Skessuhorn


Skessuhorn - 19.11.2014, Side 14

Skessuhorn - 19.11.2014, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 „Við verðum fljótari í förum, tök- um fleiri fólksbíla og verðum með allar bifreiðar innandyra. Við getum einnig tekið fleiri vöruflutningabíla með tengivagni. Mesti munurinn varðandi þetta frá fyrra skipi er loft- hæðin á bílaþilfarinu. Hún fer úr rétt rúmum fjórum metrum í 4,5 metra. Það munar öllu í þessum stórflutn- ingum. Við höfum verið í vand- ræðum með að taka stærstu flutn- ingabílana, höfum orðið að velja úr minni bílana og gera alls konar til- færingar til að koma bílum um borð. Menn hafa jafnvel neyðst til að keyra í staðinn fyrir að taka Baldur vegna þess að bílarnir komust ekki um borð vegna hæðar. Nú er þetta liðin tíð,“ sagði Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri Sæferða í Stykk- ishólmi og skipstjóri á Baldri í sam- tali við blaðamann Skessuhorns. Við vorum staddir á fimmtudagsmorgni í brú nýja Baldurs þar sem skipið lá í heimahöfn í Stykkishólmi. Kvöld- ið áður hafði skipinu verið siglt frá Reykjavík þar sem það lá til end- urbóta eftir komuna til landsins í október. Baldur lagðist við bryggju í heimahöfn fyrsta sinni laust eftir miðnætti aðfararnótt fimmtudags- ins. Nú var stóra stundin runnin upp. Erilsamur dagur var framund- an. Klukkan 10:00 yrði skipið opnað til sýnis fyrir gesti og gangandi. Síð- degis þennan sama dag átti Baldur svo að fara í sína fyrstu áætlunarferð yfir Breiðafjörðinn að Brjánslæk með viðkomu í Flatey og svo aftur heim í Stykkishólm um kvöldið. Miklar framfarir á einum áratug Við þessi tímamót horfði Pétur um farinn veg. Það eru einungis 13 ár síðan fjölskyldufyrirtæki hans Sæ- ferðir í Stykkishólmi tók við ferju- siglingum yfir Breiðafjörð. Þegar litið er á þróunina síðan þá má al- veg fullyrða að hún hafi verið ævin- týri líkust. „Þegar við tókum við þessum flutningum 2001 með Baldri sem smíðaður var á Akranesi, þá var pláss um borð fyrir tvo flutninga- bíla með tengivagni eða rétt tæplega það. Þessir tveir bílar voru stundum með en það var enginn biðlisti hjá slíkum að komast með. Svo þegar sá Baldur sem við höfum notað frá 2006 og þar til nú kom, þá höfðum við meira pláss. Þá fór þessi umferð að aukast. Hún var komin upp í það nú í lokin að við höfðum ekki und- an að taka alla þá flutningabíla sem vildu komast með. Með þessu nýja skipi getum við tekið sex flutninga- bíla í hverri ferð.“ Pétur lýsti þessu áfram. „Það voru 19 fólksbílar í Akraness-Baldri ef engir flutningabílar voru. Ef trukk- arnir voru með þá gátu þeir ver- ið ellefu. Núna getum við tekið allt að 54 fólksbíla ef engir flutningabíl- ar eru með. Borið saman við þann Baldur sem við seljum nú frá okk- ur þá hafði hann pláss fyrir 39 bíla.“ Þetta er aukning á flutningsgetu á fólksbílum um nálega 40 af hundr- aði. Stórsókn á sunnan- verðum Vestfjörðum Skipstjórinn dvaldi þó ekki lengi í þessu spjalli við það sem orðið er. Hann vildi horfa til framtíðar. Um- ferðin um Breiðafjörð mun halda áfram að aukast. „Það eru auðsjá- anlega aukin umsvif á sunnaverð- um Vestfjörðum. Þar hefur mikil uppbygging átt sér stað í laxeldinu. Því og fleiru fylgja miklir flutning- ar bæði á aðföngum og afurðum. Þetta á eftir að snaraukast. Það skiptir miklu að geta aukið flutn- ingsplássið á bílum svona mikið og við mætum betur þessum stór- flutningum.