Læknablaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR / KVENLÆKNINGAR
Einkenni breytingaskeiðs og meðferð
hjá 50 ára íslenskum konum
þeirra
Bryndís Bene-
diktsdóttir1,2'3
Kristinn
Tómasson'
Þórarinn Gíslason5
Frá 'heimilislæknisfræði,
læknadeild HÍ, 2Heilsugæsl-
unni Garðabæ, ’geðdeild
Landspítalans, 4Vinnueftirlit
ríkisins, 5lungnadeild
Vífilsstaðaspítala.
Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Bryndís Benediktsdóttir,
Lindarflöt 17, 210 Garðabæ.
Netfang: bryndis.
benediktsdottir@gb.hgst.is
Ágrip
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að rann-
saka meðal fimmtugra kvenna einkenni breytinga-
skeiðs, algengi þeirra og meðferð. Hvaða læknar sjá
um þessa meðferð og hvernig fræðslu um breytinga-
skeið og hormónameðferð er háttað.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin náði til allra
(n=956) fimmtugra kvenna á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu. Spurningalisti var sendur út ásamt tveimur ítrek-
unum og eftirleit með símhringingum.
Niðurstöður: Ails tóku 690 konur þátt í rannsókninni
(72,2%). Af einkennum sem gerðu vart við sig dag-
lega voru svefntruflanir í einhverri mynd algengastar,
oftast að konurnar vöknuðu upp að nóttu (14,8%).
Hitakóf bæði að nóttu (2,2%) og degi (3,6%) voru
algengari en hjartsláttarköst að nóttu (0,2%) og degi
(0,5%). Konur með hitakóf og hjartsláttarköst voru
líkegri til að hafa svefntruflanir, háþrýsting, vera of
þungar, hafa gengist undir brottnám eggjastokka og
þær voru síður á hormónameðferð. Þreyta (12,3%)
og syfja (9,4%) voru algeng dagleg einkenni. Tæplega
fjórðungur hafði leitað læknis vegna kvíða og spennu
en 16,5% vegna þunglyndis. Rúmlega helmingur
kvennanna var á hormónameðferð. Blöndur östró-
gens og prógesteróns voru algengastar. Hitakóf og
hjartsláttarköst voru marktækt færri hjá konum á
hormónameðferð og þriðjungur taldi sig sofa betur
eftir að hormónameðferð hófst. Tengsl voru milli
þess að vera á hormónameðferð og hafa oft verið hjá
læknum undanfarið ár, vera stórreykingakona, með
langvinna berkjubólgu, vera kvíðin og undir læknis-
hendi vegna þreytu, vefjagigtar og verkja. Ekki var
munur á tíðni kransæðasjúkdóma eða blóðtappa eftir
því hvort konur voru á hormónameðferð eða ekki.
Kvensjúkdómalæknar höfðu oftast (67%) hafið með-
ferðina en heimilislæknar haldið henni áfram (56%).
Þriðjungur kvenna hafði ekki fengið fræðslu um
hormónameðferð.
Alyktanir: Rúmlega helmingur fimmtugra kvenna er
á hormónameðferð. Þessi hópur kvenna er að ýmsu
leyti ólíkur þeim sem ekki eru á hormónameðferð
sem undirstrikar nauðsyn á markvissri greiningu og
meðferð einkenna breytingaskeiðs. Ljóst er að
fræðslu um áhrif og hugsanlega fylgikvilla hormóna-
gjafar á heilsufar kvenna er ábótavant.
Lykilorö: einkenni Inngangur
breytingaskeiðs, meðferð,
faraidsfrœði, svefn. Breytingaskeið kvenna hefst samfara minnkandi
ENGLISH SUMMARY
Benediktsdóttir B, Tómasson K, Gíslason Þ
Climateric symptoms and hormone replacement
treatment among 50 years old lcelandic women
Læknablaöið 2000; 86: 501-7
Objective: The objective of the research was to estimate
the prevalence and treatment of climacteric symptoms
among 50 years old women, including which doctors are
prescribing the hormone replacement treatment (HRT) and
what information is given about the risk and benefit of HRT.
Material and methods: All (n=956) 50 years old women
living in Reykjavík and neighbouring towns were included.
A detailed questionnaire was posted to the women with
two follow-up reminders. A non-response survey was con-
ducted by phone among those not responding.
Results: The response rate was 72.2% (n=690). Sleep
disturbances were the most common climacteric com-
plaint occurring every day, mainly difficulty in maintaining
sleep (14.8%). Hot flushes occuring every day (3.6%) and
every night (2.2%) were more common than palpitations
occuring every day (0.5%) and every night (0.2%). One
fourth of the women had been to a doctor because of
anxiety and 17% because of depression. Women who had
been oophorectomised, were suffering from insomnia,
hypertension, had high body mass index (BMI) or were not
on HRT were more likely to suffer from hot flushes and
palpitations. More than every other woman was on HRT
(54%). Combination of oestrogen and progesterone were
most commonly used. Hot flushes were less common in
women on HRT and one third reported better sleep after
starting HRT. Women on HRT more frequently visited
doctors, were more often suffering from anxiety, chronic
tiredness, fibromyalgia and pain. They more often were
heavy smokers and had chronic bronchitis.
Most often the HRT was started by gynaecologists (67%)
but continued by family doctors (56%). About one fifth
claimed that they had not received information about the
risk and benefit of HRT.
Conclusions: More than every other 50 years old woman
is on HRT. These women differ in various ways from
women not receiving HRT, which underlines the impor-
tance of accurate diagnosis and treatment of climacteric
symptoms. Better patient information is needed.
Key words: climateric symptoms, treatment,
epidemioiogy, sleep.
Correspondance: Bryndís Benediktsdóttir. E-mail:
bryndis. benediktsdottir@gb.hgst.is
hormónaframleiðslu eggjastokka, oftast kringum
fimmtugsaldur. Talið er að arfgengir þættir, barneign-
Læknablaðið 2000/86 501