Skessuhorn - 17.06.2014, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2014
Endurtalning
breytti engu
AKRANES: Eins og fram kom
í frétt Skessuhorns í síðustu viku
óskaði Vinstri hreyfingin grænt
framboð á Akranesi eftir því við
kjörstjórn að fram færi endur
talning atkvæða í sveitarstjórn
arkosningunum á Akranesi.
Var farið fram á það vegna lít
ils munar á milli 5. manns Sjálf
stæðisflokks og 1. manns VG.
Var munurinn nákvæmlega 6,2
atkvæði, sem þýddi að við end
urtalningu hefði VG þurft að fá
a.m.k. sjö atkvæði til viðbótar að
því gefnu að Sjálfstæðisflokkur
fengi ekkert. Endurtalning at
kvæða fór fram sl. þriðjudags
kvöld. Eftir hana standa úrslit
kosninganna óbreytt. Reynd
ar fór það svo að við endur
talningu bætti Sjálfstæðisflokk
urinn við sig tveimur atkvæð
um, Samfylking einu og Frjáls
ir með framsókn einu, en þessi
fjögur atkvæði höfðu verið tal
in með auðum atkvæðaseðlum.
Munurinn á 5. manni Sjálfstæð
isflokks og 1. manni VG jókst
því við endurtalninguna. –mm
Yfir 30 óku
of hratt
LBD: Fjögur umferðaróhöpp
urðu í umdæmi lögreglunnar í
Borgarfirði og Dölum í liðinni
viku, þar af eitt þar sem minni
háttar meiðsli urðu á fólki. Þrjár
tilkynningar bárum um að ekið
væri á lömb og einn var kærður
fyrir að aka undir áhrifum fíkni
efna. Flest málin í liðinni viku
voru vegna flýtis á ökumönn
um. Alls voru 33 kærur vegna of
hraðs aksturs og var einn öku
maður sviptur ökuréttindum,
en sá ók á 127 km hraða þar sem
hámarkshraði var 50 km. –þá
Brákarhátíð
framundan
BORGARNES: Laugardaginn
28. júní nk. verður Brákarhátíð
haldin í sjötta sinn í Borgarnesi.
Hátíðin hefur vaxið ár frá ári og
er nú orðinn ómissandi hluti
af sumrinu í Borgarfirði. Það
eru Hollvinasamtök Borgar
ness, áður Neðribæjarsamtökin
í Borgarnesi, sem standa að há
tíðinni eins og áður. Allur und
irbúningur og skipulag er unn
ið í sjálfboðavinnu. Dagskráin
er að taka á sig mynd og verður
aðgengileg á www.brakarhatid.
is ásamt helstu upplýsingum.
–fréttatilkynning
Tóku þátt í víð-
tækri leit
Björgunarsveitar af Vesturlandi
tóku frá því á miðvikudaginn í
síðustu viku þátt í víðtækri leit
að íslenskri konu á fertugsaldri
sem saknað var frá því í viku
byrjun í Fljótshlíð. Spænsk vin
kona konunnar fannst látin í
Bleiksárgljúfri skömmu eftir
að leit að konunum hófst. Þar
fundust einnig föt og skófatn
aður. Að sögn Þórs Bínó Frið
rikssonar, formanns Björgun
arfélags Akraness, voru allar
björgunarsveitir af Vesturlandi
beðnar að taka þátt í leitinni.
„Við frá Akranesi vorum mætt
á leitarsvæðið á miðvikudaginn.
Vel hefur gengið að leita þrátt
fyrir að enn hafa aðeins fundið
vísbendingar,“ sagði Þór þegar
Skessuhorn náði sambandi við
hann fyrir helgina. Konan hafði
ekki fundist þegar Skessuhorn
fór í prentun. –jsb
Forstjóraskipti
hjá Elkem
GRUNDART: Framundan
eru forstjóraskipti hjá Elkem
Ísland á Grundartanga. Einar
Þorsteinsson sem gegnt hefur
starfinu síðustu sex árin er að
hverfa til starfa hjá Elkem Fo
undry í Asíu. Við starfi Einars
hjá Elkem Ísland á Grundar
tanga tekur 1. ágúst nk. Gest
ur Pétursson umhverfis og
öryggisstjóri. Gestur hefur
sinnt því starfi um árabil ásamt
því að vera staðgengill og ná
inn samstarfsmaður fráfarandi
forstjóra. Einari Þorsteins
syni er ætlað hjá Elkem Fo
undry að leiða sókn fyrirtæk
isins á hratt vaxandi markaði
fyrir kísilmálm í Asíu. Elkem
er einn stærsti framleiðandi
á kísilmálmi í heiminum og
starfar á þriðja þúsund manns
í verksmiðjum fyrirtækisins í
fjórum álfum; Ameríku, Afr
íku, Asíu og Evrópu.
