Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 24

Læknablaðið - 15.04.2003, Síða 24
FRÆÐIGREINAR / ÞVAGLEKI Kennsla FJöldl nemenda Mynd 7. Verkleg kennsla íþjálfun grindarbotnsvöðva hjá framhaldsskólanemum. og því einungis notast við huglægt mat þátttakenda. Telja verður ólíklegt að nemendur sem ekki missa þvag svari spurningu þar að lútandi játandi. í stað þess að spyrja um áhrif þvagleka á félagslíf og hrein- læti sérstaklega var spurt almennt um áhrif vanda- málsins á daglegt líf viðkomandi. Líklegt er að hjá mjög ungum konur, eins og hér er um að ræða, hafi jafnvel hinn minnsti þvagmissir hlutfallslega meiri áhrif á lífsgæði en hjá þeim eldri. Mismunandi skilgreiningar og mæliaðferðir er stærsta vandamálið við samanburð á þvaglekarann- sóknum. Þetta skýrir sennilega mikinn mun í tíðni- tölum á milli rannsókna (6). í fyrsta sinn hefur nú verið útbúinn einfaldur alþjóðlegur spurningalisti á vegum alþjóðlegra þvaglekasamtaka (International Consultation of Incontinence). Það ætti því að verða auðveldara að bera saman rannsóknir í framtíðinni. Spurningalistinn í rannsókninni hefur einnig verið notaður í nýlegum erlendum rannsóknum, en niður- stöðurnar hafa ekki ennþá verið birtar (munnlegar heimildir frá fulltrúum Intemational Consultation of Incontinence). Fáar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa verið gerð- ar á tíðni þvagleka meðal kvenna yngri en 20 ára og hefur nákvæmlega sami aldurshópur og í okkar rann- sókn ekki verið rannsakaður fyrr, og þær fáu sem gerðar hafa verið hafa haft lítil úrtök. í fæstum rann- sóknanna hefur verið lagt mat á áhrif þvagleka á lífs- gæði. í tveimur eldri rannsóknum frá Bandaríkjunum (2, 7), sem gerðar voru á konum yngri en 25 ára og höfðu ekki eignast böm, var heildartíðnin mjög há, eða um 50%, og í þeim tilvikum þar sem þvaglekinn reyndist klínískt vandamál var tíðnin 5 og 6%. Um fjórðungur kvenna 17-44 ára höfðu þvagleka í könn- un Yarnells og fleiri árið 1981. Einkennin truflaði fé- lags- og samlíf („Domestic live“) 3% þessara kvenna (8). Síðari tíma rannsóknir hafa sýnt mun lægri tíðni hjá þessum aldurshópi, eða 3-6% (1,9,10). I ofangreindum rannsóknum og eins okkar er áreynsluþvagleki langalgengasta tegundin og sumar rannsóknir hafa beinst að því sérstaklega. Rannsókn á ungum íþróttakennaranemum í Noregi leiddi í Ijós að fjórðungur átti við þetta vandamál að stríða við ástundun mismunandi líkamsþjálfunar (11). Sami höfundur gerði samanburðarrannsókn á afreks- íþróttakonum og samanburðarhópi árið 2001. Þar kom í ljós að tíðni þvagleka var mikil hjá báðum hóp- unum en ekki reyndist vera tölfræðilega marktækur munur þar á (12). Höfundar telja að úrtakið, þrátt fyrir að vera ein- ungis af SV-homi landsins, lýsi þýðinu á nokkuð sannfærandi hátt því að ekki er vitað til þess að um- hverfisaðstæður hafi áhrif á algengi þvagleka. I ljósi þessara niðurstaðna er nauðsynlegt að skoða nánar ástæður þvagmissis. Hingað til hefur verið talið að þvagleki hrjái helst konur eftir barnsburð og sé fylgi- fiskur öldrunar. Ekki er vitað hve margar stúlkur í úr- takinu hafa fætt börn þar sem ekki var spurt um barnseignir. Reiknað er þó með að vegna ungs aldurs séu þær frekar fáar. Kannski hefur þessi háa tíðni allt- af verið til staðar, en með breyttum viðhorfum hefur þetta mál komið meira fram í daglegri umræðu og konur eiga auðveldara með að tala um það. Það get- ur líka verið að um sé að kenna breyttu þjóðfélagi með meiri kyrrsetu, aukinni líkamsþyngd eða meiri vökvaneyslu. Áður fyrr unnu konur meiri líkamlega vinnu og vera má að það hafi haft áhrif á ómeðvitaða þjálfun grindarbotnsvöðva. Vanþekking nemenda á grindarbotninum og starfsemi hans gæti einnig hafa haft áhrif á niðurstöðurnar. Ekki er hægt að útiloka að einhverjir nemendur hafi ekki þorað að spyrja og hafi því svarað af ónákvæmni. Aðstæður við framkvæmd rannsóknarinnar voru þannig að nemendur sátu hlið við hlið við útfyllingu spurningalistans. Þetta gæti hafa haft þau áhrif að þeir nemendur sem þjáðust af þvagleka þorðu ekki að svara samviskusamlega. I nýlegri umfangsmikilli íslenskri rannsókn, sem var gerð haustið 2001 á tíðni þvagleka hjá konum á aldrinum 30-75 ára, kom í ljós að tíðnin var um 38% (4). Þar var notaður sami alþjóðlegi staðfærði spum- ingalistinn. Áreynsluþvagleki var langalgengastur, sérstaklega á meðal yngri kvenna. Þvagleki hafði áhrif á daglegt líf 28% þeirra. Það má velta fyrir sér hvort þessi 32% stúlkna í framhaldsskólum verði að þeim 38% sem þjást af þvagleka á seinni árum. Sé svo væri mögulegt að minnka tíðnina með markvissum forvörnum, svo sem fræðslu og kennslu um grindar- botnsþjálfun í framhaldsskólum. Sé svo hins vegar ekki mætti búast við að niðurstöður úr sambærilegri rannsókn á 30-75 ára gömlum konum sem gerð yrði eftir 10-15 ár sýndi enn hærri tíðni. Við flokkun á tegundum þvagleka kom í ljós að flestir nemendur (55%) þjáðust af áreynsluþvagleka. Grindarbotnsþjálfun er áhrifarfkasta meðferðarúrræð- ið við slökum grindarbotnsvöðvum, sem eru aðalorsök áreynsluþvagleka. Nokkur munur var á áhrifum teg- unda þvagleka á daglegt líf nemenda, bráðaþvagleki 308 Læknablaðið 2003/89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.