Skessuhorn - 19.11.2014, Síða 19
19MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
Dag ur í lífi...
Nafn: Ísfold Rán.
Fjölskylduhagir/búseta: Ein hleyp
og umkringd köttum. Endilega
hafið samband, Borgarnes!
Starfsheiti/fyrirtæki: Þjálfari hjá
sunddeild Skallagríms.
Áhugamál: Söngur, leiklist, fer-
ðalög, dýr, förðun og hárgreiðsla.
Mánudagurinn 17. nóvember
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan 9 og
það fyrsta sem ég gerði var að hafa
mig til fyrir skólann.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég fékk mér kornflex (frumlegt).
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór í vinnuna kluk-
kan 16:25. Fór labbandi í vinnuna
beint eftir skólann.
Fyrstu verk í vinnunni? Hitta
sundkrakkana mína og segja þeim
hver upphitunin þeirra sé.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég farin í fyrsta tímann
minn í skólanum sem er stærð-
fræði.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
fór í bakaríið með nokkrum vinum
og fékk þar rosalega gott rúnstykki.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Ég var á leiðinni í minn síðasta tíma
í bókfærslu.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Ég hætti
kl. 17:40. Það síðasta sem ég gerði
var að segja krökkunum í sundinu
að synda niður því nú væri æfingin
búin.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Eft-
ir vinnuna fór ég á leiklistaræfin-
gu. Við erum að setja upp leikritið
Rocky horror picture show. Þar
fer ég með leik Magentu.
Hvað var í kvöldmat og hver el-
daði? Það var pasta gert með ítöls-
kum stæl. Í fyrra tókum við að ok-
kur ítalskan skiptinema og mam-
ma mín lærði af henni hvernig á
að elda ítalskt pasta sem er nú ekki
á verri kantinum.
Hvernig var kvöldið? Ég var
búin á leikæfingu klukkan 22 og
eftir æfingu kíkti ég á örstuttan
rúnt með vinum mínum.
Hvenær fórstu að sofa? Ég var
komin upp í rúm um 12 leytið og
sofnaði fljótt eftir það.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hát-
ta? Ég fór í leik í símanum mí-
num, hehe, Plants vs zombies 2 -
mæli með honum!
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Leiklistaræfingin klárlega,
alltaf ótrúlega gaman að sjá hvað
okkur fer fram eftir hverja einustu
æfingu. Spennan er í hámarki hjá
okkur öllum núna. Það er allt að
smella saman og við bíðum spennt
eftir frumsýningardeginum 28.
nóvember.
Eitthvað að lokum? Ég hvet alla
lesendur Skessuhorns til að styrkja
menningarlíf Vesturlands og kíkja
á frábæra uppfærslu leikfélagsins
okkar á Rocky Horror.
Menntaskólanema og sundþjálfara
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Veiðifélag Álftár á Mýrum, Borgarbyggð, óskar hér með eftir
tilboðum í lax- og silungsveiði í Álftá á Mýrum til þriggja ára
(2015-2017) eða fimm ára (2015-2019), að báðum árum með-
töldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum og fyrir-
liggjandi upplýsingum.
Útboðsgögn verða afhent hjá Guðbrandi Brynjúlfssyni, Brúarlandi,
Borgarbyggð. Útboðsgögnin verða eingöngu send út á rafrænu formi.
Þeir sem óska eftir gögnum snúi sér til Guðbrands Brynjúlfssonar,
netfang buvangur@emax.is, s: 844 0429/437 1817.
Tilboðum skal skila til formanns Veiðifélags Álftár á Mýrum,
Halldórs Gunnlaugssonar, Hundastapa, 311 Borgarbyggð,
merkt Útboð v/ Álftár á Mýrum.
Frestur til að skila tilboði rennur út fimmtudaginn
27. nóvember 2014, kl. 14.00.
Tilboðin verða opnuð laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00
í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska, í veiðihúsi Álftár
á Mýrum í landi Arnarstapa, Borgarbyggð.
F.h. Veiðifélags Álftár á Mýrum
Halldór Gunnlaugsson, formaður
Útboð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði
í seinni heimsstyrjöldinni
Magnús Þór Hafsteinsson rithöfundur og blaðamaður flytur
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Þriðjudagurinn 25. nóv. 2014
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Samþykkt breyting á deiliskipulagi
Nýlendureits, Akranesi
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi þann 11. nóvember
2014, breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits. Breytingin nær til lóðanna
Melteigs 11-13 og Suðurgötu 31-33. Tillagan var auglýst samkvæmt
1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og
hefur þeim sem gerðu athugasemdir verið send umsögn bæjarstjórnar.
Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að Melteigi er
lokað við Sóleyjargötu, aðkoma verður frá Suðurgötu og verður sá
hluti Melteigs gerður að botnlangagötu. Grænt svæði verði við enda
Melteigs við Sóleyjargötu og gróðurrönd sett meðfram bílgeymslu
við Sóleyjargötu 14.
Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis-
og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar
um gildistöku deiliskipulagins í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akraness
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
Fatamarkaður, uppboð og opið hús á Akraseli
Opið hús var á leikskólanum Akra-
seli á Akranesi síðastliðinn föstu-
dag. Tilefnið var Dagur íslenskrar
tungu og fimm ára afmæli drengs-
ins Moise, sem býr í Barnaþorpi
ABC á Fílabeinsströndinni. Þrjár
elstu deildarnar á Akraseli taka þátt
í svokölluðu sólblómaverkefni SOS
Barnaþorpanna og styrkja drenginn
um 45 þúsund krónur á ári. Börn-
in sungu ljúfan söng fyrir viðstadda
og afmælissönginn fyrir Moise, vin
sinn á Fílabeinsströndinni. Eftir
það buðu börnin upp á kaffi, heitt
kakó og heimabakaðar smákökur á
deildum sínum. Þá var einnig fata-
markaður í leikskólanum til styrktar
Moise og uppboð á listaverkum sem
börnin höfðu gert. grþ
Haldið var uppboð á myndum sem börnin höfðu teiknað af fjölskyldum sínum.
Börnin sungu meðal annars afmælissönginn af tilefni afmælis sólblómabarnsins Moise, fimm ára drengs sem býr í
Barnaþorpi ABC.