Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTiR / ÍÐORÐAPISTILL 150 Skimun Ásgeir Theódórs, læknir, hringdi og vildi fá aðstoð við að finna heiti á sjúkdómsleit sem hann var í vafa um hvort nefna mætti skimun. Ásgeir vísar þar í svo- nefnda Vitundarvakningu um ristilkrabbamein sem nú nýverið var sett af stað hér á landi. Beitt verður þeirri aðferð að dreifa upplýsingum um ristilkrabba- mein, einkenni þess og áhættur og hvetja fólk til þess að forðast áhættuþætti. Þá eru einstaklingar 50 ára og eldri hvattir til að þiggja skimun eftir ristilkrabba- meini, einfalda rannsókn sem felst í árlegri leit að leyndu blóði í hægðum, en hægðablóð getur einmitt verið upprunnið í ristilkrabbameini. Vitundarvakning Vitundarvakningin er nákvæmlega það sem orðið gefur til kynna. Menn eru vaktir til meðvitundar eða vitneskju um eitthvað. Vitundarvakning um sjúkdóm þarf því hvorki að fela í sér skimun né neina aðferð til greiningar eða rannsóknar. Fræðsla ein getur verið ætluð til að vekja menn til þeirrar meðvitundar, sem vonast er eftir. Oftast fer vitundarvakning þó einnig fram með hvatningu eða ábendingu, til dæmis með því að benda á ýmis líkamleg einkenni, sem annars væri ekki fengist um, eða með því að hvetja menn til ákveðinna verka eða hegðunar. Að skima Sögnin að skima merkir samkvæmt íslensku tölvu- orðabókinni 1. líta í kringum sig, skyggnast um, horfa. 2. geiga frá beinni stefnu, stefna til hliðar. 3. rannsaka ísmásjá. Undirritaður kannast ekki við síðasta merk- ingarliðinn, þrátt fyrir að hafa unnið við smásjár nær alla sína starfsævi, og finnst hann beinlínis rangur, enda á dæmið sem tekið er, gen eru skimuð í leit að stökkbreytingum, ekki við. Gen eru ekki rannsökuð með smásjárskoðun. Fyrsti merkingarliðurinn er hins vegar sá sem við á, þegar verið er að vísa í læknis- fræðilega skimun. Fyrr á árum var sögnin að skima gjaman notuð í samsetningunum skima að einhverju eða skima eftir einhveiju og merkti í báðum tilvikum það sama, svip- ast um í leit að einhverju. Rétt er að benda einnig á, að svipast um merkir gá að einhverju, leita einhvers lauslega. Það eru þessi tvö blæbrigði merkingar sem sögnin að skima gefur svo vel til kynna, annars vegar líta til ýmissa átta og hins vegar gá eða leita lauslega. Athygli vert er að sögnin að skima er nú gjarnan notuð með forsetningunni fyrir og þá talað um að skima fyrir einhverju. Svo hefur farið í íðorðasafni lækna að enska sögn- in to scan hefur verið þýdd með sögninni skima. Sú þýðing virðist þó ekki hafa náð neinni útbreiðslu meðal lækna. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs gefur merkingarnar: 1. grannskoða; virða rannsak- andi fyrir sér; 2. renna augum yftr, líta yftr; 3. skipta eftir bragliðum, skiptast í bragliði; 4. skima, skanna, fara yftr með skanna. Sögnin að skanna er sú sem helst virðist hafa náð fótfestu í læknamálinu. Rétt er að vekja athygli á þessum mismun, að skanna merki helst skoða vandlega, en skima merki fremur skoða lauslega. Screen Ensku sögnina to screen hefur Iðorðasafn lækna þýtt með íslensku sögninni kemba. Því hefur nafnorðið screening fengið íslensku þýðinguna kembileit. Nafn- orðið screen er skilrúm, skermur, net, sía, hlíf, skjár eða tjald. Hin læknisfræðilega merking sagnarinnar screen er því án efa helst í ætt við sigta, sía eða skilja frá. Undirritaður, sem kynntist fíngerðum lúsakamb- inum strax á barnsaldri, hefur aldrei getað sætt sig við þessa þýðingu. Honum finnst að kembileit hljóti að vera nákvæm leit, en að screening geti verið lausleg eða fremur ónákvæm og að þar eigi íslenska nafn- orðið skimun best við. Aerosol Guðrún Sigmundsdóttir, smitsjúkdómalæknir, óskaði eftir íslensku heiti á fyrirbærið aerosol. Læknisfræði- orðabók Dorlands upplýsir að aerosol sé: 1. efnakerft (colloid system), tegund lausnar (sol, solution), þar sem dreifiefnið (dispersion medium) er lofttegund. 2. vökvi sem geymdur er undirþrýstingi ásamt með drif- efni (propellant) þannig að dreifa megi lausninni sem finum úða. 3. lausn aflyfi sem hœgt eraðýra sem fittum úða til innöndunarmeðferðar. Við skoðun kemur í ljós að íðorðasafn lækna á ekki íslenskt heiti fyrir aerosol. Um leið sést að þýðing þess á nafnorðinu colloid, kvoðulausn, er ekki fullnægjandi því að í orðabók Dorlands kemur fram að colloid sé 1. kvoðukennt eða límkennt efni. 2. efni sem gert er úr örsmáum óuppleystum ögnum, venjulega 1-1000 nm í þvermál, sem dreifast jafnt eða svífa í samfelldu dreifiefni. í Læknisfræðiorðabók Stedmans er tekið í sama streng. Samkvæmt þessu ætti colloid að birtast þannig í íðorðasafninu: 1. kvoðulausn, kvoðu- eða límkennt efni. 2. sviflausn, efni gert úr örsmáum ögn- um sem svífa í lausnarefninu án þess að falla. Svlfúði Það fór svo, sem reyndar gerist ekki mjög oft í íð- orðavinnunni, að undirritaður bjó til á augabragði nýyrði sem fyrirspyrjanda líkaði. Með hliðsjón af ofanrituðu varð það heitið svifúði, sem skýra má þannig: úði sviflausnar, það er úði óuppleystra efnis- agna í viðeigandi dreifiefni. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2002/88 935
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.