–þá
Borgarverk
lægst í vetrar-
þjónustu
VESTURLAND: Um miðj
an maí voru opnuð hjá Vega
gerðinni tilboð í vetrarþjón
ustu næstu þrjú árin á leið
inni Borgarnes Akranes og
Brattabrekka. Lægsta tilboð í
verkið kom frá Borgarverki ehf
í Borgarnesi upp á 15,8 millj
ónir króna sem er 90,2% af
kostnaðaráætlun sem var 17,5
milljónir. Kolur ehf í Búðardal
var örlítið yfir áætluninni með
tæplega 18 milljóna króna til
boð. Tvö önnur tilboð sem
bárust í verkið voru á svipuðu
rólu, eða um 120% af kostn
aðaráætlun. Þau voru frá Vel
verk ehf í Borgarnesi og T2
ehf í Reykjavík. Helstu magn
tölur í tilboðinu voru akstur
mokstursbíla sem er áætlaður
27.000 kílómetrar og biðtími
vélamanns áætlaður 40 klst.
Tilboðið gildir til vors 2017.
–þá
Mikið olíuskip lagðist við NATO
bryggjuna svokölluðu við olíustöð
ina á Miðsandi innst í Hvalfirði í
liðinni viku. Það heitir Emerald
Summit og var byggt í SuðurKór
eu á síðasta ári. Skipið er tæplega
75 þúsund tonn, 228 metra langt og
breidd þess er 32 metrar. Það kom
tómt til landsins og er því sennilega
að sækja olíu sem geymd hefur ver
ið í Hvalfirði. Viðsjár eru í heims
málunum með borgarastyrjöldum
í Sýrlandi og Írak þar sem íslam
istar sækja fram. Ástandið er einn
ig ótryggt í Úrkraínu. Olíuverð á
heimsmarkaði hefur farið hækk
andi það sem af er júnímánuði.
Ekkert bendir til að óróleikinn fari
minnkandi í heimsmálunum og þá
einkum fyrir botni Miðjarðarhafs.
Horfur eru á að olíuverð á heims
mörkuðum eigi eftir að hækka
verulega þegar líður að hausti og
eftirspurn eykst fyrir veturinn, ekki
síst ef ófriður eykst. Fyrir þá sem
eiga olíu í birgðum gætu því verið
að renna upp „gósentíð“ fyrir sölu
með miklum hagnaði. mþh
Verulegar umbætur hafa orðið í vet
ur á reiðleiðum á Akranesi. „Akra
neskaupstaður gerði samning við
hestamannafélagið Dreyra í fyrra
um uppbyggingu á reiðleiðum á
þessu svæði. Samningurinn ger
ir ráð fyrir styrk, þremur milljón
um króna á ári, í þrjú ár. Fyrir þessa
peninga hefur félagið m.a. lagfært
reiðstíga. Markmiðið með samn
ingnum var að auka fjölbreytni
reiðleiða og auka öryggi notenda,“
segir Regína Ástvaldsdóttir bæjar
stjóri Akraneskaupstaðar.
Möl hefur meðal annars verið
borin og jöfnuð ofan í eldri slóða.
Nú síðast hefur svo verið ráðist í að
endurnýja brú yfir heitavatnslæk
inn. Vönduð brú úr járni kemur í
stað gamallar trébrúar sem er orðin
ansi lúin. Allar þessar framkvæmd
ir tengjast þeirri félagsaðstöðu sem
hestamannafélagið hefur á Æðar
odda en þar er stórt hesthúsahverfi.
Reiðleiðirnar liggja að og frá þessu
svæðinu. „Ástand reiðleiða var orðið
slæmt og því var ákveðið að styrkja
félagið en þó með þeim hætti að fé
lagið fengi fé til framkvæmda í stað
þess að við tækjum að okkur verk
efnið,“ segir Regína.
mþh
Nýsmíðuð brú bíður þess nú að verða sett yfir heitavatnslækinn sem fellur í
Miðvog við Höfðavík.
Stórbættar reiðleiðir á Akranesi
Ný reiðleið í grennd við Höfðavík á Akranesi.
Risaolíuskipið Emerald Summit við bryggju í Hvalfirði á laugardag.
Risaolíuskip í Hvalfirði