Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SIÐFRÆÐI LÍFVÍSINDA
Líflegar umræður um siðfræði lífvísinda
Einar Oddsson formaður stjórnar Siðfræðiráðs LÍ sótti heimsráðstefnu á Spáni
Nú Á haustdögum sótti Einar Oddsson læknir og
formaður stjórnar Siðfræðiráðs Læknafélags íslands
alþjóðlega ráðstefnu um siðfræði í lífvísindum sem
haldin var í borginni Gíjon í Astúrías-héraði á Norð-
ur-Spáni. I nálægri borg, Oviedo, var hinn 4. apríl
1997 undirritaður sáttmálinn um mannréttindi og líf-
siðfræði sem gildir nú í aðildarríkjum Evrópuráðsins.
Til umræðu voru ýmis siðferðileg álitamál sem brenna
á læknum jafnt sem öðrum stéttum sem fást við líf-
vísindi. Voru samþykktar þrjár ályktanir um alnæmi,
mannlega virðingu og matvælaástandið í heiminum.
Ráðstefnan var skipulögð af Societé International
de Bioethica, skammstafað SIBI, sem eru virt samtök
á sviði lífvísinda en þetta er annað heimsþingið sem
þau standa fyrir. Samtökin hafa einnig haldið ráð-
stefnur þar sem ræddar hafa verið samþykktir á sviði
siðfræði lífvísinda sem Evrópuráðið og Unesco hefur
tekið mið af við útgáfu á siðareglum en þessar tvær
stofnanir eru þær sem helst veita leiðsögn á því sviði
í heiminum. Helsti forystumaður samtakanna er
spænskur læknir, Marcello Palacios að nafni, en hann
býr í Gíjon. Kofi Annan framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna sendi ráðstefnunni kveðju sína svo það
er fylgst með starfi þessara samtaka á þeim vett-
vangi.
„Ráðstefnan fjallaði um siðfræði lífvísinda sem er
víðara hugtak en siðfræði læknavísinda. Hún stóð í
fjóra daga og þar var fjallað um alnæmi og eyðni-
sýkingar, siðfræði erfðafræði og einræktunar og um
matvælaástandið en sú umræða snerist annars vegar
um matvælaþörfina í heiminum og hins vegar um
erfðabreytt matvæli. Petta var því ansi vítt svið og á
köflum varð umræðan mjög pólitísk."
Ábyrgð Vesturlanda
Einar segir að umræðan hafi kannski ekki höfðað
sérstaklega til íslendinga heldur hafi hún spannað
allan heiminn.
„Hún snerist heldur ekki eingöngu um lækna og
þeirra starf. Ef ég vitna til ályktunarinnar um alnæmi
þá er þar lögð áhersla á að menn reyni að forðast
fordóma og að helst öllum standi til boða sú meðferð
sem til er. Þar er meðal annars hvatt til þess að fátæk-
ari ríkjum sé gert kleift að veita þegnum sínum sem
smitaðir eru viðeigandi lyfjameðferð með því að
bjóða þeim lyf á viðráðanlegu verði. Einnig er varað
Þröstur við misnotkun á fólki í tilraunum með lyf gegn eyðni-
Haraldsson veirunni eins og átt hefur sér stað. Þá er varað við
þeim hugsunarhætti að fólk sem smitast hefur hafi
kallað veikina yfir sig en hann er töluvert útbreiddur
um heiminn.
Yfirlýsingin um mannlega reisn er almennt orðuð
og hnykkir í raun fyrst og fremst á Mannréttindayfir-
lýsingu Sameinuðu þjóðanna og þeim yfirlýsingum
sem á henni eru byggðar. Þar er varað við afleiðing-
um þess að milljónir manna þjáist af hungri, sjúk-
dómum og skorti á drykkjarvatni og húsnæði en á öll-
um þessum vanda séu til auðveldar lausnir ef vilji er
fyrir hendi. Þá er ítrekað að ofbeldi, hvers eðlis sem
það er, sé í andstöðu við skynsamlega breytni og grafi
undan menningu og mannlegri reisn. Það vakti líka
athygli mína að í ályktuninni er lögð á það áhersla að
rétturinn til þess að njóta gæða náttúrunnar sé hluti
af almennum mannréttindum.
I ályktuninni um matvælaástandið er vakin athygli
á því að á þriðja tug milljóna jarðarbúa eigi ekki kost
á nægri næringu á sama tíma og nógur matur er til í
heiminum. Matvælin berast einfaldlega ekki þeim
sem þarfnast þeirra. Þar er gagnrýndur sá hægagang-
ur sem hefur verið á því að fækka þeim sem vannærð-
ir eru og í því sambandi bent á ábyrgð fj ölþj óðafyrir-
tækja og vestrænna allsnægtarþjóðfélaga á meðbræðr-
um sínum í þriðja heiminum."
Hungur og erfðabreytt matvæli
„Einnig er í síðastnefndu ályktuninni fjallað um
erfðabreytt matvæli og hvatt til þess að menn reyni að
forðast slys í þeirri þróun en stefnt skuli að því að ýta
undir kostina sem hún geti haft í för með sér og dregið
926 Læknablaðið 2002/88