Skessuhorn - 27.11.2013, Page 78
78 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Nafn: Halldór Jónsson
Starfsheiti/fyrirtæki: Fjármála-
stjóri Omnis ehf.
Fjölskylduhagir/búseta: Kvænt-
ur Dagrúnu Dagbjartsdóttur. Við
eigum fimm börn og búum ásamt
tveimur þeirra á Akranesi.
Áhugamál: Ég hef áhuga á öllu
sem gefur lífinu lit. Áhugamálin
hafa í seinni tíð litast af því sem
börnin hafa tekið sér fyrir hendur.
Með góða bók í hönd eru mér allir
vegir færir og ekki líður mér verr
þegar ég er í essinu mínu í eldhús-
inu, með réttan drykk í seilingar-
fjarlægð og von er á góðum gest-
um.
Föstudagurinn 22. nóvember
Vinnudagurinn byrjar yfirleitt
skömmu fyrir átta á morgnana.
Það fyrsta sem ég geri er að fara
yfir sölumál gærdagsins og koma
reikningum rétta leið í innheimtu.
Um kl.10 var ég að lesa yfir samn-
ing sem er í burðarliðnum við nýj-
an viðskiptavin í þjónustu. Þeim
hefur fjölgað að undanförnu bæði
stórum og smáum á mörgum stöð-
um á landinu enda á tölvuþjónusta
sér engin landamæri.
Þó það hljómi eins og hver önn-
ur lygasaga hjá þeim er útlit mitt
þekkja þá tek ég mér eiginlega
aldrei matarhlé í hádeginu. Ég
bara nenni því sjaldnast. Ég skaust
hins vegar til nágranna okkar í
Krónunni og fékk mér smálegt í
gogginn.
Omnis rekur umboð TM á Akra-
nesi og í Borgarnesi. Að sinna
málefnum TM er hluti af mín-
um störfum og þar höfum við ver-
ið að sækja á. Klukkan tvö var ég
einmitt að sinna þörfum eins af
okkar ágætu nýju viðskiptavin-
um í tryggingamálum. Hann er
ánægður með vistaskiptin og með
öll sín tryggingamál í réttu horfi.
Ef hann verður fyrir tjóni þá fær
hann það bætt.
Það síðasta sem ég gerði í vinnunni
var að svara nokkrum tölvupóst-
um og láta samstarfsmenn mína
vita af því að ég væri á leið vest-
ur á firði í frí til þess að vera við-
staddur skírn nýjasta barnabarns-
ins. Vinnudeginum á vinnustað
lauk skömmu eftir klukkan sex
síðdegis.
Starfið er mjög fjölþætt og því
eru engir tveir dagar eins að und-
anskyldum morgunverkunum.
Hefðbundinn vinnudagur er því
ekki til sem betur fer. Það sem
stendur uppúr eftir þennan vinnu-
dag er sá kraftur sem er í starfs-
mönnum okkar á öllum stöðum.
Ég hóf störf sem fjármálastjóri
Omnis fyrir rúmum fimm árum
síðan. Ég hef verið í stjórnunar-
störfum í rekstri fyrirtækja með
litlum hléum í bráðum þrjá ára-
tugi og hef enga trú á því að það
breytist næstu árin. Framtíðin er
því hjá Omnis.
Með aldri og þroska verður mað-
ur jarðbundnari og orðinn kannski
of jarðbundinn. Því fylgir líka að
það er fátt sem kemur manni úr
jafnvægi. Maður mætir því hverj-
um degi af jafnlyndi.
Störf eins og ég vinn hafa breyst
í áranna rás vegna tæknifram-
fara. Flest er það til góðs gert og
til bóta en tæknin eltir mann uppi
og vinnan fylgir farsímanum í dag.
Vinnan getur því farið fram hve-
nær sem er og hvar sem er. Áður
var erfiðara að hafa uppá mönnum
þegar vinnudegi var lokið og því
minna áreiti. Að hluta til er þetta
vinnulag auðvitað sjálfskapað.
Samskiptin eru orðin auðveldari
en áður en um leið hafa þau orð-
ið rafrænni. Því hittir maður fólk
sjaldnar í eigin persónu en áður
var og það er ekki alltaf til bóta.
Maður er jú manns gaman.
Dag ur í lífi...
Fjármálastjóra
Í hópi ungs fólks sem hefur hald-
ið tryggð við sína heimabyggð og
ætlar að eiga heima í Borgarfirði er
Sigrún Elíasdóttir á Ferjubakka IV.
Sigrún byggði þar íbúðarhús ásamt
manni sínum Ívari Erni Reynis-
syni árið 2005. „Einhvern veginn
var hugsunin hjá mér alltaf sú að
hér ætti ég heima, þótt ég dveldi
um tíma við nám í Reykjavík. Við
kenndum síðan í tvö ár vestur á
Þingeyri en stefnan var samt alltaf
að koma heim,“ segir Sigrún sem
er sagnfræðingur að mennt. Þessa
dagana er að koma út bók sem hún
hefur skrifað um afa sinn Jóhann-
es Arason frá Seljalandi í Kolla-
firði á Barðaströnd. Jóhannes lifði
breytilega tíma og varð á efri árum
þjóðþekktur sem helsti torf- og
grjóthleðslumaður landsins. „Afi
var áhugaverður maður og heyrði
ég margt af honum. Mér fannst
það merkilegt að hann skildi fæð-
ast í torfbæ og búa við mjög frum-
stæð skilyrði fram undir þrítugt.
