Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.2002, Page 50

Læknablaðið - 15.12.2002, Page 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SIÐFRÆÐI LÍFVÍSINDA Líflegar umræður um siðfræði lífvísinda Einar Oddsson formaður stjórnar Siðfræðiráðs LÍ sótti heimsráðstefnu á Spáni Nú Á haustdögum sótti Einar Oddsson læknir og formaður stjórnar Siðfræðiráðs Læknafélags íslands alþjóðlega ráðstefnu um siðfræði í lífvísindum sem haldin var í borginni Gíjon í Astúrías-héraði á Norð- ur-Spáni. I nálægri borg, Oviedo, var hinn 4. apríl 1997 undirritaður sáttmálinn um mannréttindi og líf- siðfræði sem gildir nú í aðildarríkjum Evrópuráðsins. Til umræðu voru ýmis siðferðileg álitamál sem brenna á læknum jafnt sem öðrum stéttum sem fást við líf- vísindi. Voru samþykktar þrjár ályktanir um alnæmi, mannlega virðingu og matvælaástandið í heiminum. Ráðstefnan var skipulögð af Societé International de Bioethica, skammstafað SIBI, sem eru virt samtök á sviði lífvísinda en þetta er annað heimsþingið sem þau standa fyrir. Samtökin hafa einnig haldið ráð- stefnur þar sem ræddar hafa verið samþykktir á sviði siðfræði lífvísinda sem Evrópuráðið og Unesco hefur tekið mið af við útgáfu á siðareglum en þessar tvær stofnanir eru þær sem helst veita leiðsögn á því sviði í heiminum. Helsti forystumaður samtakanna er spænskur læknir, Marcello Palacios að nafni, en hann býr í Gíjon. Kofi Annan framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna sendi ráðstefnunni kveðju sína svo það er fylgst með starfi þessara samtaka á þeim vett- vangi. „Ráðstefnan fjallaði um siðfræði lífvísinda sem er víðara hugtak en siðfræði læknavísinda. Hún stóð í fjóra daga og þar var fjallað um alnæmi og eyðni- sýkingar, siðfræði erfðafræði og einræktunar og um matvælaástandið en sú umræða snerist annars vegar um matvælaþörfina í heiminum og hins vegar um erfðabreytt matvæli. Petta var því ansi vítt svið og á köflum varð umræðan mjög pólitísk." Ábyrgð Vesturlanda Einar segir að umræðan hafi kannski ekki höfðað sérstaklega til íslendinga heldur hafi hún spannað allan heiminn. „Hún snerist heldur ekki eingöngu um lækna og þeirra starf. Ef ég vitna til ályktunarinnar um alnæmi þá er þar lögð áhersla á að menn reyni að forðast fordóma og að helst öllum standi til boða sú meðferð sem til er. Þar er meðal annars hvatt til þess að fátæk- ari ríkjum sé gert kleift að veita þegnum sínum sem smitaðir eru viðeigandi lyfjameðferð með því að bjóða þeim lyf á viðráðanlegu verði. Einnig er varað Þröstur við misnotkun á fólki í tilraunum með lyf gegn eyðni- Haraldsson veirunni eins og átt hefur sér stað. Þá er varað við þeim hugsunarhætti að fólk sem smitast hefur hafi kallað veikina yfir sig en hann er töluvert útbreiddur um heiminn. Yfirlýsingin um mannlega reisn er almennt orðuð og hnykkir í raun fyrst og fremst á Mannréttindayfir- lýsingu Sameinuðu þjóðanna og þeim yfirlýsingum sem á henni eru byggðar. Þar er varað við afleiðing- um þess að milljónir manna þjáist af hungri, sjúk- dómum og skorti á drykkjarvatni og húsnæði en á öll- um þessum vanda séu til auðveldar lausnir ef vilji er fyrir hendi. Þá er ítrekað að ofbeldi, hvers eðlis sem það er, sé í andstöðu við skynsamlega breytni og grafi undan menningu og mannlegri reisn. Það vakti líka athygli mína að í ályktuninni er lögð á það áhersla að rétturinn til þess að njóta gæða náttúrunnar sé hluti af almennum mannréttindum. I ályktuninni um matvælaástandið er vakin athygli á því að á þriðja tug milljóna jarðarbúa eigi ekki kost á nægri næringu á sama tíma og nógur matur er til í heiminum. Matvælin berast einfaldlega ekki þeim sem þarfnast þeirra. Þar er gagnrýndur sá hægagang- ur sem hefur verið á því að fækka þeim sem vannærð- ir eru og í því sambandi bent á ábyrgð fj ölþj óðafyrir- tækja og vestrænna allsnægtarþjóðfélaga á meðbræðr- um sínum í þriðja heiminum." Hungur og erfðabreytt matvæli „Einnig er í síðastnefndu ályktuninni fjallað um erfðabreytt matvæli og hvatt til þess að menn reyni að forðast slys í þeirri þróun en stefnt skuli að því að ýta undir kostina sem hún geti haft í för með sér og dregið 926 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.