Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2002, Síða 5

Læknablaðið - 15.12.2002, Síða 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS UMRÆflA 0 G FRETTIR 924 Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Hverjir eru hagsmunir sjúklingsins? Hulda Hjartardóttir 925 Gjöf til Læknafélags íslands Fallið frá innheimtu lyfj aeftirlitsgj alds Handbók um reykleysi 926 Líflegar umræður um siðfræði lífvísinda Rætt við Einar Oddsson formann stjórnar Siðfræðiráðs LI Þröstur Haraldsson 927 Eldri ökumenn með heilabilun Ólafur Ólafsson 928 Öndunarmælingar á heilsugæslustöðvum Frá Landlæknisembættinu 929 Tæpitungulaust. Bréf til Árna Kristjánssonar Árni Björnsson 930 Húmor er ódýr og laus við aukaverkanir Rætt við Stein Tyrdal húmorritstjóra norska læknablaðsins Þröstur Haraldsson 931 Launalækkun Brynjólfur Ingvarsson 935 íðorðasafn lækna 150. Skimun Jóhann Heiðar Jóhannsson 937 Faraldsfræði 23. Áhætta og lýðheilsa María Heimisdóttir 939 Lyfjamál 110. Blóðfítulækkandi lyf Eggert Sigfússon 941 Broshornið 32. Siðareglur og sársauki Bjarni Jónasson 943 Læknadagar 2003 950 Ráðstefnur/þing 951 Lausar stöður 953 Okkar á milli 954 Sérlyfjatextar með auglýs- ingum birtir í stafrófsröð 959 Minnisblaðið Leíðrétting í síðasta tölublaði Læknablaðsins urðu þau mistök við vinnslu á grafi sem fylgdi Lyfjamálum 109 að skýringartextar víxluðust. Hér til hliðar er grafið með réttum texta. Þeim sem vilja skoða þetta nánar er bent á heimasíðu Lækna- blaðsins http://lb.icemed.is en þar er rétt útgáfa birt með 11. tölu- blaði. Þetta leiðréttist hér með og eru höfundur og lesendur beðnir velvirðingar. Soffía Árnadóttir er einn helsti leturlistamaður sinnar kynslóðar á íslandi. Þessa grein myndlistarinnar - leturlistina eða kalligrafíuna - hefur ekki borið hátt í sýningarhaldi hér á landi og er það miður því (s- lendingar eiga frábæra listamenn á þessu sviði. Þekktastur á alþjóða- vettvangi er líklega Gunnlaugur SE Briem sem lengi hefur búið og starfað erlendis. Þá er að telja Torfa Jónsson sem kennt hefur leturlist bæði hér á landi og erlendis en verk hans hafa líka víða birst á bókum. Torfi var einmitt kennari Soffíu. Að baki leturlistinni liggja mikil fræði enda er viðfangsefni hennar skriftarsagan öll að viðbættu því sem lýtur að vönduðu handverki, bókagerð og fagurfræðinni sjálfri. Soffía hefur vald á ótal leturgerðum og skriftformum en mesta rækt hefur hún þó lagt við hið svokallaða únsíal-letur sem notað var á tímum Karlamagnúsar og þróaðist smátt og smátt allar miðaldirnar. Líkt og gert var í handritum á þeim tíma hefur Soffía stundum mikið við og skreytir verk sín blaðgulli og dýrum litum. í verkum Soffíu sjáum við hvernig hún virðir og vinnur með hefðinni en líka hvernig hún nýtir sér möguleika leturformanna til nýsköpunar - til að draga fram og fegra hvern drátt pennans. Sam- bandið milli hefðbundinnar stafa- gerðar og nýrra eða „frjálsari" forma sést líka vel í verkum Soffíu. Þar má einmitt sjá hlið við hlið annars vegar pappírsverk þar sem Soffía hefur skrifað faðirvorið á latínu með frumgotnesku letri, skrauti og gyllingu, og hins vegar til dæmis plötu úr íslensku grágrýti þar sem faðirvorið á íslensku hefur verið sandblásið í steininn eftir frumskrift hennar með einkar fínlegri frjálsri skrift. Á kápu desemberheftis Lækna- blaðsins birtist nú verk eftir Soffíu þar sem hún vinnur úr tveimur Ijóðlinum úr Völuspá. Þar er að finna fyrstu orð völvunnar um Val- höll, heimkynni goðanna. Frjálsleg útfærsia Soffíu á miðaldaminnum í letrinu kallast skemmtilega á við þennan fornhelga texta. Jón Proppé Læknablaðið 2002/88 881
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.