Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 44

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 44
T FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR Kingella kingae beina- og liðasýkingar í börnum Sex sjúkratilfelli af Barnaspítala Hringsins Helgi Birgisson' Ólafur Steingrímsson2 Þórólfur Guðnason' Ágrip Bakterían Kingella kingae (K. kingae) er gram nei- kvæður stafur sem getur valdið liða- og beinasýk- ingum í börnum. Árið 1995 greindist fyrsta sýkingin af völdum K. kingae hér á landi og í kjölfarið greind- ust fimm tilfelli á rúmu einu ári og eitt tilfelli fjórum árum síðar. Öll tilfellin greindust á Barnaspítala Hringsins. í þessari grein munum við lýsa tilfellunum og gera grein fyrir sýkingavaldinum. ENGLISH SIIMMARY Kingella kingae ostemyelitis and septic arthritis in paediatric patients. Six cases from the Department of Pediatrics, National University Hospital of lceland Birgisson H, Steingrímsson Ó, Guðnason Þ Læknablaðið 2000; 86: 516-9 Inngangur Kingella kingae (K. kingae) er sjaldgæf orsök sýking- ar í mönnum en hún veldur einkum liða- og beina- sýkingum í börnum og hjartaþelsbólgu í fullorðnum. Þar til í júlí 1995 hafði K. kingae ekki ræktast hér á landi en á 17 mánaða tímabili greindust fimm tilfelli K. kingae sýkinga hjá bömum á Bamaspítala Hrings- ins. Eitt tilfelli greindist fjórum árum síðar. Pegar heimildir eru skoðaðar má sjá vaxandi fjölda tilfella af K. kingae sýkingum í heiminum en aðeins 15 tilfellanna komu frá Norðurlöndunum (2,3). Fimm fyrstu tilfellunum var lýst í norræna smit- sjúkdómatímaritinu 1997 (1). Grein um sama efni hcfur verið birt í Scandinavian Journal of Infectious Discases 1997 (1). Birting í Lækna- blaðinu mcð leyfi ritstjórnar áðurnefnds blaðs. Frá Barnaspítala Hringsins, sýklafræðideild Landspítal- ans. Fyrirspurair, bréfaskipti: Þórólfur (iuðnason, Barna- spítala Hringsins, Landspítala Hringbraut. Netfang: thorgud@rsp.is Lykilorð: Kingella kingae, bcinasýking, liðasýking. Efniviður og aðferðir Öll liða- og beinasýni vom ræktuð á hefðbundnum ætum (4). Sýni frá fimm fyrstu tilfellunum voru auk þess ræktuð með Bactec® blóðræktunaraðferðinni (Becton Dickinson Microbiology Systems, Cockeys- ville, MD, USA) og prófuð á Bactec® 460 en frá síðasta tilfellinu með ESB® blóðræktunaraðferðinni frá DIFCO. Sýkingarvaldurinn var greindur með staðlaðri aðferð (4) API 20E og NHI korti frá Vitek® (bioMérieux, Marcy-l’Étoile/France). Næm- ispróf voru gerð eftir NCCLS staðli og 6-laktamasa virkni var greind með nitrocefin pappírspunkta prófi (Oxoid, Basingstoke, Hampshire, UK). Tilfelli Börnin vom öll 17-24 mánaða gömul, fjórar stúlkur og tveir drengir. Tvö börn voru með liðasýkingu, tvö með beinasýkingu, eitt með liða- og beinasýkingu og eitt með blóðsýkingu. í einu tilfellanna (tilfelli nr. 5) virtist sýkingin læknast án sýklalyfja og var um blóð- sýkingu að ræða. Öll greindust tilfellin með hjálp blóðræktunar- kerfa en frá einungis einu barni (tilfelli nr. 4) ræktað- ist bakterían á venjulegu æti. Bakterían óx einungis í Kingella kingae (K. kingae) is a gram negative rod most often associated with septic arthritis and osteomyelitis in children. Infections caused by K. kingae had not been reported in lceland when six cases were diagnosed at the Pediatric Department at the National University Hospital of lceland. In this report we describe those cases and review the literature. Keywords: Kingella kingae. osteomyelitis, septic arthritis. loftháðu blóðræktunarglösunum. í eitt skipti voru blóðræktanir jákvæðar en bakterían sást aldrei við Gramslitun á sýnum. Nánari lýsingu á tilfellunum er að finna í töflu I og næmispróf eru birt í töflu II. Það var að frumkvæði viðkomandi bæklunar- lækna að sýnin sem tekin voru frá beinum og liðum voru látin í blóðræktunarglös. Meðhöndlun gekk í öllum tilfellum vel og hlaut ekkert bamanna varanlega skerðingu á líkamlegri getu. Hér á eftir kemur nánari lýsing á hverju tilfelli fyrir sig. Sjúkratilfelli 1. Tveggja ára stúlka var lögð inn vegna hita og verks í vinstra hné. Við skoðun reyndist hún hafa 38,6°C hita. Hún var heit og rjóð yfir hnénu og hreyfingar mjög sársaukafullar. Röntgenmynd af hnénu var eðlileg en ísótópaskann sýndi aukna upp- töku í mjúkvefjum hnésins. Graftrarkenndur vökvi náðist við liðástungu. Gramslitun var neikvæð en á þriðja degi óx K. kingae í loftháðu blóðræktunarglös- unum (tafla I). Niðurstöður næmisprófa eru sýnd í töflu II. Stúlkan var meðhöndluð með cefúroxími í æð í tvær vikur og síðan amoxicillíni og klavúlansýra í þrjár vikur. Við eftirlit tveimur mánuðum seinna hafði stúlkan náð sér að fullu. Sjúkratilfelli 2. Tveggja ára drengur var lagður inn 516 Læknabi.adid 2000/86

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.