangað í
skóla fyrir nokkrum árum og féll
fyrir landi og þjóð. „Þetta var bara
ást við fyrstu sýn. Ég elska Dan-
mörku, bæði landið og fólkið þar.
Mig langar mikið að fara þangað
með fjölskylduna og læra þar.“
Langar að gera
eitthvað skemmtilegt og
skapandi
Edit er fædd og uppalin á Akra-
nesi. Móðir hennar er Lilja Kristó-
fersdóttir frá Patreksfirði og Ómar
Örn Ragnarsson. Hann er Borg-
nesingur. Stjúpfaðir hennar er
Skúli Bergmann Garðarsson frá
Akranesi. Hún býr í fallegu, gömlu
húsi við Suðurgötuna, ásamt manni
sínum Davíð Reyni Steingrímssyni,
tveimur dætrum þeirra, hundi og
ketti. Heimilið er mjög stílhreint
og fallegt og ber þess merki að Edit
er mikill fagurkeri, en þau hjónin
hafa verið að gera upp húsið und-
anfarin tvö ár.
Aðspurð um hver stefnan sé í fram-
tíðinni svarar hún að hún hafi marga
stóra drauma og einn þeirra sé að
verða fær arkitektúrs ljósmyndari.
„Það er samt kannski ekki mikið
að gera hér á Íslandi í þeim geira
en erlendis er nóg að gera. Það
er því eins gott að æfa sig vel. Ég
hef meira að segja gerst svo frökk
að hringja í fólk og spyrja hvort ég
megi koma og taka myndir heima
hjá þeim. Því er misjafnlega vel tek-
ið en flestir eru þó jákvæðir,“ seg-
ir hún og hlær. „Það er svo ótrú-
lega margt sem mig langar til að
gera í framtíðinni. Kannski langar
mig ekkert endilega að starfa sem
ljósmyndari á endanum. Ég ætla
mér þó fyrst og fremst að gera eitt-
hvað skemmtilegt og skapandi og
festast ekki í einhverju einu. Ég vil
vera dugleg að prófa nýja hluti. Svo
leyfi ég bara tímanum að leiða það í
ljós hvað verður úr mér,“ segir Edit
Ómarsdóttir.
grþ
Mynd frá Orublu tökunni, tekin við
hraunið fyrir utan ION hótelið nálægt
Þingvöllum.
Edit Ómarsdóttir, áhugaljósmyndari með meiru.
Mynd tekin fyrir Unni Jónsdóttur, sem
gerir fallegar hauskúpumyndir.