“ Pétur sagði að ferðatíminn stytt- ist aðeins með nýja Baldri. „Hann er að ganga 13,5 til 14 sjómílur á klukkustund. Ef við siglum beint yfir á Brjánslæk þá erum við svona tvo tíma og kortér. Þegar við tók- um við 2001 þá tók þessi ferð þrjá tíma. Með nýja skipinu nú stytt- um við tímann um svona tíu mín- útur frá fyrra skipi. Það er kannski ekki aðalmálið í sjálfu sér. Hitt sem skiptir mestu er að farþegarnir hafi góðan aðbúnað og hann er svo sannarlega fyrir hendi í þessu nýja skipi. Með því erum við ekki síst að horfa til sumarumferðarinnar sem er sömuleiðis alltaf að aukast eins og bílaflutningarnir. Við höfum leyfi til að flytja allt að 300 manns í hverri ferð sem er sami farþega- fjöldi og í fyrra skipi. En þetta er stærra og með betri aðstöðu fyrir farþegana. Við ætlum að gera hana enn betri nú í vetur. Þetta verð- ur allt komið í það horf sem við ætlum okkur fyrir vorið. Hér um borð er gott útsýnispláss, bæði úr sal en líka frá rúmgóðu þilfari uppi á skipinu.“ Mikið og gott sjóskip Pétur sagði að nýi Baldur væri gott sjóskip. Það reyndi ekki á þetta hjá áhöfn Baldurs á siglingunni frá Norður Noregi til Íslands í fyrri mánuði þar sem veður var gott. Reynsla fékkst hins vegar á þetta á siglingunni frá Reykjavík til Stykk- ishólms. Sjórinn mun tæpast stöðva nýja skipið nema það geri aftakaveð- ur. „Þetta skip er mjög þægilegt í sjó. Við fengum storm og erfitt sjólag á móti okkur þegar við sigldum fyr- ir Öndverðanesið og inn í Breiða- fjörðinn á leið til Stykkishólm nú í fyrsta sinn. Það var þannig veður að við hefðum aflýst ferð í því hér yfir Breiðafjörðinn á eldri bátunum. Nýja skipið stóð sig hins vegar svo vel að ég myndi ekki kvíða siglingu á því við svona aðstæður. Þó það heyrði orðið tíðindum til að ferðir féllu niður á skipinu sem við skipt- um út núna, þá hygg ég að það verði afar sjaldan sem við munum neyðast til að aflýsa siglingum vegna veðra. Það verður þá frekar að það verði ófærð á landi vegna snjóa þannig að ekki hefur verið hægt að aka áfram frá Brjánslæk. Þetta hefur gerst einu sinni til tvisvar á vetri. Þá er auðvit- að engin tilgangur í að sigla þang- að.“ Nýi Baldur siglir yfir Breiðafjörð samkvæmt hefðbundinni áætlun. „Það verður farið einu sinni á dag nú yfir vetrartímann. Sumaráætlun- in hefst svo um mánaðamótin maí- júní. Þá verður farið tvisvar á dag al- veg fram í september,“ sagði Pét- ur Ágústsson skipstjóri á Baldri og framkvæmdastjóri Sæferða. mþh Bylting með nýjum Baldri í samgöngum yfir Breiðafjörð Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi kom færandi hendi með blómvönd og hamingjuóskir og afhenti þeim hjónum Svanborgu Siggeirsdóttur og Pétri Ágústssyni hjá Sæferðum. Floti Sæferða í höfninni í Stykkishólmi á fimmtudag. Nýi og gamli Baldur auk hraðferjunnar Særúnar. Skipverjar á Baldri sýna gestum siglingatækin í brú skipsins. Nýi Baldur við bryggju í Stykkishólmi. Skipið er 56 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1677 brúttótonn. Það var smíðað í Noregi árið 1979 og sinnti ferjusigl- ingum við Lófót í Norður Noregi þar til það var nú selt til Íslands. Hinn nýi Baldur hélt samkvæmt áætlun í sína fyrstu ferð klukkan 15:00 á fimmtudag. Hér siglir hann af stað úr Stykkishólmshöfn fyrsta sinni. Hluti af þeim hópi sjómanna sem sigla nú á vegum Sæferða í Stykkishólmi og þá í áhöfn nýja Baldurs. Frá vinstri: Víglundur Jóhannsson (matsveinn), Mattías Arnar Þorgrímsson (stýrimaður), Siggeir Pétursson (skipstjóri), Björgvin Ólafsson (mat- sveinn), Pétur Ágústsson (skipstjóri), Sigmar Logi Hinriksson (stýrimaður), Hafþór Ingi Þorgrímsson (háseti) og Leifur Harðarson (háseti). María Valdimarsdóttir gjaldkeri Sæ- ferða við kökuna sem gestir snæddu þegar haldið var upp á komu skipsins. Með Baldri yfir Breiðafjörð!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.