Ég hreifst af þessum ólíku aðstæð-
Bregður upp aldarspegli í bók um afa sinn
um sem hann kynntist á lífsleiðinni,
en seinasta hluta ævinnar bjó hann
í Breiðholtinu í Reykjavík. Þar fór
hann í gön guferðir og ferðaðist
með strætó um borgina. Hann var
mjög jákvæður að tileinka sér nú-
tíma þægindi og tók þeim eins og
sjálfsögðum hlut. Það fannst mér
magnað með tilliti til hvað þau eru
gjörólík því sem hann kynntist í
uppvextinum. Mig langaði m.a. að
tefla saman þessum andstæðum í
sögu um hann.“
Kallar hann mig – kallar
hann þig
Bókin um Jóhannes Arason sem er
kenndur við Seljaland í Kollafirði
og einnig Múla í sömu sveit heit-
ir: Kallar hann mig - kallar hann
þig. Hún er 270 blaðsíður, prýdd
fjölda mynda. „Ég heyrði hann oft
fara með þessar ljóðlínur sem eru
í ljóðinu Áfangar eftir Jón Helga-
son. Þetta er frekar óhefðbundin
söguritun hjá mér. Auk þess sem ég
byggi á eigin kynnum sem barna-
barn spjallaði ég við mikinn fjölda
fólks sem kynntist honum, bæði
ættingja og sveitunga. Annar hver
kafli í bókinni er síðan mín sviðsetn-
ing á hans lífi þar sem ég leyfi mér
að láta hugann reika, enda hafði ég
þar heillega beinagrind að sögu,“
segir Sigrún. Jóhannes Arason afi
hennar var lengst af sauðfjárbóndi í
Múla. Hann var þekktur fyrir verk-
þekkingu við torf- og grjóthleðslu.
Þegar hann hætti búskap í kringum
sextugt var haft samband við hann
frá stjórnendum Þjóðminjasafns-
ins. Jóhannes vann síðan að lagfær-
ingum og endurbótum á torfbæj-
um í eigu safnsins, bæði í Árbæjar-
safni í Reykjavík og þeim sem til-
heyrðu söfnum á Norðurlandi. Auk
þess kenndi hann þeim yngri hand-
verkið. Meðal annars unnu með Jó-
hannesi Ari sonur hans og Unn-
steinn Elíasson bróðir Sigrúnar.
Hundrað ára minning
Bókin um Jóhannes Arason kemur
út um það leyti sem 100 ár eru lið-
in frá fæðingu hans, en hann fædd-
ist 1913. „Þetta er ekki grobbsaga,
segir bara frá lífinu eins og það var.
Það er ekkert verið að fegra hlut-
ina og færa þá til betri vegar eins
og stundum er tilhneiging til, ekki
síst þegar skrifað er um stjórn-
málamenn eða þeir skrifa um sjálfa
sig,“ segir Sigrún og brosir. Hún
lauk mastersprófi í sagnfræði frá
Háskóla Íslands vorið 2012. Hún
fjallaði í meistararitgerðinni um
þá þróunaraðstoð sem Íslending-
ar þáðu frá Bandaríkjamönnum
eftir seinna stríð og er kennd við
Marshall - áætlunina. Sigrún seg-
ist að mestu sinna handverki þessa
dagana, auk þess að vera dýrahirð-
ir nokkurra kinda, kanína og hæna
á Ferjubakka. Einnig segir hún í bí-
gerð að vinna að efni fyrir Náms-
gagnastofnun. Ívar Örn Reynis-
son maður Sigrúnar er kennari við
Menntaskóla Borgarfjarðar og sam-
an eiga þau tvo syni, tveggja og sjö
ára gamla.
þá
Textabrot úr bókinni
„...en Jóa litla þótti langt að bíða eftir bróður, hélt að Mundi hefði ekki
fundið kindurnar og pabbi þeirra myndi skamma þá, hann hefði týnst í
þokunni eða eitthvað komið fyrir hann. Jóhannes tók því að biðja til guðs
um að senda Munda ómeiddan til sín strax aftur. En ekki þótti honum það
bera mikinn árangur því enginn kom. Enda hefur guð ekkert tímaskyn,
fyrir honum eru þúsund ár sem einn dagur og því ekki við miklu að bú-
ast.“ Aftan á bókarkápu stendur: Í bók sinni Kallar hann mig, kallar hann
þig fjallar sagnfræðingurinn Sigrún Elíasdóttir um líf og störf afa síns, al-
þýðumannsins/torfhleðslumannsins Jóhannesar Arasonar frá Seljalandi
í Gufudalssveit. Söguhetja bókarinnar fæddist í torfbæ árið 1913 og lést
á reykvískri sjúkrastofnun 96 árum síðar, árið 2009. Æviskeið Jóhannes-
ar spannar því einhverja mestu umbrotatíma Íslandssögunnar. Sigrún
byggir bók sína jöfnum höndum á eigin minningum og sviðsetningum
úr æsku afa síns. Úr verður heillandi frásögn sem brúar bilið á milli gamla
og nýja tímans. Kallar hann mig, kallar hann þig er dýrmætur aldarfars-
spegill nú á tímum aukinnar sjálfsskoðunar okkar Íslendinga.
Sigrún ásamt sonum sínum í sveitasælunni.
Sigrún Elíasdóttir safnfræðingur á Ferjubakka IV.
Höfundurinn ung með Jóhannesi afa
sínum.